Veiðiráðgjöf fyrir uppsjávarfiskistofna í NA-Atlantshafi

Norsk-íslensk síld. 
Myndin er fengin frá norsku hafrannsóknastofnuninni, Havforskingsinstituttet.
… Norsk-íslensk síld.
Myndin er fengin frá norsku hafrannsóknastofnuninni, Havforskingsinstituttet.
https://www.hi.no/hi

Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) veitir í dag, 30. september, ráðgjöf um veiðar á norsk-íslenskri síld, makríl og kolmunna fyrir árið 2027 (sjá ices.dk). Helstu niðurstöður eru tíundaðar hér.

10 % hækkun í norsk-íslenskri vorgotssíld

ICES leggur til í samræmi við langtímanýtingastefnu að afli norsk-íslenskrar vorgotssíldar árið 2027 verði ekki meiri en 588 004 tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var tæp 534 þúsund tonn og hækkar því um 10 % á milli ára.

Árgangar síðustu ára hafa verið litlir og árgangurinn frá 2016 hefur verið uppistaðan í veiðinni síðustu ár. Árgangarnir frá 2021 og 2022, sem eru að koma inn í veiðistofninn, eru hinsvegar metnir yfir meðalstærð sem leiðir til hækkunar á ráðgjöfinni.

Áætlað er að heildarafli ársins 2026 verði um 583 þúsund tonn sem er rúm 9 % umfram ráðgjöf ársins.
Sjá ráðgjöfina hér á vef Hafrannsóknastofnunar. 

Tvöföldun í makríl

ICES leggur til í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið (MSY) að makrílafli árið 2027 verði ekki meiri en 352 938 tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var rúm 174 þúsund tonn og því er um að ræða 102 % hækkun á ráðgjöf. Ástæða þess er að stærð hrygningarstofns er nú metinn yfir varúðarmörkum og því byggir ráðgjöfin á hærri veiðidánartölu en á síðasta ári í takti við samþykkta ráðgjafarreglu. Hrygningarstofninn stækkar lítillega milli ára vegna bættrar nýliðunar og hærri meðalþyngda en er ennþá lítill í sögulegu samhengi.

Áætlað er að heildarafli ársins 2026 verði ríflega 398 þúsund tonn sem er 128 % umfram ráðgjöf.
Sjá ráðgjöfina hér á vef Hafrannsóknastofnunar.

25 % hækkun í kolmunna

ICES leggur til í samræmi við langtímanýtingarstefnu að kolmunnaafli ársins 2027 verði ekki meiri en 1 064 191tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var 851 þúsund tonn og er því um að ræða 25 % hækkun á ráðgjöf frá í fyrra.

Það eru þrjár ástæður fyrir því hækkun á ráðgjöfinni, hrygningarstofninn árið 2027 er metinn stærri en 2026, hrygningarstofn síðustu ára er nú metinn stærri en í stofnmatinu 2025 og sterkur árgangur frá 2024 er að ganga inn í stofninn. Í samræmi við langtímanýtingarstefnu var aukning í aflamarki milli ára takmörkuð við 25 % en hefði annars orðið 31 %.

Áætlað er að heildarafli ársins 2026 verði ríflega 1 110 þúsund tonn sem er 30 % umfram ráðgjöf.
Sjá ráðgjöfina hér á vef Hafrannsóknastofnunar. 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?