NORSK-ÍSLENSK VORGOTSÍLD
Clupea harengus

Ráðgjöf 2027

588 004

tonn

Ráðgjöf 2026

533 914

tonn

Breyting á ráðgjöf

10 %

Birting ráðgjafar: 30. september 2026. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.


Ráðgjöf

Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) ráðleggur í samræmi við langtímanýtingarstefnu Evrópusambandsins, Bretlands, Færeyja, Íslands, Noregs, og Rússlands að afli ársins 2027 verði ekki meiri en 588004 tonn.

Stofnþróun

Veiðidánartala stofnsins er metin undir kjörsókn (FMSY). Stærð hrygningarstofns er undir aðgerðarmörkum (MGT Btrigger) og á milli gátmarka (Bpa) og varúðarmarka (Blim).

Norsk-íslensk vorgotssíld. Afli Íslands og annara þjóða, nýliðun, veiðidánartala 5-12+ ára og stærð hrygningarstofns. Skyggð svæði og öryggisbil sýna 95 % öryggismörk.

Stofnmat og gátmörk

Forsendur ráðgjafar

Nýtingarstefna.

Aflaregla

Langtímanýtingarstefna sem var samþykkt af strandríkjum árið 2018 (Anon, 2018) og í framhaldinu af Bretlandi (Anon, 2020).

Stofnmat

Tölfræðilegt aldurs-aflalíkan (SAM).

Inntaksgögn

Aldursgreindur afli (stofnþyngdir byggðar á þyngd eftir aldri úr leiðöngrum, og frá 2009 á sýnatöku úr afla). Fjórar leiðangursvísitölur: Norskur bergmálsleiðangur á hrygningarsvæðum í febrúar/mars (NASF, 1988–1989, 1994–1996, 1998–2000, 2005–2008, 2015–2026), Alþjóðlegur vistfræðileiðangur í Austurdjúpi í maí (IESNS) sem nær yfir fullorðna hluta stofnsins í Noregshafi (1996–2026), tveggja ára síld í Barentshafi (1991–2002, 2005–2007, 2009–2019, 2021, 2024 og 2026) og vistfræðileiðangur Noregs og Rússlands í Barentshafi í ágúst-október (BESS, 2004–2025) sem nær yfir útbreiðslu ungsíldar í Barentshafi ásamt tímaseríu frá merkingagögnum (TAGHER rafaldskennimerki: 2017–2025). Kynþroskahlutfall eftir aldri háð stærð árgangs. Fastur náttúrulegur dauði ákvarðaður frá eldri gögnum (settur sem 0.9 fyrir tveggja ára og 0.15 fyrir eldri en tveggja ára).

Nálgun

Viðmiðunarmörk

Gildi

Grundvöllur

MSY nálgun

MSY Btrigger

3

Bpa; í milljónum tonna.

FMSY

0.21

Slembihermanir, að hámarki jafnt FP05.

Varúðarnálgun

Blim

2

Minnsti hrygningarstofn sem gaf af sér sterka nýliðun (1991 árgangurinn); í milljónum tonna.

BPA

3

Byggt á Blim og stofnmatsóvissu. BPA = Blim × exp(1.645 × s), s = 0.147; í milljónum tonna.

FPA

0.21

FP05. F sem leiðir til að hrygningarstofn sé yfir eða jafn Blim með 95% líkum.

Langtímanýtingarstefna

F mgt

0.14

Langtímanýtingarstefna. Athugið að ekki hefur verið fullprófað hvort nýtingarstefnan telst enn varfærin miðað við uppfærð viðmiðunarmörk árið 2025.

SSB mgt_lower

2

Langtímanýtingarstefna.Athugið að ekki hefur verið fullprófað hvort nýtingarstefnan telst enn varfærin miðað við uppfærð viðmiðunarmörk árið 2025. Stærð hrygningarstofns í milljónum tonna.

SSB mgt

3

Langtímanýtingarstefna.Athugið að ekki hefur verið fullprófað hvort nýtingarstefnan telst enn varfærin miðað við uppfærð viðmiðunarmörk árið 2025. Stærð hrygningarstofns í milljónum tonna.

F mgt_lower

0.05

Langtímanýtingarstefna. Athugið að ekki hefur verið fullprófað hvort nýtingarstefnan telst enn varfærin miðað við uppfærð viðmiðunarmörk árið 2025.

Horfur

Norsk-íslensk vorgotssíld. Forsendur fyrir stofnmatsárið og í framreikningum.

Breyta

Gildi

Athugasemdir

F5-12+ (2026)

0.164

Samkvæmt áætluðum afla 2026.

Hrygningarstofn (2027)

3.223

Byggt á stofnmati; í milljónum tonna.

Nýliðun 2 ára (2026)

15.27

Byggt á stofnmati; í milljörðum.

Nýliðun 2 ára (2027)

9.005

Miðgildi slembiútreikninga nýliðunar áranna 1988-2024; í milljörðum.

Afli (2026)

584 025

Samanlagt aflamark veiðiþjóða; í tonnum.

Norsk-íslensk vorgotssíld. Áhrif mismunandi aflamarks. Allar þyngdir eru í tonnum.

Grunnur

Afli

Veiði­dánar­tala

Hrygningar­stofn

% breyting

Líkur á að hrygningar­stofn 2028 < Blim (%)

2027

2027

2028

Hrygningar­stofn1)

Ráðgjöf2)

Afli3)

Samþykkt nýtingarstefna

588 004

0.140

3 341 564

3.7

10

0.70

4.1

Hámarksafrakstur

847 221

0.210

3 119 560

-3.2

59

45

8.3

F=F2026

679 132

0.164

3 267 552

1.4

27

16

5.1

1) Hrygningarstofn árið 2028 miðað við hrygningarstofn árið 2027 (3 223 000 tonn)

2) Ráðlagt aflamark fyrir árið 2027 miðað við ráðlagt aflamark fyrir árið 2026 (533 914 tonn)

3) Afli árið 2027 miðað við áætlaðan afla ICES árið 2026 (419 205 tonn)

Ráðgjöf fyrir árið 2027 er hærri en ráðgjöf ársins 2026 vegna þess að árgangarnir frá 2021 og 2022, sem eru metnir yfir meðalstærð, eru að koma inn í hrygningarstofninn. Áætlað er að hrygningarstofninn verði yfir aðgerðarmörkum nýtingarstefnunnar (Btrigger) í upphafi árs 2027 og því er Fmgt beitt án skerðingar.

Gæði stofnmats

Árgangarnir frá 2021 og 2022 eru báðir metnir yfir meðallagi. Með einu ári til viðbótar af gögnum úr rafaldskennimerkingum (RFID) hefur mat á árganginum frá 2021 verið lækkað en mat á árganginum frá 2022 hækkað lítillega. Hrygningarstofn áranna 2020 og 2021 er nú metinn minni en áður vegna þess að kynþroskahlutfall eftir aldri hefur verið endurreiknað fyrir árgangana frá 2016 og 2017 og reyndist það lægra en áður var gert ráð fyrir.

Nýliðun (2 ára) fyrir árið 2026 er metin yfir meðallagi en það mat er háð mikilli óvissu. Þetta hefur hins vegar óveruleg áhrif á ráðlagðan afla fyrir árið 2027, þar sem árgangurinn verður þá þriggja ára og vegur lítið í veiði- og hrygningarstofni.

Norsk-íslensk vorgotssíld. Núverandi stofnmat (rauð lína) borið saman við stofnmat áranna 2022–2025. Gátmörk og stofnmat voru endurskoðuð árið 2025.

Aðrar upplýsingar

Veiðar úr stofninum hafa verið umfram ráðgjöf síðan árið 2013. Ráðgjöfin byggir á markmiði um fiskveiðidauða í langtímanýtingarstefnu sem Evrópusambandið, Færeyjar, Ísland, Noregur, Bretland og Rússland hafa samþykkt. Í ráðgjöfinni er ekki tekið tillit til frávika frá nýtingarstefnunni, þó að samanlagt einhliða aflamark ríkjanna sýni að slík frávik er reyndin. Við prófanir á nýtingarstefnunni var ekki tekið tillit til þess að afli færi kerfisbundið umfram ráðgjöf (ICES, 2018a). Veiðar umfram ráðgjöf samkvæmt nýtingarstefnunni samræmast því hugsanlega ekki varúðarsjónarmiðum. Þær kunna að auka hættuna á að hrygningarstofn fari undir Blim og að afrakstur minnki til lengri tíma litið.

Nýtingarstefnan hefur ekki verið metin með uppfærðum viðmiðunarmörkum og hermanir taka ekki mið af því að afli sé stöðugt umfram ráðgjöf ICES. Þrátt fyrir það er nýtingarstefnan enn talin viðeigandi fyrir ráðgjöf fyrir árið 2027, þar sem líkur á að hrygningarstofn fari undir Blim árið 2028 eru minni með nýtingarstefnunni (4,1 %) en með MSY-nálgun (8,3 %).

Ráðgjöf, aflmark og afli

Norsk-íslensk síld. Tillögur um hámarksafla, aflamark samkvæmt ákvörðun stjórnvalda og afli (tonn).

Ár

Tillaga ICES

Aflamark Ísland

Afli Íslendinga

Aflamark allra þjóða

Afli alls

2011

1 170 000

145 000

151 074

988 000

992 998

2012

833 000

121 000

120 956

833 000

825 999

2013

619 000

90 000

90 729

692 000

684 743

2014

418 487

61 000

58 828

436 893

461 306

2015

283 013

41 000

42 626

328 206

328 740

2016

316 876

46 000

50 418

376 612

383 174

2017

437 364

103 000

90 400

805 142

721 566

2018

384 197

72 428

83 392

546 448

592 899

2019

588 562

102 174

107 889

773 750

777 165

2020

525 594

91 243

98 173

693 915

720 937

2021

651 033

117 707

114 299

881 097

851 813

2022

598 588

108 225

112 739

827 963

813 798

2023

511 171

90 954

92 197

692 942

680 193

2024

390 010

61 395

62 967

446 928

457 129

2025

401 794

62 491

65 859

435 010

419 857

2026

533 914

83 291

584 025

2027

588 004

Heimildir og ítarefni

Anon. 2018. Agreed record of conclusions of fisheries consultations between Iceland, the European Union, the Faroe Islands, Norway and the Russian Federation on the management of the Norwegian spring-spawning (Atlanto-Scandian) herring stock in the North-East Atlantic in 2019. London, 6 November 2018. 6 pp. sjá skýrslu hér

Anon. 2020. Agreed record of conclusions of fisheries consultations between Norway, the European Union, the Faroe Islands, Iceland, the Russian Federation and the United Kingdom on the management of the Norwegian spring-spawning (Atlanto-Scandian) herring in the North-East Atlantic in 2021. Video-conference, 20-21 October 2020. 7 pp. sjá skýrslu hér

ICES. 2016. Report of the Benchmark Workshop on Pelagic Stocks (WKPELA), 29 February-4 March 2016, ICES Headquarters, Copenhagen, Denmark. ICES CM 2016/ACOM:34. 106 pp. https://doi.org/10.17895/ices.pub.5581

ICES. 2018a. Report of the Workshop on a long-term management strategy for Norwegian Spring-spawning herring (WKNSSHMSE), 26-27 August 2018, Torshavn, Faroe Islands. ICES CM 2018/ACOM:53. 113 pp. https://doi.org/10.17895/ices.pub.5583.

ICES. 2018b. Report of the Workshop on the determination of reference points for Norwegian Spring Spawning Herring (WKNSSHREF), 10-11 April 2018, ICES Headquarters, Copenhagen, Denmark. ICES CM 2018/ACOM:45. 83 pp. https://doi.org/10.17895/ices.pub.5582

ICES. 2025a. Benchmark workshop on Mackerel and Norwegian spring-spawning herring (WKBMACNSSH). ICES Scientific Reports. 7:64. 509 pp. https://doi.org/10.17895/ices.pub.29279615

ICES. 2025b. Working Group on Widely Distributed Stocks (WGWIDE). ICES Scientific Reports. 6:81. https://doi.org/10.17895/ices.pub.30233824

ICES. 2025c. Herring (Clupea harengus) in subareas 1, 2, 5, and divisions 4.a and 14.a, Norwegian spring-spawning herring (the Northeast Atlantic and Arctic Ocean). In Report of the ICES Advisory Committee, 2025. ICES Advice 2025, her.27.1-24a514a. https://doi.org/10.17895/ices.advice.27202611

Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2026. Norsk-íslensk vorgotsíld . Hafrannsóknastofnun, 30. september 2026.