Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, er ein stærsta rannsóknastofnun landsins.
Höfuðstöðvar stofnunarinnar eru að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði en að auki heldur stofnunin úti átta starfstöðvum vítt og breitt um landið, þar á meðal tilraunaeldisstöð í Grindavík, og tveimur rannsóknaskipum.

Mikill hluti starfseminnar tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar
hafrannsóknastofnanir og háskóla og hefur Hafrannsóknastofnun að jafnaði um 210 starfsmenn í þjónustu sinni.
Haf og fiskrannsóknir á Íslandi eiga sér langa sögu. Lög um Hafrannsóknastofnun voru sett árið 1965. Fimmtíu árum síðar samþykkti Alþingi lög um sameiningu Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar, stofnunar sem á sér einnig merka sögu, og rekja má aftur til ársins 1945. Stofnunin tók til starfa árið 2016 í núverandi mynd og sinnir fjölbreyttum verkefnum sem skilgreind eru í lögum nr. 112/2015 en meginhlutverk stofnunarinnar er að stuðla að sjálfbærri nýtingu á auðlindum í hafi, ám og vötnum.
Vöktunarverkefni eru lykilþættir starfseminnar en þar eru einnig stundaðar fjölbreyttar rannsóknir sem ýmist má flokka undir grunnrannsóknir eða þjónusturannsóknir. Stofnunin gegnir jafnframt mikilvægu hlutverki við ráðgjöf og umsagnir.
Hafrannsóknastofnun heyrir undir atvinnuvegaráðuneytið.