Stefna Hafrannsóknastofnunar um notkun gervigreindar
Tilgangur
Hafrannsóknastofnun nýtir gervigreind (AI) á ábyrgan hátt til að efla vísindi, náttúruvernd og stjórnsýslu. Stefna stofnunarinnar byggir á gagnsæi, áreiðanleika og siðferðislegum gildum, þar sem mannleg dómgreind hefur ávallt úrslitaáhrif þegar þörf krefur.
Skilgreiningar
Gervigreind (AI): Kerfi sem geta framkvæmt verkefni sem venjulega krefjast mannlegrar greindar, s.s. mynsturgreiningu, tölfræðigreiningu, spálíkön og tungumálavinnslu.
Þröng gervigreind: Sérhæft vélarnám (e. machine learning) sem leysir afmörkuð verkefni með sjálfvirkri aðlögun.
Breið gervigreind: Flóknari djúptauganet og stór mállíkön sem geta unnið úr fjölbreyttum og flóknum verkefnum.
Viðkvæmar upplýsingar: Gögn með persónugreinanlegum eða umhverfis- upplýsingum sem geta haft áhrif á stefnumótun eða verndun.
Sannprófun: Ferli við að staðfesta að greiningar og niðurstöður séu réttmætar og áreiðanlegar.
Gildissvið
Stefnan nær til allrar notkunar gervigreindar hjá Hafrannsóknastofnun, í rannsóknum, gagnavinnslu, stjórnsýslu og þjónustu. Hún gildir fyrir allt starfsfólk, verktaka og aðra aðila í samstarfi við stofnunina.
Meginreglur
Vísindaleg ábyrgð og gagnsæi
- Notkun gervigreindar skal byggja á traustum og gegnsæjum aðferðum sem auðvelda rekjanleika niðurstaðna.
- Gervigreind skal nýtt til að efla vísindastarf en ekki til að draga úr faglegri ábyrgð sérfræðinga.
Gæði gagna og gagnavinnsla
- Gögn sem mötuð eru í gervigreind skulu vera rétt og heildstæð.
- Sérstök áhersla skal lögð á rétta meðferð viðkvæmra gagna, þar með talið umhverfisupplýsinga og líffræðilegra gagna sem geta haft áhrif á hversskonar ráðgjöf, stefnumótun eða náttúruvernd.
- Gagnavinnsla með gervigreind skal unnin í öruggu og aðgengilegu umhverfi.
Persónuvernd og öryggi
- Öll notkun gervigreindar skal samræmast lögum um persónuvernd og upplýsingatækniöryggi.
- Sérstök áhersla skal lögð á verndun persónuupplýsinga í rannsóknum og gagnasöfnum.
Mannleg íhlutun og ábyrgð
- Gervigreind skal ekki koma í stað mannlegrar dómgreindar.
- Starfsfólk ber ávallt ábyrgð á túlkun og notkun niðurstaðna sem byggja á gervigreind.
Siðferði og jafnrétti
- Notkun gervigreindar skal byggjast á siðferðislegum grunni og stuðla að jafnrétti og hlutleysi.
- Forðast skal að nýting gervigreindar endurspegli, styrki eða veiki skekkjur í gögnum eða samfélagslegum viðhorfum.
Upplýsingaskylda og tilvísun
- Notkun gervigreindar skal alltaf vera skýr og merkjanleg í skýrslum og opinberum skjölum. Tilvísanir skulu vera rekjanlegar og framsettar með skiljanlegum hætti sem greina á milli vélar og manna.
- Niðurstöður úr vinnu gervigreindar skal skoða gaumgæfilega með tilliti til ritstuldar til að forðast brot á höfundarréttarlögum.
Notkun gervigreindar skal ávallt vera skýr og merkjanleg í skýrslum og opinberum skjölum. Tilvísanir skulu vera rekjanlegar og framsettar með skiljanlegum hætti sem greina á milli vélar og manna.
Fræðsla og hæfni
Hafrannsóknastofnun skal tryggja að starfsfólk fái viðeigandi fræðslu og þjálfun í notkun gervigreindar, með áherslu á gagnagreiningu, siðferðisleg álitamál og tæknilega hæfni.
Endurskoðun og þróun
Stefnan skal endurskoðuð reglulega í ljósi tækniframfara, breytinga á lögum og þróunar í vísindalegum og siðferðislegum viðmiðum. Endurskoðun skal fara fram að lágmarki annað hvert ár.