Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði hafs- og vatnarannsókna og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna og í fiskeldi. Hún heyrir undir atvinnuvegaráðuneytið.
Hluti starfseminnar tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar hafrannsóknastofnanir og háskóla. Stofnunin rekur auk aðalstöðva í Hafnarfirði starfsstöðvar vítt og breytt um landið, tilraunaeldisstöð, tvö rannsóknaskip og hefur um það bil 210 starfsmenn í þjónustu sinni.
Gildi Hafrannsóknastofnunar eru: Þekking - Samvinna - Þor
