Kolbeinseyjarhryggur og aðliggjandi svæði

Kolbeinseyjarhryggur, Eyjafjarðaráll, Skjálfandadjúp, Skjálfandi og Öxarfjörður.

Mælingár: 2002 og 2004.

Fjölgeislamælingar árið 2002 voru samvinnuverkefni Hafrannsóknastofnunar, Orkustofnunar og Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands. Mælt var í Eyjafjarðarál, á Kolbeinseyjarhrygg (norður fyrir Kolbeinsey), í Skjálfandadjúpi og á Skjálfanda.

Fjölgeislamælingar árið 2004 voru gerðar að tilhlutan Raunvísindastofnunar HÍ í leiguverkefni Þjóðverja, á rs. Árna Friðrikssyni. Þá var bætt við mælingu á Kolbeinseyjarhrygg, í Skjálfandadjúpi og í Öxarfirði.

Úrvinnsla: Hreinsun fjölgeislagagna var gerð í Caris hugbúnaði með 20 x 20 m reitun í vörpun ISN2004.

Fjölgeislagögn:
1. Þjöppuð textaskrá (breidd, lengd, dýpi):        -sækja hluta 1, -sækja hluta 2
2. Raster skrá, geotiff mynd:                         -sækja

Fjölgeislagögnin eru ekki unnin með tilliti til þess að notast sem siglingakort.

Heimilt er að birta fjölgeislagögn eða -kort sem fengin eru af þessari vefsíðu sé uppruna þeirra getið með eftirfarandi texta: Byggt á gögnum frá Hafrannsóknastofnun.

mynd af Kolbeinseyjarhrygg

Smelltu á myndina til að fá stærri útgáfu dýptarkorts.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?