Kolmunni Micromesistius poutassou

Ráðgjöf 2027

1 064 191

tonn

Ráðgjöf 2026

851 344

tonn

Breyting á ráðgjöf

25 %

Birting ráðgjafar: 30. september 2026. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.


Ráðgjöf

Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) ráðleggur í samræmi við langtímanýtingarstefnu Bretlands, Evrópusambandsins, Færeyja, Íslands og Noregs að afli ársins 2027 verði ekki meiri en 1064191 tonn.

Stofnþróun

Veiðidánartala er metin yfir kjörsókn (FMSY) og gátmörkum (Fpa). Stærð hrygningarstofns er metinn yfir aðgerðarmörkum (MSY Btrigger), gátmörkum (Bpa) og varúðarmörkum (Blim).

Kolmunni. Heildarafli og afli Íslendinga, nýliðun 1 árs, veiðidánartala og stærð hrygningarstofns. Skyggð svæði og öryggisbil sýna 95 % öryggismörk. Afli fyrir árið 2026 er metinn. Áætluð nýliðnun fyrir árið 2026 er sýnd í ljósari lit. Stærð hrygningarstofns fyrir árið 2026 er metin með stofnmatslíkani þar sem áætluð nýliðun fyrir árið 2026 er notuð.

Stofnmat og gátmörk

Forsendur ráðgjafar

Langtímanýtingarstefna

Aflaregla

Langtímanýtingarstefna samþykkt af Evrópusambandinu, Færeyjum, Íslandi og Noregi, og síðast af Bretlandi árið 2021 (Anon 2021). Nýtingarstefnan stenst varúðarsjónarmið ICES (ICES 2016, 2017).

Stofnmat

Tölfræðilegt aldurs-aflalíkan (SAM)

Inntaksgögn

Aldursgreindur afli og bráðabirgða aldursgreindur afli janúar-júní fyrir úttektarárið. Vísitala úr stofnmælingaleiðangri á hrygningarslóð að vorlagi (IBWSS) sem gefur vístölu fyrir 1–8 ára fisk árlega frá 2004–2026, fyrir utan árin 2010 og 2020. Kynþroskahlutfall eftir aldri var metið árið 1994 fyrir allt útbreiðslusvæði stofnsins og hefur verið notað síðan. Stofnþyngdir byggðar á þyngd eftir aldri úr aflagögnum þar á meðal fyrri hluta ársins, janúar-júní, sem stofnmatið er gert. Fastur náttúrulegur dauði er 0.2 óháður aldri og var ákvarðaður frá aldursamsetningu stofnsins áður en veiðar hófust á níunda áratug síðustu aldar.

Nálgun

Viðmiðunarmörk

Gildi

Grundvöllur

Hámarksafrakstur

MSY Btrigger

2 250 000

BPA

FMSY

0.32

Slembihermanir

Varúðarnálgun

Blim

1 500 000

Um það bil minnsta sögulega metna stærð hrygningarstofns sem gaf góða nýliðun (Bloss)

BPA

2 250 000

BPA = Blim × exp(1.645 × s), s = 0.246

FPA

0.32

FP05; Veiðidánartala sem gefur 95 % líkur á að hrygningarstofn sé yfir > Blim

Langtímanýtingarstefna

SSBmgt_lower

1 500 000

Blim

SSBmgt

2 250 000

BPA

Fmgt_lower

0.05

Mjög lágt F

Fmgt

0.32

FMSY

Horfur

Kolmunni Forsendur fyrir stofnmatsárið og í framreikningum.

Breyta

Gildi

Athugasemdir

F3–7  ára (2026)

0.4

Samkvæmt stofnmati og byggt á áætluðum afla fyrir 2026.

Hrygningastofn (2027)

5 060 667

Samkvæmt framreikningi fyrir 2027; í tonnum.

Nýliðun 1 árs (2026)

39 366 774

hundraðshlutamörk af faldmeðaltali (1996–2024); í þúsundum.

Nýliðun 1 árs (2027–2028)

22 790 977

Faldmeðaltal (1996–2025); í þúsundum.

Heildarafli (2026)

1 110 513

Samanlagt aflamark ársins 2026 eins og það er metið af ICES; í tonnum.

Kolmunni. Áætluð þróun stofnstærðar hrygningarstofns (tonn) miðað við veiðar samkvæmt aflareglu. Áhrif mismunandi aflamarks.

Grunnur

Afli (2027)

Veiðidánartala (2027)

Hrygningarstofn (2028)

% Breyting á hrygningarstofni1)

% Breyting á afla2)

% Breyting á ráðgjöf3)

Langtímanýtingarstefna: Afli2027 = ráðgjöf2026 + 25 %

1 064 191

0.30

5 585 532

10.4

-4.2

25

Langtímanýtingarstefna: F = Fmgt

1 112 531

0.32

5 540 154

9.5

0.2

31

F=F2026

1 351 452

0.40

5 316 586

5.1

22.0

59

1) Hrygningarstofn árið 2028 miðað við hrygningarstofn 2027

2) Ráðlagt aflamark fyrir 2027 miðað við áætlaðan afla 2026 (1 110 513 t)

3) Ráðlagt aflamark fyrir 2027 miðað við ráðlagt aflamark 2026 (851 344 t)

Ráðlagt aflamark fyrir árið 2027 er 25 % hærra en fyrir árið 2026. Fyrir því eru þrjár ástæður: hrygningarstofninn árið 2027 er metinn stærri en árið 2026; hrygningarstofn síðustu ára er nú metinn stærri en í stofnmatinu 2025; sterkur árgangur frá 2024 gengur inn í stofninn. Í samræmi við langtímanýtingarstefnu var aukning í aflamarki milli ára takmörkuð við 25 %.

Gæði stofnmats

Stofnmatið í ár sýnir að fiskveiðidauði síðustu ára er nú metinn minni en áður, en nýliðun meiri og hrygningarstofn stærri. Þessar breytingar stafa af því að hlutfall eins árs kolmunna í afla árið 2025 var hærra í endanlegum aflatölum (13 %) en í bráðabirgðaaflatölunum (5 %) sem notaðar voru í stofnmati síðasta árs. Auk þess mældist árgangurinn frá 2024 lítill sem eins árs fiskur í stofnmælingunni (IBWSS) árið 2025, en tiltölulega stór sem tveggja ára fiskur árið 2026. Það stuðlaði einnig að hækkun á mati nýliðunar ársins 2025.

Stofnmatið í ár metur nýliðun ársins 2026 (1 árs) 24,7 milljarða og byggir það mat á vísitölu nýliðunar úr stofnmælingu. Það er aðeins yfir langtíma faldmeðaltali nýliðunar (22,8 milljarðar) en undir metinni nýliðun ársins 2025 (38,7 milljarðar). Vísitölur úr öðrum leiðöngrum árið 2026, sem ekki eru notaðar í stofnmatinu, benda hins vegar til betri nýliðunar árið 2026 en árið 2025. Þess vegna var ákveðið að nota 75. hundraðshlutamark langtíma faldmeðaltals nýliðunar (39,4 milljarðar) fyrir árið 2026 í framreikningum í stað nýliðunar samkvæmt stofnmatinu, eins og áður hefur verið gert við svipaðar aðstæður fyrir þennan stofn (ICES, 2014).

Kolmunni. Núverandi stofnmat (rauð lína) borið saman við stofnmat áranna 2022–2025

Aðrar upplýsingar

Veiðar úr stofninum hafa verið umfram ráðgjöf síðan árið 2018 vegna einhliða ákvarðana veiðiríkja um aflamark. Ráðgjöfin byggir á veiðidánartölu samkvæmt samþykktri langtímanýtingarstefnu strandríkja að stofninum. Við prófanir á nýtingarstefnunni var ekki tekið tillit til þess að afli væri kerfisbundið umfram ráðgjöf (ICES, 2016a). Veiðar umfram ráðgjöf samkvæmt nýtingarstefnunni eða MSY-nálgun samræmast því hugsanlega ekki varúðarsjónarmiðum. Þær kunna að auka hættuna á að hrygningarstofn fari undir Blim og að afrakstur minnki til meðallangs og langs tíma.

Árgangarnir frá 2020 og 2021 eru metnir meðal þeirra stærstu frá upphafi tímaraðarinnar og voru báðir að fullu komnir inn í veiðina árið 2026. Árið 2027 munu veiðarnar enn að nokkru byggja á þeim, en áætlað er að árgangurinn frá 2020 verði 10 % aflans og árgangurinn frá 2021 um 21 %. Áætlað er að árgangurinn frá 2024 verði stærsti einstaki árgangurinn í afla ársins 2027, með 23 % hlutdeild. Saga stofnsins sýnir að komi litlir árgangar í kjölfar stórra getur hrygningarstofninn minnkað hratt, og það leiðir til lægri ráðgjafar.

Í stofnmatinu í ár eru árgangarnir frá 2022 og 2023 metnir litlir og árgangurinn frá 2024 stór. Nýliðunarvísitölur úr leiðöngrum sem ekki eru notaðir í stofnmatinu benda hins vegar til þess að árgangurinn frá 2025 sé stærri en árgangarnir frá 2022 og 2023, og jafnvel stærri en árgangurinn frá 2024, en þó minni en stóru árgangarnir frá 2020 og 2021.

Ráðgjöf, aflamark og afli

Kolmunni. Tillögur um hámarksafla, aflamark samkvæmt ákvörðun stjórnvalda og afli (tonn).

Ár

Tillaga

Aflamark Ísland

Afli Íslendinga

Aflamark allra þjóða

Afli alls

1987

950 000

1988

832 000

1989

630 000

1990

600 000

1991

670 000

1992

1993

490 000

1994

485 000

650 000

1995

518 000

369

650 000

578 905

1996

500 000

501

650 000

645 982

1997

540 000

10 646

672 437

1998

650 000

68 681

1 128 969

1999

650 000

160 425

1 256 228

2000

800 000

260 938

1 412 927

2001

628 000

365 099

1 780 170

2002

0

282 000

286 430

1 556 792

2003

600 000

318 000

501 496

2 321 406

2004

925 000

713 000

422 078

2 380 161

2005

1 075 000

345 000

265 515

2 034 309

2006

1 500 000

352 600

314 768

2 100 000

1 976 176

2007

980 000

299 710

237 854

1 847 000

1 625 255

2008

835 000

202 836

163 793

1 250 000

1 260 615

2009

384 000

95 739

120 202

606 000

641 818

2010

540 000

87 625

87 908

548 000

526 357

2011

223 000

6 507

5 882

40 000

103 620

2012

391 000

63 447

63 056

391 000

384 021

2013

643 000

104 339

104 918

643 000

628 169

2014

948 950

194 722

182 879

1 200 000

1 155 279

2015

839 886

202 958

214 870

1 260 000

1 396 244

2016

776 391

163 570

186 914

1 147 000

1 183 187

2017

1 342 330

264 000

228 935

1 675 400

1 558 061

2018

1 387 872

275 971

292 952

1 727 964

1 711 477

2019

1 143 629

226 727

268 351

1 483 208

1 515 527

2020

1 161 615

230 111

243 725

1 478 358

1 495 248

2021

929 292

196 081

190 147

1 157 604

1 143 450

2022

752 736

174 557

191 813

752 736

1 038 736

2023

1 359 629

273 442

292 853

1 359 629

1 737 098

2024

1 529 754

309 524

321 572

1 529 754

1 816 792

2025

1 447 054

293 287

286 760

1 447 054

1 110 513

2026

851 344

186 157

851 344

2027

1 064 191

Heimildir og ítarefni

Anon 2021. Agreed record of conclusions of fisheries consultations between the European Union, the Faroe Islands, Iceland, Norway and UK on the management of blue whiting in the north-east Atlantic in 2022.

ICES. 2014. Blue whiting in Subareas I–IX, XII, and XIV. In Report of the ICES Advisory Committee, 20214. ICES Advice 2014, Book 9, whb-comb. https://doi.org/10.17895/ices.advice.27202938

ICES. 2016. Report of the Workshop on Blue Whiting (Micromesistius poutassou) Long Term Management Strategy Evaluation (WKBWMS), 30 August 2016, ICES HQ, Copenhagen, Denmark. ICES CM 2016/ACOM:53. 104 pp.

Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2026. Kolmunni. Hafrannsóknastofnun, 30. september 2026.

ICES. 2026a. Blue whiting (Micromesistius poutassou) in subareas 1–9, 12, and 14 (Northeast Atlantic and adjacent waters). In Report of the ICES Advisory Committee, 2026. ICES Advice 2026, whb.27.1-91214, https://doi.org/10.17895/ices.advice.30932450

ICES. 2026b. Working Group on Widely Distributed Stocks (WGWIDE). ICES Scientific Reports.