Rannsókn um endurvöxt klóþangs í Breiðafirði

Þangskurður. Mynd: Svanhildur Egilsdóttir Þangskurður. Mynd: Svanhildur Egilsdóttir

Á dögunum birtist grein eftir starfsmenn Hafrannsóknastofnunar þar sem fylgst var með endurvexti klóþangs eftir skurð í Breiðafirði. Klóþang hefur verið nýtt í Breiðafirði í um 50 ár og aðallega skorið með þangskurðarprömmum. Við uppsetningu rannsóknar á endurvexti klóþangs eftir skurð aðstoðaði Þörungaverksmiðjan á Reykhólum við skurð á tilraunareitum á fjórum mismunandi svæðum. Til samanburðar voru svo tveir ósnertir reitir sinn hvoru megin við hvern tilraunareit.

Rannsóknin stóð yfir í 5 ár, frá 2016 – 2021, þar sem lífmassi, stærð og þekja klóþangs var mæld árlega. Þekja klóþangs var búin að ná sér innan 3ja ára, lífmassi innan 5 ára en stærð plantna var hins vegar ekki orðin sambærileg því sem hún var fyrir skurð, eftir 5 ára endurvöxt.

Hlutfallslega var mest uppskorið af klóþangi um miðja fjöruna, milli 35% og 66%, en mikill breytileiki var á milli svæða í því hve mikið var skorið. Þar ræður mestu landslag og botngerð fjörunnar en oft veita stórir steinar skjól fyrir skurðinum og þar geta stórar plöntur staðið eftir.

Hægt er að lesa ágrip af greininni á ensku hér fyrir neðan og hlekkur á greinina er hér.
Mynd frá Breiðafirði: Lilja Gunnarsdóttir.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?