Hafrannsóknastofnun hefur hlotið bronsdekk Umhverfis- og orkustofnunar fyrir árangur í orkuskiptum í bílaflota stofnunarinnar. Viðurkenningin er hluti af eftirfylgni við aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Þar er stefnt að því að ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki ljúki orkuskiptum í fólks- og sendibifreiðaflota sínum fyrir árslok 2029.
Samkvæmt upplýsingum frá Samgöngustofu á Hafrannsóknastofnun 17 bifreiðar. Af þeim eru átta rafmagnsbílar og níu ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Hlutfall orkuskipta er því 47,1%, sem er vel yfir 30% viðmiðinu fyrir bronsdekk og vantar ekki nema 12% í að fá silfurdekkið.
Umhverfis- og orkustofnun heldur utan um stöðu orkuskipta í bílaflota ríkisins og veitir viðurkenningar eftir hlutfalli orkuskipta: bronsdekk fyrir 30%, silfurdekk fyrir 60%, gulldekk fyrir 90% og platínudekk fyrir 100%. Markmiðið nær einnig til aðkeyptrar samgönguþjónustu, svo sem leigubíla og bílaleigubíla.
Orkuskiptin eru þó aðeins einn hluti af stærri mynd. Hafrannsóknastofnun hvetur starfsfólk sitt einnig til að nýta vistvænar samgöngur til og frá vinnu. Stofnunin býður upp á samgöngusamninga og fyrirmyndaraðstöðu fyrir reiðhjól. Þar er líka þurrkklefi fyrir útifatnað, svo auðveldara sé að ganga eða hjóla í vinnuna, sama hvernig viðrar.
Orkuskipti ríkisflotans eru sameiginlegt verkefni og Hafrannsóknastofnun ætlar sér að halda áfram á sömu braut. Næsti áfangi er silfurdekkið.
Hægt er að kynna sér stöðu orkuskipta í ríkisflotanum á vef Umhverfis- og orkustofnunar.