Svifbauja á sigurbraut: Icebreakers frá Höfn sigruðu í Stóru LEGO-keppninni

Sigurliðið: Icebreakers Sigurliðið: Icebreakers

Þrír sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar veittu nemendum og sigurvegurunum Icebreakers ráðgjöf við nýsköpunarverkefnið þeirra, Svifbaujuna. Liðið, sem kemur frá Grunnskóla Hornafjarðar, bar sigur úr býtum í Stóru LEGO-keppni grunnskólanna. Keppnin ber heitið FIRST LEGO League Ísland, og fór fram í Háskólabíói sl. helgi. Starfsfólk Hafrannsóknastofnunar samgleðst liðinu innilega.

Svif er undirstaða lífsins í sjónum

Þema keppninnar í ár var lífljómi (BIOGLOW) og tengdist líffræðilegri fjölbreytni og tengslum lífvera í vistkerfum. Icebreakers vildu tengja verkefnið sitt nærumhverfinu og byrjuðu því að kynna sér hafið. Þar komust þau að því að svif skiptir mun meira máli en flestir átta sig á. Svif er undirstaða fæðuvefs sjávar, stórhveli á borð við hnúfubak, langreyði og steypireyði lifa á því og plöntusvif framleiðir um helming alls súrefnis á jörðinni.

Þannig kviknaði hugmyndin að Svifbaujunni, bauju sem fylgist með svifi í sjónum. Baujan á að mæla birtu, hitastig, seltu og grugg, sem öll hafa áhrif á vöxt plöntusvifs. Hún á líka að taka myndir og vatnssýni svo hægt sé að fylgjast með þróun svifsins. Með slíkri vöktun má greina breytingar í hafinu, meðal annars þær sem tengjast hlýnun og súrnun sjávar.

Ráðgjöf frá sérfræðingum

Þegar hugmyndin var komin leituðu nemendurnir til sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar; þeirra Söru Harðdardóttur svifþörungafræðings, Andreas Macrander haffræðings og Erin Kathleen Redmond doktorsnema. Þau funduðu á Teams og gáfu sérfræðingarnir nemendum frá Höfn góð ráð um baujuna, meðal annars um mælibúnað sem stofnunin notar í straumlögnum og baujum. Að auki kom sigurliðið í stutta heimsókn á Hafrannsóknastofnun skömmu fyrir keppnina.

Krakkarnir fengu meðal annars þær ábendingar að hafið úti fyrir Höfn gæti hentað vel sem rannsóknarsvæði, frá vori fram á haust, að vert væri að skoða flúrljómunar- og gruggmælingar og að senda gögn í rauntíma og að huga þyrfti að öldugangi, straumum, tæringu, festingum og skipaumferð

Sterk heildarframmistaða

Liðin voru metin út frá nýsköpunarverkefni, hönnun og forritun vélmennis, frammistöðu í vélmennakappleik og liðsheild. Icebreakers hlutu fyrstu verðlaun fyrir bestu liðsheildina og Svifbaujan lenti í 4. sæti af 21 í nýsköpunarflokki. Þegar stig úr öllum þáttum keppninnar voru tekin saman stóð liðið uppi sem sigurvegari. Alls tóku 21 lið frá 17 grunnskólum þátt, nærri 200 nemendur úr skólum víðsvegar af landinu.

Icebreakers fengu bikar úr LEGO-kubbum og 300.000 krónur í verðlaunafé. Liðinu býðst einnig að taka þátt í alþjóðlegum mótum FIRST LEGO League og það stefnir á að halda áfram.

Sunna Guðmundsdóttir og Jón Guðni Sigurðsson, kennarar við Grunnskóla Hornafjarðar, héldu utan um hópinn í keppninni. Þau segja aðstoðina og áhugann sem starfsfólk Hafrannsóknastofnunar sýndi krökkunum hafa verið afar mikilvægan en gleði og samkennd starfsfólks Hafró sem kom að verkefninu var engu minni.

Við óskum Icebreakers innilega til hamingju!

Nánar má lesa um keppnina í frétt Háskóla Íslands.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?