Nokkrir vefir Hafró lokaðir tímabundið vegna öryggisveikleika

Nokkrir vefir Hafró lokaðir tímabundið vegna öryggisveikleika

Nýlega var greint frá alvarlegum öryggisveikleikum í PHP, forritunarmáli sem fjöldi vefsíðna um allan heim byggir á. CERT-IS, netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, hefur hvatt stofnanir til að takmarka aðgang að viðkvæmum kerfum eða taka þau niður.

Af þessum sökum eru nokkrir vefir Hafrannsóknastofnunar lokaðir tímabundið. Unnið er að lausn málsins og verður upplýst um framvindu hér á vef stofnunarinnar.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?