Makríll Scomber scombrus
Birting ráðgjafar: 30. september 2026. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.
Ráðgjöf
Alþjóðahafrannsóknaráðið ráðleggur, í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið (MSY), að afli ársins 2027 verði ekki meiri en 352938 tonn.
Stofnþróun
Veiðidánartala er metin yfir kjörsókn (FMSY) og gátmörkum (FPA). Stærð hrygningarstofns er metin undir aðgerðarmörkum (MSY Btrigger) og gátmörkum (BPA) en yfir varúðarmörkum (Blim).
Makríll. Niðurstöður stofnmats. Afli árin 1998 og 1999 hefur lítið vægi í stofnmati þar sem talið er að skráður afli sé einungis hluti af raunverulegum afla. Skyggð svæði og öryggisbil sýna 95 % öryggismörk.
Stofnmat og viðmiðunarmörk
Forsendur ráðgjafar | Hámarksafrakstur |
Aflaregla | Engin langtíma nýtingarstefna hefur verið samþykkt af öllum makrílveiðiþjóðum |
Stofnmat | Tölfræðilegt aldurs-aflalíkan (SAM) |
Inntaksgögn | Aldursgreindur afli, merkingagögn (stálmerki: 1998–2006) og vísitölur úr þremur stofnmælingaleiðöngrum: vísitala hrygningarstofns úr eggjaleiðangri sem farinn er á þriggja ára fresti (1992–2025), vísitölur fyrir 2–11 ára fisk frá endurheimtum á rafeindamerkjum (2013–2025), og fyrir 2 ára (2018–2026) og 3–11 ára (2010 og 2012–2026) fisk frá uppsjávarvistfræðileiðangri að sumri (IESSNS). Aflatölur fyrir árið 2000 hafa lítið vægi í stofnmati. Þyngd eftir aldri í stofninum er uppfærð árlega útfrá aflasýnum og sýnum úr leiðöngrum (eggjaleiðangur og merkingar) fyrir kynþroska fisk á hrygningartíma. Náttúruleg afföll og kynþroskahlutfall eru háð aldri og föst á milli ára. |
Nálgun | Viðmiðunarmörk | Gildi | Grundvöllur |
|---|---|---|---|
Hámarksafrakstur | MSY Btrigger | 4 119 337 | BPA; í tonnum |
FMSY | 0.191 | Slembihermanir, takmarkast af FPA | |
Varúðarnálgun | Blim | 3 067 017 | Sögulega minnsta stærð hrygningarstofns sem gaf góða nýliðun (2002, 2004, 2005) (ICES, 2025), í tonnum |
BPA | 4 119 337 | Blim × exp (1.65 × σ), σ = 0.179, í tonnum | |
FPA | 0.191 | Veiðidánartala sem gefur 95% líkur á að hrygningarstofn sé yfir Blim (FP05 samkvæmt ráðgjafarreglu) |
Horfur
Makríll. Forsendur fyrir stofnmatsárið og í framreikningum.
Breyta | Gildi | Athugasemdir |
|---|---|---|
F4–8 ára (2026) | 0.167 | Samkvæmt framreikningi og byggt á áætluðum afla fyrir 2026 |
Hrygningastofn (2026) á hrygningartíma | 3 204 507 | Samkvæmt framreikningi fyrir 2026; í tonnum |
Nýliðun 2 ára (2027–2028) | 4 787 144 | Slembiúrtak af nýliðun frá árunum 2017–2026 (faldmeðaltal sýnt); í þúsundum |
Heildarafli (2026) | 398 186 | Áætlaður afli og brottkast (gert ráð fyrir flutningi aflamarks frá árinu 2025), í tonnum |
Makríll. Áætluð þróun stofnstærðar (tonn) miðað við veiðar samkvæmt aflareglu.
Grunnur | Afli | Veiðidánartala | Hrygningarstofn | % breyting | Líkur á að hrygningarstofn 2028 < Blim (%) | |||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
2027 | 2027–2028 | 2027 | 2028 | Hrygningarstofn1) | Afli2) | Ráðgjöf3) | ||
Hámarksafrakstur | 352 938 | 0.149 | 3 135 352 | 3 345 872 | 6.7 | -11 | 102 | 33 |
Hrygningarstofn2028 = Blim | 675 632 | 0.309 | 3 069 021 | 3 068 002 | -0.03 | 70 | 288 | 50 |
F = F2026 | 392 517 | 0.167 | 3 127 869 | 3 312 345 | 5.9 | -1.4 | 125 | 35 |
1) Hrygningarstofn árið 2028 miðað við hrygningarstofn árið 2027 | ||||||||
2) Afli árið 2027 miðað við áætlaðan afla árið 2026 (352 938 t) | ||||||||
3) Ráðlagt aflamark fyrir árið 2027 miðað við ráðlagt aflamark árið 2026 (174 357 t) | ||||||||
Vegna bættrar nýliðunar árið 2026 (2024 árgangurinn) og hækkunar á stofnþyngdum er hrygningarstofninn árið 2026 metinn yfir varúðarmörkum. Ráðgjafarreglan leyfir því hærri veiðidánartölu í ráðgjöfinni fyrir árið í ár (F2027 = 0.15) samanborið við síðasta ár (F2026 = 0.07). Ráðlagt aflamark fyrir árið 2027 er því 102 % hærra í ár en fyrir árið 2026.
Gæði stofnmats
Stofnmatið í ár er í samræmi við stofnmats seinasta árs. Fiskveiðidauði er þó metinn lægri. Vænta má slíkra leiðréttinga því líkanið er byggir m.a. á tveimur stuttum gagnaröðum (merkingargögnum og nýliðunarvísitölu) sem hafa mikið vægi.
Mat á árganginum frá 2024 byggir eingöngu á vísitölu 2 ára úr sumarleiðangri (IESSNS). Það má búast við því að matið á stærð árgangins breytist þegar fleiri mælingar, sérstaklega úr afla, verða tiltækar á komandi árum.
Endanleg vísitala hrygningarstofns úr eggjaleiðangrinum 2025 er nú metin 13 % lægri en þær bráðabirgðaniðurstöður ársins 2025 gáfu til kynna. Þessi breyting hafði ekki áhrif á niðurstöður stofnmatsins árið 2026.
Makríll. Samanburður á stofnmati áranna 2022–2026 (rauð lína: 2026).
Aðrar upplýsingar
Veiðar úr stofninum hafa að meðaltali verið 39 % umfram ráðgjöf síðan 2010 vegna einhliða ákvarðana veiðiþjóða um aflamark. Stofninn er metinn yfir varúðarmörkum (Blim) árið 2026 en er enn undir aðgerðarmörkum (MSY Btrigger). Ráðgjöfin er samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið (MSY) og ætti að leiða til þess að hrygningarstofn sé yfir aðgerðarmörkum (MSY Btrigger) til meðallangs tíma. Ef afli er umfram þessa ráðgjöf eykur það hættu á að stærð hrygningarstofns haldist áfram undir aðgerðarmörkum (MSY Btrigger).
Eftir greiningar á breytileika nýliðunar stofnsins á árunum 2004–2026 var ákveðið að nota árin 2017–2026 til að áætla nýliðun í framreikningum. Það tímabil endurspeglar núverandi ástand sem einkennist af lítilli nýliðun (ICES, 2026b).
Í samræmi við óskir Bretlands, Noregs, Íslands, Grænlands og Færeyja gerði Alþjóðahafrannsóknaráðið prófanir á aflareglum sem miða að enduruppbyggingu hrygningarstofnsins (ICES, 2026c). Prófanir á aflareglunum byggja á hermunum sem eru frábrugðnar þeim sem notaðar eru í ráðgjöf. Þess vegna geta niðurstöður aflaregluprófana verið ólíkar þeim sem byggðar eru á FMSY (ICES, 2026c). Þar sem stofninn er metinn fyrir ofan varúðarmörk (Blim) árið 2026 gáfu allar aflareglurnar álíka eða lægri fiskveiðidauða en FMSY.
Að gefnum forsendum um nýliðun í framreikningum á stærð hrygningarstofns fyrir árið 2028 verður 41 % af hrygningarstofninum 2 og 3 ára fiskur. Þess vegna eru framreikningar á stofnstærð fyrir árið 2028 og líkurnar á því að hrygningarstofn verði fyrir neðan varúðarmörk (Blim) viðkvæm fyrir þessum nýliðunarforsendum.
Ráðgjöf, aflamark og afli
Makríll. Tillögur um hámarksafla, aflamark samkvæmt ákvörðun stjórnvalda og afli (tonn).
Ár | Tillaga | Aflamark Ísland | Afli Íslendinga | Aflamark allra þjóða | Afli alls |
|---|---|---|---|---|---|
1987 | 0 | 442 000 | 654 992 | ||
1988 | 0 | 610 000 | 680 491 | ||
1989 | 0 | 532 000 | 585 920 | ||
1990 | 0 | 562 000 | 626 107 | ||
1991 | 0 | 612 000 | 675 665 | ||
1992 | 0 | 707 000 | 760 690 | ||
1993 | 0 | 767 000 | 824 568 | ||
1994 | 0 | 837 000 | 819 087 | ||
1995 | 0 | 645 000 | 756 277 | ||
1996 | 92 | 452 000 | 563 472 | ||
1997 | 925 | 470 000 | 573 029 | ||
1998 | 498 000 | 357 | 549 000 | 666 316 | |
1999 | 437 000 | 0 | 562 000 | 640 309 | |
2000 | 642 000 | 0 | 612 000 | 738 606 | |
2001 | 665 000 | 0 | 670 000 | 737 463 | |
2002 | 694 000 | 53 | 683 000 | 771 422 | |
2003 | 542 000 | 122 | 583 000 | 679 287 | |
2004 | 545 000 | 0 | 532 000 | 660 491 | |
2005 | 420 000 | 363 | 422 000 | 549 514 | |
2006 | 487 000 | 4 222 | 444 000 | 481 181 | |
2007 | 509 000 | 36 706 | 502 000 | 586 206 | |
2008 | 456 000 | 112 286 | 458 000 | 623 165 | |
2009 | 578 000 | 116 160 | 605 000 | 737 969 | |
2010 | 572 000 | 130 000 | 121 008 | 885 000 | 877 272 |
2011 | 672 000 | 154 825 | 159 263 | 959 000 | 948 963 |
2012 | 639 000 | 145 227 | 149 282 | 927 000 | 899 551 |
2013 | 542 000 | 123 182 | 151 235 | 906 000 | 938 299 |
2014 | 1 011 000 | 167 826 | 173 560 | 1 392 000 | 1 401 788 |
2015 | 906 000 | 172 964 | 169 336 | 1 229 000 | 1 215 827 |
2016 | 773 842 | 147 824 | 172 079 | 1 057 000 | 1 100 135 |
2017 | 857 185 | 168 464 | 167 366 | 1 173 000 | 1 159 641 |
2018 | 550 948 | 134 772 | 168 331 | 998 000 | 1 023 144 |
2019 | 770 358 | 140 240 | 128 077 | 864 000 | 839 727 |
2020 | 922 064 | 152 141 | 151 534 | 1 090 879 | 1 039 513 |
2021 | 852 284 | 140 627 | 132 176 | 1 199 103 | 1 081 540 |
2022 | 794 920 | 148 242 | 129 976 | 1 188 227 | 1 046 720 |
2023 | 782 066 | 144 039 | 141 369 | 1 188 265 | 1 056 241 |
2024 | 739 386 | 115 533 | 89 614 | 990 582 | 897 701 |
2025 | 576 958 | 125 572 | 129 628 | 760 714 | 809 175 |
2026 | 174 357 | 129 628 | 398 186 | ||
2027 | 352 938 |
Heimildir og ítarefni
ICES. 2020. Workshop on Management Strategy Evaluation of Mackerel (WKMSEMAC). ICES Scientific Reports. 2:74. 175 pp. http://doi.org/10.17895/ices.pub.7445
Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2026. Makríll. Hafrannsóknastofnun, 30. september 2026.
ICES. 2025. Benchmark workshop on Mackerel and Norwegian spring-spawning herring (WKBMACNSSH). ICES Scientific Reports. 7:64. 509 pp. https://doi.org/10.17895/ices.pub.29279615
ICES. 2026a. Mackerel (Scomber scombrus) in subareas 1-8 and 14 and in divisions 9.a, 12.a, and 12.b (Northeast Atlantic and adjacent waters). In Report of the ICES Advisory Committee, 2026. ICES Advice 2026, mac.27.nea, https://doi.org/10.17895/ices.advice.30932144
ICES. 2026b. Working Group on Widely Distributed Stocks (WGWIDE). ICES Scientific Reports.
ICES. 2026c. Technical service document - advice special request document