Rýnt í ríflega hálfa milljón fiskamaga á 27 ára tímabili

Loðna er mikilvægur hluti af fæðu þorsks, sem er einn helsti ránsfiskur landgrunnsins. 
Mynd: Svanh… Loðna er mikilvægur hluti af fæðu þorsks, sem er einn helsti ránsfiskur landgrunnsins.
Mynd: Svanhildur Egilsdóttir

Hafrannsóknastofnun gaf nýlega út viðamikla skýrslu um fæðu 36 tegunda botnfiska á Íslandsmiðum frá 1996 til 2023 og var alls skoðað í maga 590 þúsund botnfiska á tímabilinu. Af þessum 36 tegundum eru 17 þar sem fæðu hefur ekki áður verið lýst með magnbundnum hætti hér við land.

Í skýrslunni er lýst með stöðluðum hætti fæðuvali og magni einstakra botnfiskategunda. Auk þess veita niðurstöður einnig upplýsingar um hve háðar mismunandi tegundir ránfiska eru ákveðnum fæðuhópum og út frá mikilvægi fæðuhópa má flokka ránfiska í nokkra hópa. Þorskur er einn helsti ránfiskur landgrunnsins hefur fjölbreytt fæðuval og nýtir það sem er í boði hverju sinni, mest loðnu, aðra fiska og ýmis krabbadýr. Af öðrum tegundum á landgrunninu eru langa, keila og skötuselur fyrst og fremst fiskætur en helstu krabbadýraætur landgrunnsins eru tindaskata, ufsi, lýsa og gullkarfi. Á hinn bóginn eru ýsa, steinbítur, blágóma, skarkoli, sandkoli og skrápflúra fyrst og fremst botndýraætur. Hrognkelsi hefur þá sérstöðu að treysta nær alfarið á ýmsar sviflægar hveljur sem fæðu, þ.e. marglyttur og kambhvelur.

Meðal magafylli (þ.e. magn fæðu sem hlutfall af þyngd ránfisks) var breytileg yfir tímabilið hjá flestum tegundunum en hefur þó farið gagngert minnkandi hjá þorski og ýsu auk þess sem hlutfall tómra maga hefur farið vaxandi hjá þessum tveimur tegundum.

Í skýrslunni er sérstaklega horft til útbreiðslu helstu fæðutegunda og hópa eins og hún endurspeglast í mögum botnfiska, og metin dreifing þeirra m.t.t. hitastigs og dýpis og hvaða afræningjar treysta helst á viðkomandi fæðu. Jafnframt er fjallað um breytingar sem orðið hafa á tímabilinu varðandi hlutfallslegt vægi helstu fæðutegunda.

Ágrip af skýrslunni (á íslensku og ensku)

Skýrslan: Fæða 36 tegunda botnfiska á Íslandsmiðum árin 1996-2023 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?