Mat á burðarþoli Seyðisfjarðar m.t.t. sjókvíaeldis

Mat á burðarþoli Seyðisfjarðar m.t.t. sjókvíaeldis

Við breytingu á lögum um fiskeldi (nr. 71/2008) árið 2014 voru sett inn ný ákvæði um að rekstrarleyfi skuli fylgja burðarþolsmat sem framkvæmt sé af Hafrannsóknastofnun. Í lögunum er mat á burðarþoli svæða skilgreint sem þol þeirra til að taka á móti auknu lífrænu álagi án þess að það hafi óæskileg áhrif á lífríkið þannig að viðkomandi vatnshlot uppfylli umhverfismarkmið sem sett eru samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Hluti burðarþolsmats er að meta óæskileg staðbundin áhrif af eldisstarfsemi.

Meðfylgjandi er greinargerð og mat á burðarþoli Seyðisfjarðar með tilliti til sjókvíaeldis. Vegna aðstæðna í Seyðisfirði og varúðarnálgunar varðandi raunveruleg áhrif áætlaðs eldis á vatnsgæði og botndýralíf, telur Hafrannsóknastofnun að hægt sé hægt að leyfa allt að 10.000 tonna lífmassa í Seyðisfirði á ári. Í þessu mati er gert ráð fyrir að heildarlífmassi í firðinum verði aldrei meiri en 10.000 tonn og að vöktun á áhrifum eldisins fari fram. Slík vöktun yrði forsenda fyrir hugsanlegu endurmati á burðarþoli fjarðarins, til hækkunar eða lækkunar, sem byggt yrði á raungögnum.

Greinargerð - Mat á burðarþoli Seyðisfjarðar m.t.t. sjókvíaeldis


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?