Stofnvísitala botnfiska að haustlagi

Mynd úr haustralli 2023, tekin um borð í Breka. Ljósm. Kristín Valsdóttir Mynd úr haustralli 2023, tekin um borð í Breka. Ljósm. Kristín Valsdóttir

Helstu niðurstöður stofnmælingar botnfiska að haustlagi. Leiðangurinn fór fram dagana 28. september - 24. október 2023.

Hafrannsóknastofnun hefur tekið saman helstu niðurstöður stofnmælingar botnfiska að haustlagi en leiðangurinn fór fram dagana 28. september-24. október 2023.

Í ár tóku togararnir Breki VE-61 og Þórunn Sveinsdóttir VE-401 þátt í verkefninu ásamt rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni HF-200.

Stofnvísitölur botnfiska að haustlagi

Í skýrslunni er gerð grein fyrir helstu niðurstöðum og þær bornar saman við fyrri ár. Verkefnið hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti frá árinu 1996.

Stofnvísitala þorsks í ár sýnir svipaða þróun og í fyrra, þ.e. hækkun eftir töluverða lækkun árin 2018–2021. Yngstu árgangar þorsks (þ.e. árgangar 2021, 2022 og 2023) mældust undir meðalstærð í fjölda. Meðalþyngdir 1–4 ára þorsks mældust undir meðaltali áranna 1996–2023 en eldri árgangar reyndust við eða yfir meðaltali. 

Stofnvísitala ýsu er svipuð og í fyrra sem var með þeim hæstu síðan mælingar hófust. Flestir árgangar ýsu mældust yfir meðalstærð í fjölda en líkt og í þorski var meðalþyngd 1–4 ára ýsu undir meðaltali rannsóknatímabilsins.

Vísitala grálúðu er undir langtímameðaltali en vísbendingar eru um bætta nýliðun.

Vísitala gullkarfa er hærri en undanfarin ár en vísitala djúpkarfa hefur verið svipuð en lág í um tuttugu ár. Nýliðun þessara tveggja stofna hefur hins vegar verið léleg um árabil og eru engar vísbendingar um breytingu þar á.

Vísitala ufsa er undir langtímameðaltali.

Vísitala blálöngu hækkar umtalsvert í mælingunni í ár og vísitala gulllax mælist sú hæsta frá upphafi mælinga.

Vísitölur ýmissa tegunda sýna hækkun í ár og má þar nefna þykkvalúru, steinbít, hlýra, löngu, keilu og kolmunna.

Vísitala lúðu er sú hæsta sem mælst hefur frá 1996.

Vísitölur sandkola, skarkola og hrognkelsis eru með þeim lægstu sem mælst hafa í haustralli.

Vísitölur flestra brjóskfiska og annarra djúpfiskategunda hækkuðu eða stóðu í stað frá fyrra ári.

Sjávarhiti

Mælingar á botnhita sjávar sýndi kólnun á minna en 400 m dýpi fyrir norðvestan og norðaustan en hlýnun fyrir sunnan og vestan.

Mælingar sýndu einnig hlýnun fyrir sunnan á meira en 400 m dýpi en botnhiti á þessu dýpi og öðrum svæðum stóð í stað eða sýndi merki kólnunar.

Skýrslan Stofnmæling botnfiska að haustlagi 2023 - framkvæmd og helstu niðurstöður


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?