Tungnaá Lífríki og vistfræðilegir gæðaþættir
| Nánari upplýsingar |
| Titill |
Tungnaá Lífríki og vistfræðilegir gæðaþættir |
| Lýsing |
Ágrip
Markmið rannsóknarinnar var að meta líffræðilega og eðlisefnafræðilega gæðaþætti í fjórum vatnshlotum Tungnaár. Niðurstöðurnar nýtast til að skoða hvort vatnshlotin uppfylla lögbundin umhverfismarkmið í samræmi við lög um stjórn vatnamála nr. 36/2011. Vatnshlotin sem rannsóknin náði til eru Tungnaá 1–4 þar sem Tungnaá 4 er ofan við Krókslón og án áhrifa af vatnsaflsvirkjunum, en Tungnaá 1–3 eru farvegir Tungnaár sem eru undir áhrifum af Sigölduvirkjun, Hrauneyjafossvirkjun og Búðarhálsvirkjun. Í Tungnaá 4 er jökulvatn með nokkrum lindarvatnseiginleikum en í neðri vatnshlotunum, Tungnaá 1–3, rennur nú aðeins lindarvatn sem streymir fram úr aðliggjandi hraunum. Jökulvatnið sem rann þar áður er nú í lónum og veituskurðum sem tilheyra virkjunum á svæðinu. Tungnaá 2–3 eru á lista yfir vatnshlot sem skilgreind hafa verið sem mikið breytt vatnshlot vegna áhrifa af vatnsaflsvirkjunum.
Í Tungnaá er fjölbreytt lífríki þörunga og smádýra á botni og þrífst þar bæði bleikja og urriði. Vatnshlotin neðan Krókslóns bera ríka lindarvatnseiginleika. Rafleiðni vatns er há þar sem vatnið er efnaríkt. Næringarefnið fosfór er eitt þeirra efna sem er í háum styrk af náttúrulegum orsökum og nýtist það vel fyrir frumframleiðendur í farvegunum. Í jökulvatni Tungnaár ofan Krókslóns (Tungnaá 4) voru rykmýslirfur ríkjandi á botni en neðan Krókslóns (Tungnaá 3) og Hrauneyjalóns (Tungnaá 2) einkenndust botndýrasamfélögin af ánum, rykmýslirfum og krabbadýrum. Neðan Sporðöldulóns (Tungnaá 1) voru bitmýslirfur ríkjandi á botni. Miðað við niðurstöður vöktunar á líffræðilegum (hryggleysingja og blaðgrænu a) og eðlisefnafræðilegum gæðaþáttum er Tungnaá 1 og 4 í mjög góðu ástandi. Í Tungnaá 2 og 3 benda eðlisefnafræðilegir gæðaþættir og fjölbreytileiki hryggleysingja til mjög góðs ástands. Ekki eru til viðhlítandi viðmiðunargildi blaðgrænu a fyrir vatnshlot af vatnagerð RL2 með ríka lindarvatnseiginleika. Mælingar á blaðgrænu a í Tungnaá 2 og 3 eru sambærilegar við mælingar í straumvötnum sem hafa sömu eiginleika, þ.e. lindarvatn sem rennur um nýleg hraun. Það bendir til að blaðgræna a í Tungnaá 2 og 3 sé innan marka sem endurspeglar náttúrulegan breytileika í slíkum ám.
Abstract
The aim of the study was to assess biological and physicochemical quality elements in four water bodies (Tungnaá 1–4) in the Tungnaá River system in accordance with the Water Framework Directive. Tungnaá 4 is untouched glacial river while the hydromorphology of Tungnaá 1–3 has been altered by power plants. Along with glacial water, the system contains mineral rich groundwater which hosts diverse benthic communities of algae and invertebrates, as well as arctic char and brown trout. The water bodies in Tungnaá 1–3 exhibit strong spring-water characteristics, representing the young volcanic bedrock with high conductivity and phosphorus concentration, which benefits primary producers. In the glacial water of Tungnaá 4, chironomid larvae dominated the benthic invertebrate community while the invertebrate community of Tungnaá 2 and 3 was characterized by chironomid larvae, oligochaetes and crustaceans where blackfly larvae was dominant in Tungnaá 1. The result of biological (invertebrates and chlorophyll a) and physicochemical quality parameters indicates very good ecological status of Tungnaá 1 and 4. Tungnaá 2 and 3 also indicate very good status in relation to physicochemical and invertebrate diversity. For chlorophyll a there are no adequate reference value available for this river type but comparison with similar water bodies suggests a natural status. |
| Skráarviðhengi |
Ná í viðhengi |
| Flokkun |
| Flokkur |
Haf- og vatnarannsóknir (2016-) |
| Útgáfurit |
Haf- og vatnarannsóknir |
| Útgáfuár |
2026 |
| Tölublað |
17 |
| Blaðsíður |
49 |
| Útgefandi |
Hafrannsóknastofnun |
| ISSN |
2298-9137 |
| Leitarorð |
Tungnaá, efnasamsetning vatns, eðlisþættir, blaðgræna, hryggleysingjar, bleikja, urriði, líffræðilegir gæðaþættir, eðlisefnafræðilegir gæðaþættir, Tungnaá, river chemical composition, chlorophyl a, benthic invertebrates, arctic char, trout, biological quality elements, physico- chemical quality elements. |
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin