Veiðiráðgjöf fyrir uppsjávarfiskistofna í NA-Atlantshafi
Í dag, 30. september 2025, veittir Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) ráðgjöf um veiðar á norsk-íslenskri síld, makríl og kolmunna fyrir árið 2026 (ices.dk). Helstu niðurstöður eru tíundaðar hér.
33% hækkun í norsk-íslenskri vorgotssíld
ICES leggur til, í samræmi við langtímanýtingastefnu, að afli norsk-íslenskrar vorgotssíldar ársins 2025 verði ekki meiri en tæp 534 þúsund tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var 402 þúsund tonn og er því um 33 % hækkun á tillögum ráðsins milli ára.
Árgangar síðustu ára hafa verið litlir og árgangurinn frá 2016 verði uppistaðan í veiðinni síðustu ár. Árgangarnir frá 2021 og 2022, sem eru að koma inn í veiðistofninn, eru hinsvegar metnir yfir meðalstærð sem leiðir til hækkunar á ráðgjöfinni milli ára.
Áætlað er að heildarafli ársins 2025 verði um 435 þúsund tonn sem er 8 % umfram ráðgjöf ársins.
Sjá ráðgjöfina hér á vef Hafrannsóknastofnunar.
70 % lækkun í makríll
ICES leggur til, í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið (MSY), að makrílafli ársins 2026 verði ekki meiri en 174 þúsund tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var 577 þúsund tonn og því er um að ræða 70 % lægri ráðgjöf nú. Ástæða þess er minnkandi hrygningarstofn og lækkun á veiðihlutfalli þar sem hrygningarstofnstærð er undir varúðarmörkum árið 2025.
Áætlað er að heildarafli ársins 2025 verði ríflega 755 þúsund tonn sem er 31 % umfram ráðgjöf.
Sjá ráðgjöfina hér á vef Hafrannsóknastofnunar.
41 % lækkun í kolmunna
ICES leggur til, í samræmi við langtímanýtingarstefnu, að kolmunnaafli ársins 2026 verði ekki meiri en 851 þúsund tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var 1,45 milljón tonn og er því um að ræða rúmlega 41 % lækkun á ráðgjöf frá í fyrra.
Ástæðan fyrir lækkun á ráðgjöf er minnkandi veiðistofn sem helgast af háum fiskveiðidauða og litlum árgöngum sem eru að ganga inn í stofninn (frá 2022 til 2024) og stærð hrygningarstofns síðustu ár er nú metinn minni en mat þeirra tíma. Lægra mat nú skýrist af því að vísitala kolmunna í stofnmælingu á hrygningarslóð árið 2025 lækkaði um 34 % samanborið við árið 2024.
Áætlað er að heildarafli ársins 2025 verði ríflega 1,75 milljón tonn sem er 21 % umfram ráðgjöf.
Sjá ráðgjöfina hér á vef Hafrannsóknastofnunar.
Ekki er í gildi samkomulag milli þeirra þjóða sem stunda veiðar úr þessum þremur deilistofnum um skiptingu aflahlutdeildar. Hver þjóð hefur því sett sér aflamark einhliða undanfarin ár með þeim afleiðingum að veiðar hafa verið umfram ráðgjöf ICES um árabil.