Hafrannsóknastofnun óskar eftir að ráða öflugan og reynslumikinn lögfræðing til að sinna fjölbreyttum og krefjandi lögfræðilegum verkefnum. Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga og þekkingu á starfsemi stofnunarinnar og þeim málefnum sem falla undir verksvið hennar.
Um er að ræða nýja og spennandi stöðu sem býður upp á tækifæri til að móta og þróa lögfræðilega ráðgjöf innan stofnunarinnar. Starfið felur jafnframt í sér möguleika á að hafa áhrif á starfsemi einnar stærstu ráðgjafa- og rannsóknastofnunar landsins og taka þátt í úrlausn krefjandi lögfræðilegra álitaefna sem tengjast rannsóknum, opinberri stjórnsýslu og sjálfbærri nýtingu auðlinda hafs og vatna.
Nánari upplýsingar, m.a. hæfniskröfur, helstu verkefni og ábyrgð má finna á starfatorgi, hér.