Útskrift Sjávarútvegsskóla GRÓ vor 2026

Útskriftarhópur Sjávarútvegsskóla Gró vorið 2026 Útskriftarhópur Sjávarútvegsskóla Gró vorið 2026

Nemendur úr Sjávarútvegsskóla GRÓ útskrifuðust þann 20. maí sl. eftir að hafa lokið sex mánaða þjálfunarnámi skólans í boði íslenskra stjórnvalda.

Í ár var hópurinn skipaður 14 körlum og 9 konum, alls 23 nemendum, frá 15 löndum: Panama, Kúbu, Jamaíku, Sankti Vinsent og Grenadíneyjar, Gana, Síerra Leóne, Líberíu, Malaví, Úganda, Tansaníu, Kenía, Indlandi, Indónesíu, Papúa Nýju-Gíneu og Salómonseyjum.

Með þessum útskriftarhópi hafa alls 535 nemendur lokið þjálfunarnáminu á Íslandi frá því fyrst var boðið upp á það árið 1998.

Meðal gesta við útskriftina var sendiherra Indlands á Íslandi, Mr. R. Ravindra. Jónas Páll Jónasson, sviðsstjóri botnsjávarsviðs hjá Hafrannsóknastofnun, setti samkomuna og gegndi hlutverki fundarstjóra. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, ávarpaði samkomuna og óskaði nemendum innilega til hamingju með árangur sinn. Hann vék einnig að meira en tuttugu ára tengslum sínum við Sjávarútvegsskólann, sem kennari í fiskihagfræði og leiðbeinandi fjölda nemenda. Þá fjallaði hann um umbreytingu Íslands á 20. öld, úr einu fátækasta landi Evrópu í eitt það ríkasta, og lagði áherslu á lykilhlutverk sjávarútvegs í þeirri þróun sem og mikilvægi þess að miðla þeirri reynslu til annarra ríkja sem búa yfir ríkum fiskiauðlindum.

Í ávarpi sínu benti Ní­na Björk Jónsdóttir, forstöðumaður GRÓ miðstöðvar þróunarsamvinnu, á að þrátt fyrir að aðeins sex ár séu liðin frá því að miðstöðin var stofnuð byggi hún á traustum grunni þeirra fjögurra skóla sem sameinuðust undir merkjum hennar árið 2020, Jarðhitaskóla GRÓ, Sjávarútvegsskóla GRÓ, Landgræðsluskóla GRÓ og Jafnréttisskóla GRÓ. Sameiningin hafi styrkt samstarf þeirra og tengingu við alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands. Hún rifjaði einnig upp nýlega kynningarviðburði GRÓ, þar sem áhrif skólanna fjögurra voru dregin fram, meðal annars með frásögnum fyrrum nemenda um framlag þeirra til stefnumótunar, rannsókna og þekkingaruppbyggingar í heimalöndum sínum. Að lokum óskaði hún útskriftarnemendum innilega til hamingju og þakkaði starfsfólki GRÓ fyrir sitt starf.

Kellishia George frá Sankti Vinsent ávarpaði samkomuna fyrir hönd útskriftarnemenda. Hún rifjaði upp hvernig þau hefðu eflst við hverja raun frá því þau komu til landsins í nóvember 2025. Þau snéru nú heim reynslunni ríkari, agaðri og með meira sjálfstraust en áður. Þjálfunarnámið, sagði hún, hefði veitt þeim rými til að læra og vaxa í öruggu umhverfi fagmanna. Fyrir hönd hópsins færði hún GRÓ teyminu, brautarstjórum, kennurum og leiðbeinendum einlægar þakkir og Íslandi fyrir ómetanlega aðstoð við þróunarlönd á sviði sjávarútvegs.

Þór Heiðar Ásgeirsson, forstöðumaður Sjávarútvegsskóla GRÓ, stýrði afhendingu útskriftarskírteina. Í lokaorðum sínum vakti hann athygli á auknu vægi miðlunar í þjálfunarnáminu, hvort sem um ræðir þjálfun í skýrsluskrifum, munnlegum kynningum eða í hönnun á veggspjöldum. Hann minnti á að raunveruleg áhrif af þeim rannsóknarverkefnum sem nemendur unnu hér á landi ráðist einmitt af því hversu vel þeim tekst að miðla niðurstöðum sínum þegar heim er komið. Þór þakkaði kærlega þeim fjölmörgu einstaklingum, stofnunum og samtökum sem með einum eða öðrum hætti hafa lagt hönd á plóg í starfsemi Sjávarútvegsskólans. Að lokum heiðraði hann sérstaklega Margeir Gissurarson, sem nú lætur af störfum eftir áralangt og mikilvægt framlag sem yfirmaður matvæla- og gæðalínu skólans, kennari, leiðbeinandi og skipuleggjandi námskeiða erlendis.

Í lok samkomunnar kynnti Julie Ingham, aðstoðarforstöðumaður GRÓ FTP, sigurvegara í veggspjaldakeppni útskriftarnemenda, herra Prehadi frá Indónesíu. Veggspjaldasýning með kynningu á rannsóknarverkefnum nemenda stóð yfir samhliða útskriftinni.

Fundarstjóri, Jónas Páll Jónasson, lauk dagskránni með því að óska nemendum góðrar ferðar heim, en að því loknu var gestum boðið til móttöku.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?