Loðna.
Mynd/Hafrannsóknastofnun.
Tvær nýjar greinar eftir vísindamenn Hafrannsóknastofnunar sem birtust nýleg varpa ljósi á fæðu og fæðunám loðnu. Í fyrri vísindagreininni var fæðuval loðnu kannað á haustin á fæðuslóð við Austur-Grænland, sjá grein hér. Í hinni var skoðað hvort loðna æti að vetrarlagi á leið sinni á hrygningarsvæðin suður og vestur af Íslandi, sjá grein hér.

Magar og magainnihald skoðað við rannsókn á fæðu loðnu
Loðna er mikilvægur hlekkur í vistkerfi hafsins við Ísland. Hún étur aðallega dýrasvif og er sjálf mikilvæg fæða fyrir meðal annars þorsk, aðra fiska, sjófugla og sjávarspendýr. Breytingar á fæðu og fæðunámi loðnu geta því haft víðtæk áhrif um allan fæðuvefinn.
Fæðuval á nýrri fæðuslóð.
Frá um síðustu aldamótum hefur meginfæðuslóð loðnu verið á og við landgrunn Austur- Grænlands eða mun vestrar en áratugina þar á undan. Fæða loðnu var rannsökuð með greiningum á magainnihaldi haustin 2018-2021. Um 77-98% þeirrar loðnu var með fæðu.
Myndin sýnir breytingar á fæðuslóð loðnu við Austur-Grænland, grænn litur sýnir fæðuslóð
fullorðinnar loðnu en fjólublár ungloðnu. Eldri fæðuslóð, norður af Íslandi, er sýnd með rauðu.
Við Austur-Grænland reyndist ljósáta vera mun stærri hluti af fæðu loðnu en krabbaflær, sem þó voru mikilvæg fæða. Þetta er frábrugðið fyrri fæðuslóðum loðnu norðan Íslands, þar sem fæða hennar var að mestu leyti krabbaflær samkvæmt eldri rannsóknum (Sigurdsson and Astthorsson 1991; Astthorsson and Gislason 1997). Niðurstöðurnar benda því til þess að loðnan hafi lagað fæðuval sitt að breyttum fæðuskilyrðum.

Krabbaflær (minni) og ljósáta (stærri) eru mikilvægar fæðutegundir loðnu.
Rannsóknin sýndi jafnframt að haustið er mikilvægt fæðutímabil hjá loðnu en magafylli þá var sambærilegt við það sem áður hefur verið lýst byggt á rannsóknum að sumarlagi. Þetta bendir til þess að fæðunám á hausti geti skipt verulegu máli fyrir heildarorkubúskap loðnunnar, sérstaklega í ljósi breytinga á útbreiðslu stofnsins.
Loðna étur einnig á hrygningargöngunni
Algengt hefur verið að gera ráð fyrir að loðna éti lítið yfir veturinn þar sem uppsafnaðar orkubirgðir hennar fara að miklu leyti í kynþroska og hrygningargöngu.
Marflær og pílormar mikilvægari að vetri
Niðurstöður rannsókna á magainnihaldi loðnu í janúar og febrúar sýndu hins vegar að fæðu var að finna í rúmlega 60% þeirra maga sem rannsakaðir voru. Krabbaflær og ljósáta voru mikilvægustu fæðuhóparnir, líkt og á haustin en marflær og pílormar virtust hafa meira vægi að vetrarlagi.
Magafylli loðnu var minni að vetri en að hausti, en fæðu var engu að síður að finna í mögum hennar. Niðurstöðurnar sýna því að loðnan hættir ekki endilega að éta þegar hrygningargangan hefst. Fæðunám að vetri þarf því að hafa í huga þegar lagt er mat á orkubúskap loðnunnar og hlutverk hennar í fæðuvefnum.
Heimildir/References:
Astthorsson, O. S., & Gislason, A. (1997). On the food of capelin in the subarctic waters north of Iceland. Sarsia, 82(2), 81-86.
Sigurdsson, T. H., & Astthorsson, O. S. (1991). Aspects of the feeding of capelin (Mallotus villosus) during autumn and early winter in the waters north of Iceland. ICES Document CM.