Nýtt vistkerfis- og fiskveiðiyfirlit fyrir íslenska hafsvæðið 2026

Nýtt vistkerfis- og fiskveiðiyfirlit fyrir íslenska hafsvæðið 2026

Hafrannsóknastofnun birtir í dag, 27. nóvember 2026, tvö yfirlit um íslenska hafsvæðið: Vistkerfi sjávar og áhrifaþættir og Veiðar á Íslandsmiðum.

Vistkerfisyfirlitið lýsir vistkerfi hafsins við Ísland og helstu álagsþáttum á það. Fiskveiðiyfirlitið dregur saman þróun veiða frá miðri síðustu öld, áhrif veiða á vistkerfið og stöðu nytjastofna gagnvart stjórnunarmarkmiðum og skilgreindum gátmörkum. Saman gefa þau heildarmynd af hafsvæðinu fyrir atvinnugreinina, stjórnvöld og almenning.

Vistkerfi sjávar og áhrifaþættir

Fiskveiðar eru sá álagsþáttur af mannavöldum sem veldur mestri áhættu fyrir vistkerfið við Ísland, en hlýnun sjávar er þegar farin að breyta útbreiðslu tegunda. Yfirlitið lýsir álagi, ástandi vistkerfisins, áhrifum loftslagsbreytinga og samfélagslegu og efnahagslegu samhengi.

Yfirlitið Vistkerfi sjávar og áhrifaþættir má nálgast hér á vef Hafrannsóknastofnunar. 

Veiðar á Íslandsmiðum

Sókn hefur minnkað síðustu áratugi og ástand flestra helstu nytjastofna er gott, enda hefur fiskveiðistjórnun skilað minna veiðiálagi og stærri hrygningarstofnum. Myndin er þó ekki einhlít. Nokkrir stofnar hafa minnkað mikið og staða sumra sjófugla og sela er áhyggjuefni, meðal annars vegna meðafla í netaveiðum.

Fiskveiðiyfirlitið er gagnvirk vefsíða þar sem lesendur geta skoðað þróun veiða og stöðu stofna nánar. Hægt er að sækja gögnin á bak við hverja mynd og vista myndirnar.

Yfirlitið Veiðar á Íslandsmiðum má nálgast hér á vef Hafrannsóknastofnunar.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?