Vistkerfi sjávar og áhrifaþættir – Íslandsmið
27. nóvember 2026
Vistkerfi sjávar og áhrifaþættir
Vistsvæðið Íslandsmið: ástand vistkerfisins, álagsþættir af mannavöldum og áhrif loftslagsbreytinga
Íslenska hafsvæðið nær yfir landgrunnið og nærliggjandi hafsvæði umhverfis Ísland og eru mörk þess þau sömu og mörk efnahagslögsögu Íslands (1. mynd). Á hafsvæðunum mætast Mið-Atlantshafshryggurinn og Grænlands-Skotlandshryggurinn, skammt sunnan við heimskautsbaug, þar sem hlýr Atlantssjór og kaldur svalsjór mætast. Á íslenska landgrunninu er dýpið minna en 500 m, en utan landgrunnsbrúnar nær dýpið allt að 4 000 m. Þessar aðstæður, ásamt ólíkum sjógerðum hlýs Atlantssjávar fyrir sunnan og kalds svalsjávar fyrir norðan, skapa mjög frjósöm skilasvæði sem móta tegundasamsetningu og útbreiðslu um allt hafsvæðið, eins og sýnt er í bráðabirgðaskiptingu lífsvæða í kaflanum „Ástand vistkerfisins”.
1. mynd Íslenska hafsvæðið þar sem sýnd eru mörk þess, dýptarlínur, veiðisvæði ICES og aðliggjandi hafsvæði.
Stjórnun
Íslenska hafsvæðið liggur innan efnahagslögsögu Íslands og er að mestu stjórnað af innlendum stjórnvöldum og þar gilda íslensk lög. Svæðið fellur að mestu saman við stórvistkerfi sjávar nr. 2 (heimild) og tilheyrir svæði I (Norðurskautshafsvæði) samkvæmt samningnum um verndun hafrýmis Norðaustur-Atlantshafsins (OSPAR). Meðal helstu laga sem gilda eru lög um stjórn fiskveiða, en samkvæmt þeim er nýtingu nytjastofna stýrt með aflamarkskerfi með framseljanlegum aflaheimildum. Sumum deilistofnum er stýrt af Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndinni (NEAFC), með tvíhliða samningum strandríkja (Noregur, Færeyjar, Grænland) eða með marghliða samningum (t.d. makríl og kolmunna (Micromesistius poutassou)). Tvíhliða samningar við ríki Evrópusambandsins (ESB) falla undir sameiginlega fiskveiðistefnu sambandsins. Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) og Hafrannsóknastofnun veita vísindalega ráðgjöf um veiðiheimildir, en Fiskistofa annast eftirlit. Alþjóðahvalveiðiráðið (IWC) gefur út reglur um verndun og veiðar á hvölum, en veiði- og verndunarráðgjöf er varðar sjávarspendýr er auk þess veitt af Norður-Atlantshafs sjávarspendýraráðinu (NAMMCO). Stjórnun á veiðum og verndun Atlantshafslax (Salmo salar), sem lifir bæði í ferskvatni og sjó, fer fram í gegnum Laxaverndunarstofnun Norður-Atlantshafsins (NASCO).
Lög um náttúruvernd marka stefnu um verndun og setja ramma um friðlýst svæði og líffræðilega fjölbreytni, en lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana kveða á um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðra framkvæmda. Ísland tekur þátt í alþjóðlegu verndarstarfi sem aðili að OSPAR-samningnum og samningi Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni. Þar er meðal annars unnið eftir hnattrænum markmiðum sem samþykkt voru í Kunming-Montreal-rammanum um líffræðilega fjölbreytni, einkum 30x30-markmiðunum. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið mótar stefnu í umhverfismálum og Náttúruverndarstofnun framfylgir henni. Skipulag haf- og strandsvæða byggir á lögum um skipulag haf- og strandsvæða og er á forræði Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Alþjóðlegum siglingum er stýrt af Alþjóðasiglingamálastofnuninni (IMO), meðal annars með alþjóðasamningi um varnir gegn mengun frá skipum (MARPOL), samningi um eftirlit með skaðlegum gróðurhindrandi kerfum á skipum (AFS-samningnum) og samningi um stjórnun kjölfestuvatns (BWM-samningnum).
Orkustofnun veitir leyfi fyrir og hefur eftirlit með efnistöku af hafsbotni, auk leitar, rannsókna og vinnslu orku á hafi (svo sem kolvetnis og vindorku), samkvæmt raforkulögum og lögum um kolvetni.
Helstu breytingar á vistkerfinu
Álag af völdum mannsins
- Fiskveiðar valda mestri áhættu fyrir ástandsþætti vistkerfisins með brottnámi tegunda, raski á botni, meðafla og rusli í hafi vegna yfirgefinna, týndra eða fargaðra veiðarfæra.
- Veiðiálag hefur minnkað undanfarna tvo áratugi meðal annars vegna innleiðingar aflareglna og stjórnunaraðgerða.
- Fiskveiðidánartala víðförulla uppsjávarstofna er enn yfir kjörsókn (FMSY) vegna þess að samninga strandríkja skortir. Þetta ógnar sjálfbærni veiðanna til lengri tíma.
- Komið hefur verið á svæðalokunum sem skrefi í átt að því að vernda fjölbreytt búsvæði botndýra og viðkvæm vistkerfi sjávar á íslenska hafsvæðinu gegn raski af völdum veiðarfæra sem snerta botn.
- Fráveita og skipaumferð valda einnig áhættu fyrir alla ástandsþætti vistkerfisins, þótt í minna mæli sé, með losun rusls í hafi, einkum örplasts, og annarra mengunarefna.
- Takmarkaðir innviðir til hreinsunar fráveituvatns og skólps auka áhættu sem stafar af fráveitu. Búist er við að álagsþættir sem tengjast skipaumferð aukist á íslenska hafsvæðinu.
Ástand vistkerfisins
- Frumframleiðni er mikil á íslenska hafsvæðinu og lífmassi plöntusvifs fer vaxandi á landgrunninu sunnan við land.
- Stofnar rækju (Pandalus borealis), leturhumars (Nephrops norvegicus), lúðu (Hippoglossus hippoglossus) og djúpkarfa (Sebastes mentella) eru undir sögulegum gildum og lífmassi makríls (Scomber scombrus) og norsk-íslenskrar vorgotssíldar (Clupea harengus) er undir viðmiðunarmörkum.
- Stofnar fýls (Fulmarus glacialis) og ritu (Rissa tridactyla) halda áfram að minnka á hafsvæðinu.
- Staða landsels (Phoca vitulina) er enn áhyggjuefni með tilliti til verndarsjónarmiða á hafsvæðinu.
- Búist er við að nýlegar breytingar á stofnstærð og útbreiðslu loðnu (Mallotus villosus) muni hafa verulegar afleiðingar fyrir þorsk (Gadus morhua), sjófugla og hvali á íslenska hafsvæðinu.
Loftslagsbreytingar
- Yfirborðs- og botnsjór á íslenska landgrunninu hefur hlýnað um >1,1 °C frá árinu 1975, einkum vegna aukins innstreymis Atlantssjávar norður inn á íslenska hafsvæðið.
- Hlýnunin er mest í yfirborðslögum norður af landinu, þar sem greinileg breyting hefur orðið á samsetningu dýrasvifssamfélagsins frá norðurskautstegundum yfir í norðlægar tegundir stórra krabbaflóa.
- Hækkandi hitastig hefur átt þátt í hnignun stofna rækju og hörpudisks (Chlamys islandica), tilfærslu á útbreiðslu loðnu út fyrir íslenska landgrunnið og því að botnfisktegundir færa sig norðar eða á meira dýpi.
- Sýrustig (pH) yfirborðssjávar hefur lækkað á landgrunninu. Áhrif súrnunar á lífríki og búsvæði sjávar eru að mestu óþekkt og eru mikið áhyggjuefni á íslenska hafsvæðinu.
- Spáð er að hlýnun sjávar haldi áfram og leiði til breyttrar útbreiðslu nytjategunda á íslenska landgrunninu.
Umhverfis-, samfélags- og efnahagslegt samhengi
- Fiskveiðar leggja mikið til þjóðartekna og atvinnu og hafa mikið menningarlegt gildi.
- Að samræma efnahagslegan og samfélagslegan ávinning af fiskveiðum við markmið um verndun vistkerfa er eitt helsta álitamálið á íslenska hafsvæðinu.
- Ör vöxtur ferðaþjónustu, skipaumferðar og sjókvíaeldis vekur frekari áhyggjur í samfélaginu og kallar á málamiðlanir milli atvinnugreina sem nýta hafið og þess álags sem þeim fylgir.
Álag
ICES beitti hálfmegindlegri aðferð við áhættumat sem leiddi í ljós 12 athafnir mannsins og níu álagsþætti sem skipta máli fyrir vistsvæðið. Þeir fimm álagsþættir sem taldir eru valda mestri áhættu fyrir ástandsþætti vistkerfisins eru brottnám lífmassa, rask á botni, tilfallandi afföll, rusl í hafi og hávaði, sem vega samtals um 90 % af heildaráhættustiginu (2. mynd). Þær athafnir sem vega þyngst í þessum álagsþáttum eru fiskveiðar, fráveita og skipaumferð. Skilgreiningar á þessum álagsþáttum og athöfnum er að finna í tæknilegum leiðbeiningum ICES um vistkerfisyfirlit (ICES Ecosystem Overviews Technical Guidelines). Aðrar athafnir og álagsþættir sem metnir voru, og vega samtals þau 10 % sem eftir eru af heildaráhættustiginu, eru talin upp í skýrslu WGICE (ICES, 2026). Þar á meðal eru ferðaþjónusta, fiskeldi og nytjar og söfnun lífvera.
2. mynd Yfirlit yfir áhættumat íslenska hafsvæðisins. Áhættumatið sýnir helstu álagsþætti af mannavöldum og áhrif þeirra á ástandsþætti vistkerfisins. Sýndar eru þær 21 tengikeðjur sem mynda samtals 90 % af heildaráhættustiginu og er breidd línanna í hlutfalli við stærð áhættunnar. Athöfnum mannsins og álagsþáttum er raðað eftir minnkandi hlutdeild í heildaráhættustiginu. Þótt lína sé ekki sýnd þýðir það ekki að engin tengsl séu til staðar þar sem aðeins helstu tengsl eru sýnd. Loftslagsbreytingar hafa áhrif á athafnir mannsins, styrk álagsþátta og suma ástandsþætti, sem og á tengslin þar á milli. Um aðferðafræði og skilgreiningar, sjá tæknilegar leiðbeiningar ICES um vistkerfisyfirlit.
Brottnám lífmassa
Brottnám lífmassa nemur um 25 % af heildaráhættunni og eru fiskveiðar sú athöfn sem hefur mest að segja um brottnám hans úr vistkerfi sjávar. Fiskveiðar við Ísland eru að langmestu leyti stundaðar af Íslendingum, en lítill hluti er veiddur af nágrannaþjóðum vegna tvíhliðasamninga. Meginhluti veiðanna, bæði uppsjávar og við botn, fer fram á innan við 500 m dýpi og eru veiddir meira en 40 stofnar fiska og hryggleysingja. Nánari upplýsingar um hverjir stunda veiðarnar er að finna í ICES fisheriesXplorer.
Árlegur heildarafli hefur sveiflast mikið undanfarna tvo áratugi. Afli uppsjávartegunda hefur hvað magn varðar verið mestur en einnig breytilegastur, aðallega vegna sveiflna í loðnuafla. Til að mynda var uppsjávaraflinn 900 þúsund tonn árið 2022 en var um 300 þúsund tonn árin 2024 og 2025 þegar engar loðnuveiðar voru stundaðar. Botnfiskafli hefur á þessu tímabili verið stöðugur á bilinu 400-500 þúsund tonn og er þorskur uppistaða hans. Árlegur landaður afli hryggleysingja, eins og rækju og humars, hefur minnkað. Nánari upplýsingar um landanir á vistsvæðinu er að finna í löndunarhluta fisheriesXplorer. Beinar veiðar á lúðu og humri eru nú bannaðar vegna bágs ástands stofnanna.
Sókn með botnvörpum (fiskibotnvörpu, rækjuvörpu og humarvörpu), flotvörpu, netum, hringnót og dragnót hefur minnkað síðastliðna tvo áratugi og er nú í öllum tilfellum í sögulegu lágmarki. Sókn með handfærum og línu jókst frá aldamótum fram til ársins 2010, en hefur minnkað síðan þó að hún sé enn há. Á sama tíma hefur veiðiálag stofna minnkað, einkum vegna innleiðingar langtímanýtingaráætlana með formlegum aflareglum, og er í flestum tilfellum við kjörsókn.
Áhrif á nytjastofna: Veiðiálag helstu botnfiskategunda hefur lækkað undanfarna tvo áratugi og er nú undir eða við viðmiðunarmörk (3. mynd). Veiðiálag uppsjávarstofna, einkum víðförulla stofna á borð við makríl og kolmunna, hefur aukist og er yfir kjörsókn (FMSY). Það stafar einkum af því að samninga strandríkja skortir, sem leiðir til þess að mörg ríki setja einhliða aflamark sem samanlagt er umfram vísindalega ráðgjöf. Það ógnar sjálfbærni veiðanna til lengri tíma, einkum í ljósi loftslagstengdra breytinga á útbreiðslu stofna og bráðar þeirra, og vegna minnkandi nýliðunar. Upplýsingar um þróun fiskveiðidánartölu einstakra stofna má finna í stofnstöðuhluta fisheriesXplorer.
3. mynd Hlutfallslegt veiðiálag (F/FMSY) fyrir flatfiska, bolfiska og uppsjávarstofna.
Rask á botni
Rask á botni nemur um 20 % af heildaráhættunni. Með raski eða svörfun er átt við áhrif á undirlag neðan við yfirborð sjávarbotns án þess þó að efni séu fjarlægð. Mestur hluti svörfunar á svæðinu stafar af veiðarfærum sem eru dregin yfir botn og er beint að botnfiskum og botnlægum hryggleysingjum. Annað sem veldur tilfallandi raski á afmörkuðum svæðum er t.d. lagning kapla á sjávarbotni, þegar akkerum er kastað og stjórar staðbundinna veiðarfæra (t.d. línu og neta) eru lagðir á botn.
Áhrif á búsvæði og lífríki botns: Veiðarfæri sem dregin eru yfir og snerta botn, einkum botnvarpa, plógur, dragnót og kyrrstæð veiðarfæri, eru notuð allt árið á landgrunninu og valda verulegu álagi á botnsamfélög á sumum svæðum (fisheriesXplorer – VMS-hluti). Rask á botni er áfram mjög viðvarandi og ríkjandi álagsþáttur á íslenska hafsvæðinu, þrátt fyrir að sókn dreginna botnveiðarfæra hafi minnkað (Ólafsdóttir o.fl., 2021). Svæðisbundnum verndarráðstöfunum hefur verið komið á fyrir viðkvæm vistkerfi sjávar á grundvelli laga um stjórn fiskveiða og laga um náttúruvernd. Meðal slíkra vistkerfa eru kaldsjávarkóralsvæði, jarðhitasvæði á hafsbotni (hverastrýtur), svampasvæði og neðansjávarfjöll. Svæði sem lokuð eru öllum veiðarfærum sem snerta botn ná samtals yfir 12 431 km2, sem er um 1,6 % af öllu hafsvæði Íslands eða 4,6 % af íslenska landgrunninu grynnra en 500 m (4. mynd). Þessi svæði hafa enn ekki verið formlega skilgreind sem verndarsvæði í hafi (MPA) eða sem önnur árangursrík svæðisbundin verndarúrræði (OECM).
4. mynd Viðkvæm vistkerfi sjávar (svört svæði) sem lokuð eru öllum veiðum með botnveiðarfærum (kyrrstæðum og dregnum) og önnur svæði sem lokuð eru tímabundið eða varanlega fyrir botnvörpuveiðum (blá svæði) á íslenska hafsvæðinu.
Tilfallandi afföll
Tilfallandi afföll nema um 21 % af heildaráhættunni. Fiskveiðar eru helsti valdur að meðafla sjávarlífvera, þar á meðal ungfisks og undirmálsfisks, botnlægra hryggleysingja og fiska, sjófugla og sjávarspendýra sem eru í hættu, ógnað eða njóta verndar.
Áhrif á ástandsþætti vistkerfisins: Meðafli ungfisks á sér stað í blönduðum botnfiskveiðum. Fiskistofa hefur eftirlit með afla og beitir skyndilokunum, þar sem veiðisvæðum er lokað tímabundið þegar hlutfall smáfisks í afla fer yfir viðmiðunarmörk. Reglur um möskvastærð eru einnig í gildi til að draga úr dauða ungfisks og langtíma- og árstíðabundnar lokanir vernda viðkvæm hrygningarsvæði. Í veiðunum fást einnig sem meðafli eftirfarandi tegundir sem eru á lista OSPAR yfir tegundir í hættu: búrfiskur (Hoplostethus atlanticus), rauðháfur (Centrophorus squamosus), hámeri (Lamna nasus) og háfur (Squalus acanthias). Litlu er þó landað af þessum tegundum og lítið er vitað um áhrif veiðanna á stofnstærð þeirra.
Meðafli og tilfallandi dauði botnlægra hryggleysingja í botnvörpuveiðum er enn lítt magngreindur. Minni sókn með veiðarfærum sem snerta botn hefur líklega dregið úr álagi á botnlífverur.
Sjófuglar veiðast sem meðafli í línu- og netaveiðum á grunnslóð. Tegundir sem afla sér fæðu við yfirborð, eins og fýll, eru algengur meðafli við línuveiðar, en tegundir sem kafa eftir fæðu, eins og ýmsar tegundir svartfugla, flækjast oft í netum (Petersen 2002).
Mestur meðafli sjófugla og sjávarspendýra er í netaveiðum. Langvía (Uria aalge), teista (Cepphus grylle) og æðarfugl (Somateria mollissima) eru aðallega þeir sjófuglar sem koma í netin. Hnísa (Phocoena phocoena) og landselur eru algengustu sjávarspendýrin sem veiðast sem meðafli í netaveiðum. Nánari upplýsingar um meðafla sjávarspendýra og sjófugla á hafsvæðinu er að finna í meðaflahluta fisheriesXplorer.
Rusl í hafi
Rusl í hafi nemur um 20 % af heildaráhættunni og eru fiskveiðar helsti uppruni þess, en þar á eftir koma fráveita og skipaumferð. Rusl frá fiskveiðum tengist einkum yfirgefnum, týndum eða förguðum veiðarfærum. Vöktunarrannsóknir staðfesta að veiðarfæri, ásamt plastrusli, eru meginuppistaða rusls sem finnst á íslenskum ströndum og á landgrunninu (Solloway, Micael og Gíslason 2024; Blache 2021; Sigurðardóttir og Ólafsdóttir 2022). Örplastmengun stafar að hluta til af afleiddum ögnum sem myndast við niðurbrot veiðarfæra (Ovide o.fl. 2022, 2025). Fráveita er landræn uppspretta sem losar örplast og stærra rusl úr hreinsuðu og óhreinsuðu skólpi í strandsjó. Takmörkuð hreinsun fráveituvatns og ófullnægjandi innviðir til úrgangsstjórnunar á Íslandi auka á þetta álag (de Bruijn 2024). Gróðurhindrandi botnmálning skipa er einnig talin vaxandi uppspretta örplastmengunar (International Maritime Organization, 2021). Mjög erfitt er að fjarlægja örplast úr umhverfinu og smæð agnanna eykur jafnframt verulega lífaðgengi þeirra, sem leiðir til þess að fjölbreyttur hópur lífvera innbyrðir þær.
Áhrif á þætti vistkerfisins: Yfirgefin, týnd og förguð veiðarfæri, þar á meðal miðlungsstórt plast og örplast, valda verulegu líkamlegu og efnafræðilegu álagi á sjófugla þegar þeir flækjast í þeim, nota þau í hreiðurgerð og innbyrða. Rannsóknir á fýl við Ísland sýna að yfir 70 % einstaklinga hafa innbyrt plast (Snæþórsson 2025).
Örplast hefur fundist í nytjafiskum á borð við þorsk, ufsa (Pollachius virens) og loðnu (de Vries o.fl. 2020; Brawn o.fl. 2023).
Tilraunir á rannsóknastofu sýna að inntaka örplasts veldur stíflum í meltingarvegi, efnaskiptatruflunum og æxlunarbresti hjá krabbaflóm (Bai, Wang og Wang, 2021; Prata o.fl., 2019). Auk þess hefur verið sýnt fram á að það hamlar vexti plöntusvifs (Podbielska og Szpyrka, 2023).
Á heimsvísu eru botnbúsvæði helsti endastaður yfirgefinna, týndra og fargaðra veiðarfæra og annars rusls í hafi. Við Ísland hefur örplast fundist í botnlægum hryggleysingjum á borð við krækling (Mytilus edulis), en að minnsta kosti ein örplastögn fannst í 68 % einstaklinga í sýnum frá Vestfjörðum.
Yfirgefin, týnd og förguð veiðarfæri skapa hættu á að dýr flækist í þeim. Rannsóknir benda til þess að um 25 % hnúfubaka (Megaptera novaeangliae) á Íslandsmiðum beri ör eftir að hafa flækst í veiðarfærum, sem getur valdið skurðsárum, örmögnun og drukknun (Basran o.fl., 2019). Þó er erfitt að greina á milli þess hvort um sé að ræða veiðarfæri í notkun eða yfirgefin veiðarfæri. Óviljandi inntaka miðlungsstórs plasts og örplasts, einkum hjá skíðishvölum sem sía fæðu sína og hjá selum, getur valdið banvænum stíflum í meltingarvegi (Chosson o.fl. 2023). Enn er mikill þekkingarskortur á áhrifum rusls í hafi á stofna og vistkerfi.
Hávaði
Hávaði nemur um 3% af heildaráhættunni og eru fiskveiðar og skipaumferð helstu athafnir mannsins sem valda honum. Fiskveiðar eru viðvarandi og útbreiddasti valdur neðansjávarhávaða á svæðinu (sjá VMS-hluta fisheriesXplorer). Skipaumferð, sem eru að mestu leyti flutninga- og olíuflutningaskip, fylgir helstu siglingaleiðum og nær hámarki á sumrin þegar minni atvinnubátar og skemmtiferðaskip bætast við.
Áhrif á sjávarspendýr: Neðansjávarhávaði frá skipavélum, dýptarmælum og veiðarfærum yfirgnæfir líffræðileg hljóðmerki, sem skerðir getu sjávarspendýra til samskipta, ratvísi og fæðuleitar. Hnúfubakar á íslenska hafsvæðinu draga úr hljóðmerkjum sínum í návist hvalaskoðunarbáta (Laute o.fl. 2022), þótt ekki hafi verið metið fyrir svæðið hvort þessi niðurstaða eigi við um annan hávaða af mannavöldum.
Nýir og vaxandi álagsþættir
Efnistaka af hafsbotni einskorðast sem stendur við smávægilega dýpkun og dælingu á malarefni (sandi og möl). Árið 2023 voru 13 virk nýtingarleyfi í gildi sem náðu samtals yfir 14,5 km² svæði (Orkustofnun 2023). Engin leyfi eru nú í gildi til vinnslu kolvetnis eða vindorku á hafi. Ör vöxtur ferðaþjónustu (og skipaumferð henni tengdri), sjóflutninga og sjókvíaeldis, ásamt fyrirsjáanlegri aukningu hernaðarumsvifa, mun að líkindum auka uppbyggingu innviða á strandsvæðum og auka álagsþætti á borð við rusl í hafi, hávaða, röskun á dýralífi og landnám framandi tegunda.
Áhrif loftslagsbreytinga
Langtímamælingar úr vorleiðöngrum (apríl–júní) Hafrannsóknastofnunar á eðliseiginleikum sjávar sýna að hlýnun er greinileg á öllu landgrunninu, bæði í efsta sjávarlaginu (0–50 m dýpi) og við botn (neðstu 50 m, hér eftir nefnt „botnlag”). Hitafrávik frá viðmiðunartímabilinu (1975–2025) eru jákvæð á flestum mælistöðvum á síðari hluta tímabilsins (2003–2025), sem bendir til hærri meðalhita (5. mynd). Hlýnunin var mest áberandi í yfirborðslaginu á norðurhluta svæðisins. Á heildina litið hækkaði meðalhiti á svæðinu um 1,51 °C í efsta laginu og um 1,15°C í botnlaginu á tímabilinu 1975–2025 (5. og 6. mynd). Tíðni sjávarhitabylgna hefur aukist við Ísland, sem markar umskipti frá tímabilum þar sem kuldaskeið voru ríkjandi yfir í áberandi hitabylgjur árin 2003, 2017 og 2025 (Dubois o.fl., í vinnslu; von Schuckmann o.fl., 2024, 2025). Lega 5 °C jafnhitalínunnar, sem notuð er sem mælikvarði á áhrif Atlantssjávar á íslenska hafsvæðinu, hefur færst norðar bæði í efsta laginu og við botn. Það bendir til þess að útbreiðsla Atlantssjávar nái lengra norður á bóginn og að áhrifa hans gæti meira á landgrunninu vestan og norðan Íslands. Skýr merki um súrnun sjávar hafa komið fram á sama tímabili, þar sem sýrustig (pH) yfirborðssjávar lækkaði um –0,0027 á ári á árunum 1985–2024 (6. mynd).
5. mynd Hiti að vori (apríl–júní) í efsta sjávarlaginu (nST, vinstri dálkur) og við botn (nBT, hægri dálkur). Efsta röðin sýnir langtímameðaltal (1975–2025). Miðröðin og neðsta röðin sýna hitafrávik árin 1975–1995 og 2003–2025 miðað við langtímameðaltalið. Rauður og blár litur tákna hærri og lægri hita. Gráa línan sýnir 500 m dýptarlínuna sem markar mörk íslenska landgrunnsins. Rauðu línurnar sýna legu 5 °C jafnhitalínunnar í yfirborðs- og botnsjávarlögum.
6. mynd Vinstri myndin sýnir árlegan meðalhita að vori (apríl–júní) í efsta sjávarlaginu (nST, efstu 50 m) og við botn (nBT, neðstu 50 m) á föstum vöktunarstöðvum við Ísland (sjá 5. mynd). Hægri myndin sýnir sýrustig (pH) við yfirborð að vetri á einni mælistöð í Íslandshafi. Línuritin sýna línulega leitni (þykk lína) sem felld er að árlegum mælingum (punktar og þunn lína).
Áhrif á lífræna þætti vistkerfisins
Uppsjávarbúsvæði og lífríki: Hitastigsdrifin breyting á samsetningu dýrasvifs er aðeins greinileg norður af Íslandi, bæði á landgrunninu og utan þess. Aukin útbreiðsla norðlægu tegundarinnar rauðátu (Calanus finmarchicus) og fækkun hinnar stærri og fituríkari norðurskautstegundar C. hyperboreus hefur verið tengd hlýnun yfirborðssjávar á svæðinu (Gislason o.fl., 2021). Að vori hefur lífmassi plöntusvifs aukist bæði norður og suður af Íslandi.
Botnbúsvæði og lífríki: Stofnstærðir rækjustofna við Ísland hafa minnkað verulega undanfarna tvo áratugi og hefur nýliðunarbrestur úthafsrækju verið viðvarandi. Þessi samdráttur er að hluta rakinn til hækkandi sjávarhita sem hefur áhrif á sviflægt lirfustig hennar, samhliða auknu afráni þorsks og áframhaldandi miklu veiðiálagi (Jónsdóttir, 2017; Jónsdóttir o.fl., 2013). Á svipaðan hátt hrundi hörpudisksstofninn við Ísland snemma á fyrsta áratug þessarar aldar á tímabili viðvarandi hlýnunar, samhliða miklu veiðiálagi, minna fæðuframboði og dauða af völdum sníkjudýra (Jónasson o.fl., 2007, Kristmundsson o.fl., 2015). Þessi dæmi sýna hversu erfitt er að greina áhrif loftslagsbreytinga frá öðrum áhrifaþáttum.
Fiskar: Útbreiðsla loðnu, sem er lykilfæðutegund á íslenska hafsvæðinu, hefur frá því snemma á fyrsta áratug þessarar aldar færst frá hlýnandi landgrunninu norður af Íslandi yfir á landgrunnið við Austur-Grænland yfir sumar- og haustmánuðina (Singh o.fl. 2025). Hækkandi sjávarhiti hefur farið saman við verulega aukningu á tegundum ættuðum úr Atlantshafi og fækkun norðurskautstegunda, sem bendir til loftslagstengdra umskipta í samsetningu botnfiskasamfélaga (Sólmundsson o.fl., 2025). Greinileg norðlæg tilfærsla sést hjá íslenskum botnfiskum á meðan sumar lykiltegundir, eins og þorskur, færa sig dýpra vegna hlýnunar yfirborðslagsins (Campana o.fl., 2020; Mason o.fl., 2021).
7. mynd Líkanaspár sem sýna líkur á að loðna finnist að hausti árin 1993–2002 (vinstri mynd) og 2003–2020 (hægri mynd) (Heimild: Singh o.fl. 2025).
Sjófuglar og sjávarspendýr: Yfirborðshiti sjávar hefur haft mikil áhrif á varpárangur og þar með viðkomu lunda (Fratercula arctica) (Hansen o.fl. 2021). Yfirborðshitinn getur haft áhrif á lifun og vöxt seiða (0-grúppu) sandsílis (Ammodytidae), sem er helsta fæða lundans, og dregið úr magni ljósátu á vetrarstöðvum hans. Á svipaðan hátt hafa breytingar á útbreiðslu hrefnu (Balaenoptera acutorostrata) frá því snemma á fyrsta áratug þessarar aldar að hluta til verið raktar til minna fæðuframboðs, einkum sandsílis og loðnu (Víkingsson o.fl., 2015).
Framtíðarsviðsmyndir
Samkvæmt spám um hlýnun á síðari hluta aldarinnar (2061–2080; 8. mynd) er gert ráð fyrir að ákjósanleg hitaskilyrði botnfiska færist norðar á íslenska hafsvæðinu. Jafnframt er búist við að búsvæði hlýsjávartegunda stækki á íslenska landgrunninu (Mason o.fl. 2021). Viðbrögð tegunda verða að líkindum mjög breytileg og má vænta þess að útbreiðsla þeirra breytist bæði eftir breiddargráðu og dýpi. Þetta getur haft áhrif á uppbyggingu fæðuvefsins, virkni vistkerfisins og fiskveiðar á svæðinu. Þá má einnig búast við samfélagslegum og efnahagslegum afleiðingum vegna breyttrar útbreiðslu mikilvægra nytjategunda. Enn fremur er talið að skipaumferð um hafsvæðið aukist þegar loftslagsbreytingar opna nýjar siglingaleiðir á norðurslóðum. Það mun líklega auka núverandi álagsþætti af mannavöldum, svo sem rusl í hafi, neðansjávarhávaða og landnám framandi tegunda.
8. mynd Spá um breytingar á meðalhita við yfirborð (vinstri mynd) og við botn (hægri mynd) á síðari hluta aldarinnar (2061–2080) miðað við viðmiðunartímabilið 1985–2015 samkvæmt félags- og efnahagslegu sviðsmyndunum (SSP) 2–4.5 (miðlungsleið) og SSP 5–8.5 (þróun sem byggir á jarðefnaeldsneyti; heimild: Mason o.fl. 2021).
Helsti þekkingarskortur
Súrnun sjávar á íslenska hafsvæðinu er sérstakt áhyggjuefni fyrir kalkmyndandi lífverur á borð við samlokur og kaldsjávarkórala. Afleiðingar súrnunar sjávar á lífríki hafsvæðisins eru þó enn lítt þekktar. Almennt séð hafa áhrif margra álagsþátta loftslagsbreytinga á lífræna ástandsþætti vistkerfisins ekki enn verið metin.
Samfélagslegt og efnahagslegt samhengi
Yfirlit yfir greinar bláa hagkerfisins
Fiskveiðar og fiskvinnsla eru hornsteinn bláa hagkerfisins á Íslandi og leggja mikið til útflutningstekna þjóðarinnar, atvinnu og lífsviðurværis sjávarbyggða. Heildarafli í fiskveiðum í atvinnuskyni nam um 1 milljón tonna árið 2024 og nam útflutningsverðmæti sjávarafurða um 347 milljörðum króna (Hagstofa Íslands, 2025a,b). Árið 2024 vógu sjávarafurðir 36 % af heildarverðmæti vöruútflutnings (Hagstofa Íslands, 2025c). Framlag fiskveiða og fiskvinnslu til vergrar landsframleiðslu (VLF) var 4,6 % árið 2025 (Hagstofa Íslands, 2026). Skráð bein störf í sjávarútvegi, bæði við veiðar og vinnslu, voru um 8 000 talsins árið 2024 (Hagstofa Íslands, 2025d). Fiskvinnslufyrirtæki skapa mikilvæga atvinnu og tekjur á landsvísu í fjölmörgum sjávarbyggðum.
Sjóflutningar gegna mikilvægu hlutverki í íslensku efnahagslífi. Á landinu eru nokkrar stórar hafnir sem þjóna fiskiskipum, vöruflutningum, skemmtiferðaskipum og innanlandsflutningum á sjó, og fer skipaumferðin einkum fram eftir helstu siglingaleiðum (Hagstofa Íslands, 2025e). Erfitt er að greina framlag þessarar atvinnugreinar til vergrar landsframleiðslu þar sem það er tekið saman með flutningum á landi.
Ferðaþjónusta hefur vaxið hratt síðasta áratug (GoI 2026) og eru ferðir skemmtiferðaskipa og sjótengd náttúruskoðun, einkum hvalaskoðun, sjófuglaskoðun og sjóstangveiði, meðal helstu greina haftengdrar ferðaþjónustu. Ferðaþjónusta skapar umtalsverða atvinnu og efnahagsleg umsvif um allt land, einkum í sjávarbyggðum, þótt framlag haftengdrar ferðaþjónustu til vergrar landsframleiðslu sé ekki birt sérstaklega.
Fiskeldi á Íslandi hefur vaxið mikið á undanförnum árum, einkum sjókvíaeldi á Atlantshafslaxi í fjörðum á Vestfjörðum og Austfjörðum (Hagstofa Íslands, 2025a). Greinin skilar 0,4 % af vergri landsframleiðslu og skapar störf á landsbyggðinni, sérstaklega í sjávarbyggðum. Framleiðsla og fjárfesting hafa aukist í takt við vaxandi eftirspurn eftir eldisafurðum á alþjóðamörkuðum (PwC, 2025). Skráð bein störf í fiskeldi voru um 1 000 talsins árið 2024 (Hagstofa Íslands, 2025d).
Menningarlegt og samfélagslegt mikilvægi auðlinda hafsins
Lífríki hafsins og hafsvæðin umhverfis landið hafa gegnt lykilhlutverki í sögu Íslands, byggðaþróun og menningarlegri sjálfsmynd þjóðarinnar. Sjávarbyggðir hafa í gegnum tíðina byggt afkomu sína á fiskveiðum og nýtingu sjávarspendýra, sem hefur mótað þróun bæja og þorpa um allt land. Skipulagsbreytingar, svo sem innleiðing framseljanlegra aflaheimilda, tækniframfarir og aukin fjölbreytni í atvinnulífi, hafa þó með tímanum breytt atvinnuháttum og samfélagslegu og efnahagslegu mikilvægi fiskveiða í sumum byggðarlögum (Lebedef og Chambers, 2023). Auk fiskveiða í atvinnuskyni styðja hafsvæðin við afþreyingu á borð við sjóstangveiði og náttúrutengda ferðaþjónustu, sem eykur vitund almennings um stjórnun og verndun auðlinda hafsins.
Samfélagsleg sátt, áhættuþættir og framtíðarhorfur
Að samræma efnahagslegan og samfélagslegan ávinning af fiskveiðum við markmið um verndun vistkerfa er eitt helsta álitamálið á íslenska hafsvæðinu. Áhyggjur almennings af áhrifum veiða, einkum botnvörpuveiða, móta áfram fiskveiðistjórnun, samhliða því sem úthlutun aflaheimilda er enn til umræðu varðandi aðgang að auðlindinni, áhrif á sjávarbyggðir og skiptingu arðsins af greininni (Gunnlaugsson og Valtysson 2022). Ör vöxtur ferðaþjónustu og skipaumferðar hefur vakið frekari áhyggjur og álitamál sem tengjast umferð skipa, rusli í hafi, röskun á dýralífi og uppbyggingu innviða við strendur (Tverijonaite og Sæþórsdóttir 2024). Hvalveiðar í atvinnuskyni hafa einnig mætt vaxandi andstöðu í samfélaginu. Þær hafa verið stundaðar með hléum á undanförnum árum vegna hruns í eftirspurn á mörkuðum. Vöxtur sjókvíaeldis hefur orðið æ umdeildari. Eldi í opnum sjókvíum mætir andstöðu vegna slysasleppinga og erfðablöndunar við villta stofna Atlantshafslax, auk mengunar og smits laxalúsar, sem magnast enn frekar vegna þess að greinin er að mestu í erlendri eigu.
Ástand vistkerfisins
Haffræðilegar aðstæður og hafstraumar
Á hafsvæðum umhverfis Ísland mætast Mið-Atlantshafshryggurinn og Grænlands-Skotlandshryggurinn skammt sunnan við heimskautsbaug. Þessi hafsvæði verða fyrir sterkum áhrifum úthafsins og þar mætast hafstraumar af ólíkum uppruna (Aagaard o.fl., 1985). Hlutfallslega heitur og selturíkur Atlantssjór kemur upp að landinu sunnanverðu með Norður-Atlantshafsstraumi og er ríkjandi á landgrunninu sunnan við land. Hann streymir þaðan annars vegar austur fyrir land í Noregshaf með Noregsstraumnum og hins vegar vestur fyrir land á landgrunnssvæði norður af landinu með Norður-Íslands-Irmingerstraumnum (9. mynd). Flutningur Atlantssjávar norður á landgrunnið er hluti af veltihringrás Atlantshafsins (AMOC) og er því háður langtímabreytingum á styrk hennar (IPCC, 2021).
Með Austur-Grænlandsstraumi og Austur-Íslandsstraumi berst kaldur og seltuminni sjór úr Grænlandshafi (pólsjór eða svalsjór) á hafsvæðin norður og austur af landinu (Aagaard og Carmack, 1989; Jónsson og Briem, 2003; 9. mynd) og hefur áhrif á lagskiptingu (einkum þykkt blandaða lagsins við yfirborð) og lífríkið þar (Malmberg og Jónsson, 1997).
Gögn sýna að hlýnun hefur orðið á íslenska landgrunninu í allri vatnssúlunni frá árinu 1975, þegar reglubundnar mælingar sjórannsókna hófust (6. mynd, vinstri hluti). Selta er mjög breytileg frá ári til árs og sýnir enga skýra eða marktæka langtímaleitni.
9. mynd Meginhafstraumar í yfirborðslögum (heilar örvar) og í dýpri lögum sjávar (brotalínur með örvum) í hafinu umhverfis Ísland og aðliggjandi hafsvæðum. Heilar appelsínugular örvar sýna leiðir Atlantssjávar í yfirborðslögum, þ.e. vestari og eystri grein Norður-Atlantshafsstraumsins og Norður-Íslands-Irmingerstrauminn. Heilar bláar örvar sýna leiðir kaldari og seltuminni pólsjávar eða svalsjávar, þ.e. Austur-Grænlandsstrauminn og Austur-Íslandsstrauminn. Grænar brotalínur með örvum sýna yfirfallssjó, þ.e. Íslands-Skotlands-yfirfallssjó, yfirfallssjó Grænlandssunds og Norður-Íslandsröst.
Uppsjávarbúsvæði og lífríki þeirra
Frumframleiðni
Frumframleiðni á íslenska hafsvæðinu er mikil og er á bilinu 150–300 g C m−2 ár−1 (Thórdardóttir, 1994; Zhai o.fl., 2012; Richardson og Bendtsen, 2021). Árlegar sveiflur í lífmassa a-blaðgrænu í yfirborðslögum eru meiri fyrir norðan land, þar sem lífmassinn eykst þegar áhrifa Atlantssjávar gætir og minnkar við innflæði kalds og seltulítils pólsjávar (10. mynd, vinstri hluti). Meðallífmassi er minni og stöðugri suður af Íslandi, sem endurspeglar yfirburði Atlantssjávar með stöðugum næringarefna- og hitaskilyrðum. Samfélög plöntusvifs eru ólík í sjó undir áhrifum Atlantssjávar annars vegar og pólsjávar hins vegar og gætu Gephyrocapsa huxleyi og Micromonas polaris nýst sem vísitegundir um Atlantssjó og pólsjó (Cerfonteyn o.fl., 2023). Upphaf gróðurtímabils (vorblómi plöntusvifs) er breytilegt að bæði lengd og tímasetningu (upphafs- og lokadegi). Að jafnaði nær tímabilið frá miðjum apríl fram í miðjan maí. Í hafinu sunnan við Ísland hefur gróðurtímabilið hafist síðar frá árinu 2006. Kísilþörungar eru yfirleitt ríkjandi í vorblómanum en skoruþörungum fjölgar í kjölfarið. Sum ár verður annar minni blómi að hausti.
Dýrasvif
Árlegur lífmassi dýrasvifs á hafsvæðinu við Ísland er breytilegur en sýnir enga ákveðna leitni, þ.e. hvorki merkjanlega viðvarandi hækkun né lækkun. Þó sjást miklar og reglubundnar sveiflur í magni dýrasvifs, bæði fyrir norðan (Siglunessnið) og fyrir sunnan land (Selvogsbankasnið), með 5–10 árum milli hámarka (10. mynd).
Lífmassi dýrasvifs í efstu 50 m að vori er á bilinu 0,4–12 g þurrvigtar m−2 (að meðaltali 3 g þurrvigtar m−2) norðan lands og á bilinu 0,5–22 g þurrvigtar m-2 (að meðaltali 6 g þurrvigtar m-2) sunnan lands (10. mynd, hægri hluti). Krabbaflær (aðallega rauðáta Calanus finmarchicus og Oithona tegundir) eru langalgengastar í miðsvifinu og nema > 60–80 % af fjölda einstaklinga flest ár (Gislason o.fl. 2009). Rauðáta er algengust sunnan við Ísland og hefur fjölgað fyrir norðan (Gislason o.fl. 2009; Gislason o.fl. 2021). Hiti og selta eru þeir umhverfisþættir sem skýra hvað mest muninn á tegundasamsetningu miðsvifs norðan og sunnan Íslands. Ljósáta er ríkjandi í stórsvifi á landgrunnsbrúninni sunnan og vestan lands og á úthafssvæðum allt í kringum landið. Auk þess eru sviflægar marflær (Hyperiidea) algengar á úthafssvæðum fyrir norðan.
10. mynd Frávik í heildarmagni a-blaðgrænu á 0–20 m dýpi (g/m2) (vinstri) og lífmassa dýrasvifs (g/m2) (hægri) á 0–50 m dýpi að vori, norðan Íslands á Siglunessniði og sunnan Íslands á Selvogsbankasniði. Brotnar línur sýna marktæka línulega leitni.
Botnbúsvæði og lífríki þeirra
Landmótun hafsbotnsins
Helstu landmótunareinkenni hafsbotns á íslenska hafsvæðinu eru landgrunnið og landgrunnshlíðin, neðansjávarhryggir og misgengisbelti tengd Mið‑Atlantshafshryggnum, jökulsorfnir álar, neðansjávargljúfur og eldfjallamyndanir (EMODnet https://emodnet.ec.europa.eu/en/geology). Um 66 % hafsvæðisins hafa verið kortlögð í mikilli upplausn með fjölgeislamælingum (MFRI: https://www.hafogvatn.is/en/research/seabed-mapping).
Botnlífríki
Þróun á lífmassa níu rækjustofna sýnir mikla lækkun allra þeirra frá því um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Aðeins eru stundaðar veiðar úr tveimur stofnum. Leturhumarsstofninn, sem er við nyrstu mörk útbreiðslu tegundarinnar, hefur tveggja ára æxlunarhring og hægari vöxt kvendýra eftir kynþroska en stofnar sunnar í Atlantshafi, sem dregur úr hlutfallslegri framleiðni hans. Stofninn er nú talinn mjög lítill og undir mögulegum gátmörkum (Bpa). Veiðistofninn hefur minnkað mjög mikið frá 2009 og eru nú humarveiðar bannaðar. Aðrar nytjategundir botnlífvera eru m.a. beitukóngur (Buccinum undatum), ígulker (þ.e. Strongylocentrotus droebachiensis), brimbútur (Cucumaria frondosa), kúfskel (Arctica islandica), stórþari (Laminaria hyperborea) og klóþang (Ascophyllum nodosum).
Á íslenska hafsvæðinu er að finna fjölbreytt botnbúsvæði. Þaraskógar finnast á grunnsævi allt umhverfis Ísland að undanskilinni sandströndinni á Suðurlandi. Úti fyrir Norðurlandi þekja þaraskógar um 450 km2 svæði. Þekking á útbreiðslu kalkþörungabreiða á íslenska hafsvæðinu hefur aukist mikið á síðustu árum og eru þau þéttust austan-, vestan- og norðvestanlands. Önnur grunnsævisbúsvæði eru meðal annars marhálmsbreiður og öðuskeljabreiður. Á meira dýpi eru auðug og fjölbreytt botndýrasamfélög. Sjötíu og sjö tegundir kaldsjávarkóralla hafa fundist á breiðu dýpis- (15–2 710 m) og hitabili. Þrjú tegundasamfélög endurspegla mun á kaldari sjó norðan lands og hlýrri sjó sunnan og vestan lands og er fjölbreytnin mest í hlýja sjónum (Ólafsdóttir o.fl., 2026). Nokkrir þessara kóraltegunda, auk djúpsjávarsvampa, eru taldir vísitegundir á viðkvæm vistkerfi sjávar (Burgos o.fl., 2020). Þar á meðal eru rifmyndandi kóralarnir Desmophyllum pertusum, Madrepora oculata og Solenosmilia variabilis, svampar af ættkvíslinni Geodia sem svampabreiða (svokallaðra „osta”), og aðrir vísihópar á borð við sæfjaðrir.
11. mynd Skráningar á vísihópum viðkvæmra vistkerfa sjávar (VME): kóralrif (rautt), svampabreiður á mjúkum og hörðum botni (blátt), önnur VME (grátt).
Fiskar
Á íslenska hafsvæðinu hafa fundist yfir 300 fisktegundir og eru að minnsta kosti 80 tegundir skráðar árlega í stofnmælingum botnfiska (Jónsson og Pálsson, 2013). Helstu uppsjávarstofnar sem eru veiddir eru loðna, íslensk sumargotssíld, norsk-íslensk vorgotssíld, makríll og kolmunni. Helstu tegundir botnsjávarfiska (bol- og flatfiskar) eru þorskur, ýsa (Melanogrammus aeglefinus), ufsi, gullkarfi (Sebastes norvegicus), djúpkarfi (S. mentella), grálúða (Reinhardtius hippoglossoides), langlúra (Glyptocephalus cynoglossus) og langa (Molva molva). Flestar fisktegundir hrygna á landgrunninu sunnan og suðvestan Íslands í hlýjum Atlantssjó. Fisklirfur og seiði (0-grúppa) reka á uppeldisslóð á landgrunninu norðvestan, norðan og austan Íslands og hjá sumum tegundum á landgrunnið við Austur-Grænland, þar sem þau alast upp í blöndu Atlantssjávar og svalsjávar.
Uppsjávarfiskistofnar á íslenska hafsvæðinu hafa gengið í gegnum miklar breytingar á stofnstærð, útbreiðslu og göngumynstri á undanförnum áratugum vegna veiða, hlýnunar og fæðuframboðs (Valdimarsson o.fl., 2012; ICES, 2024). Eftir hrun þriggja síldarstofna á hafsvæðinu undir lok sjöunda áratugar síðustu aldar náði íslenska sumargotssíldin sér fljótt á strik, en ekki íslenska vorgotssíldin.
Miklar breytingar hafa orðið frá upphafi þessarar aldar á samfélagi uppsjávarfiska: stofn norsk-íslensku vorgotssíldarinnar hefur stækkað og í kjölfarið tekið aftur upp göngur á fæðuslóð austan og norðan Íslands; makrílstofninn í Norðaustur-Atlantshafi stækkaði og breiddist vestur á Íslandsmið; fæðuslóð loðnu að sumri færðist frá íslenska hafsvæðinu yfir á grænlensk hafsvæði, þótt hrygningarsvæðin séu enn fyrir sunnan og vestan Íslands.
Útbreiðsla nokkurra hlýsjávartegunda, eins og ýsu, skötusels, löngu og þykkvalúru, hefur breyst og hefur sýnt tilfærslu til vesturs, norðvesturs og norðurs. Útbreiðsla sumra kaldsjávartegunda hefur á sama tíma dregist saman (Valdimarsson o.fl., 2012, Sólmundsson o.fl. 2025). Umhverfisskilyrði síðustu áratuga hafa að mestu verið hagstæð suðlægum Atlantshafstegundum (t.d. skötusels, brislings og spærlings) (Sólmundsson o.fl. 2025).
Á íslenska hafsvæðinu er mikið og fjölbreytt en lítt rannsakað miðsævisfiskasamfélag. Algengustu tegundirnar eru ísalaxsíld (Benthosema glaciale), ísahafslaxíld (Protomyctophum arcticum) og tegundir af stirnaætt (Cyclothone tegundir).
Fyrir nytjastofna sem metnir eru með stofnmatslíkönum m.t.t. lífmassaaðgerðarmarka (MSY Btrigger) eru hrygningarstofnar botnlægra stofna (bolfiskar), botnfiskstofna (flatfiskar) og uppsjávarstofna yfir Btrigger (12. mynd). Sumir uppsjávar- og botnfiskstofnar, þ.e. makríll, norsk-íslensk vorgotssíld, djúpkarfi og neðri stofn úthafskarfa, eru þó nú undir viðmiðunarmörkum lífmassa. Nánari upplýsingar um ástand einstakra fiskstofna er að finna í stofnstöðuhluta fisheriesXplorer.
12. mynd Hlutfallsleg stærð hrygningarstofns (hlutfallið SSB/Btrigger) eftir hópum flatfiska, bolfiska og uppsjávarstofna. Punktalínan sýnir Btrigger.
Sjófuglar
Tuttugu og þrjár tegundir sjófugla verpa á Íslandi og telja samtals um 6 milljónir varppara. Sjö tegundir (13. mynd) nema 92 % allra varppara á íslenska hafsvæðinu (hver um sig með fleiri en 200 þúsund varppör). Stofnþróun allra tegunda var neikvæð á tímabilinu 1982–2007 (Kolbeinsson, 2025). Fýl og ritu hefur haldið áfram að fækka síðan, á meðan svartfuglastofnar hafa rétt lítillega úr kútnum (Kolbeinsson, 2025). Varpútbreiðsla er mest við vesturhluta landsins, þar sem 90 % svartfugla (að undanskildum lunda) verpa í risabyggðum, ásamt 47 % fýla og 56 % rita. Aðalvarpbyggð lunda fyrir sunnan hýsir um 40 % stofnsins. Helstu fæðusvæðin eru suður af landinu, þar sem mikið er af ljósátu og mikilvæg hrygningarsvæði þeirra fiska sem eru fæða fuglanna, einkum loðna og sandsíli. Æðarfugl, sem heldur sig á grunnsævi, aflar sér fæðu á botninum.
13. mynd Hlutfallslegur fjöldi sjö sjófuglategunda umhverfis Ísland. Stærð skífuritanna endurspeglar fjöldann.
Sjávarspendýr
Íslenska hafsvæðið er hluti af stærra útbreiðslusvæði margra sjávarspendýrategunda í Norður-Atlantshafi. Þrjátíu og þrjár tegundir spendýra hafa fundist við Ísland og þar af halda að minnsta kosti 11 hvalategundir sig reglulega á svæðinu (NAMMCO, 2020). Íslenska hafsvæðið er sameiginleg sumarfæðuslóð fjögurra tegunda skíðishvala (Mysticeti), sem eru á vistsvæðinu aðallega frá apríl til nóvember. Hrefnu fækkaði verulega á vistsvæðinu fram til ársins 2015 en bráðabirgðamat fyrir árið 2024 bendir til fjölgunar (Víkingsson o.fl. 2015; https://www.hafogvatn.is/static/extras/images/1009-miw_2026_advice_en.html). Langreyði (Balaenoptera physalus) fjölgaði fram til ársins 2015 en bráðabirgðamat fyrir árið 2024 bendir til fækkunar á svæðinu (https://www.hafogvatn.is/static/extras/images/1001_fin_2026_advice_en.html). Hnúfubak fjölgaði fram til ársins 2015 og finnst hann nú allt árið um kring á íslenska hafsvæðinu (Chicco o.fl. 2025). Mun minna finnst af steypireyði (Balaenoptera musculus) (NAMMCO 2020).
Sjö tegundir tannhvala (Odontoceti) hafa fundist í hafinu við Ísland. Búrhval (Physeter macrocephalus) hefur fjölgað á undanförnum áratugum (NAMMCO 2020) og sést hann aðallega á djúpslóð sunnan og vestan Íslands. Andarnefja (Hyperoodon ampullatus) heldur sig eingöngu á djúpslóð (Whitehead og Hooker 2012). Háhyrningur (Orcinus orca) sést reglulega í tengslum við uppsjávarfisk og halda staðbundnir hópar til allt árið í sumum fjörðum. Grindhvalur (Globicephala melas) sést reglulega á íslenska hafsvæðinu en útbreiðsla hans er breytileg frá ári til árs (Pike o.fl., 2018). Meðal minni tegunda eru hnísa, hnýðingur (Lagenorhynchus albirostris) og leiftur (Leucopleurus acutus), sem finnast reglulega á íslenska landgrunninu og utan þess, stundum í stórum hópum (Pike o.fl. 2019).
Sex tegundir sela hafa fundist við Ísland en einungis tvær tegundir, landselur og útselur (Halichoerus grypus), kæpa hér við land að staðaldri. Stofnstærðir landsels og útsels hafa farið stöðugt minnkandi frá árinu 1980. Núverandi stofnmat landsels er 14 % undir stjórnunarmarkmiði.
Fæðuvefir
Fæðuvefur íslenska hafsvæðisins einkennist af mikilli frumframleiðni, einkum á skilabeltum suðaustur og norðvestur af Íslandi (Ástthorsson o.fl. 2007). Frum- og síðframleiðni eru mjög breytileg bæði í tíma og rúmi (Ástthorsson o.fl. 1995). Loðna er lykilfæðutegund á vistsvæðinu og flytur orku frá lægri fæðuþrepum upp á þau hærri. Loðna lifir einkum á Calanus-tegundum (t.d. rauðátu) og ljósátu. Á göngu sinni frá fæðuslóð norður af Íslandi á hrygningarslóðir fyrir sunnan verður loðna aðalfæða margra tegunda, þar á meðal botnfiska á borð við þorsk, ýsu, ufsa og grálúðu, auk afræningja efst í fæðuvefnum eins og sjófugla og sjávarspendýra. Samspil þorsks og loðnu er eitt mikilvægasta fæðutengslakerfið á íslenska hafsvæðinu, en loðna nemur yfir helmingi af fæðu bæði ungþorsks og fullorðins þorsks í þyngd. Aðrar tegundir á miðfæðuþrepum, svo sem rækja, sandsíli og ljósáta, eru einnig mikilvæg bráð botnfiska, uppsjávarfiska, sjófugla og sjávarspendýra. Árlegt át hvala á fiskum, smokkfiskum og krabbadýrum á íslenska hafsvæðinu hefur verið metið á 6,5 milljónir tonna, og vega hrefna og langreyður samanlagt meirihluta þess (Sigurjónsson og Víkingsson, 1997, Sonjudóttir o.fl., 2024).
Framandi tegundir
Þrjátíu og sjö framandi sjávartegundir og 53 tegundir af óljósum eða óþekktum uppruna hafa verið skráðar í strandsjó á íslenska hafsvæðinu. Skráningarnar ná frá byrjun tuttugustu aldar til ársins 2026 (http://www.natturustofa.is/framandi_sjavarlifverur.html). Skráðu tegundirnar tilheyra fjölbreyttum hópi lífvera, þar á meðal svifþörungum, stórþörungum, holdýrum, mosadýrum, liðormum, krabbadýrum, lindýrum, möttuldýrum og fiskum. Margar tegundir hafa fundist í fyrsta sinn á síðustu tveimur áratugum. Vöktun hefur aukist frá árinu 2015 og því ber ekki að túlka tíðni fyrstu skráninga beint sem hraða landnáms. Skipaumferð er talin helsta leið framandi tegunda af mannavöldum til Íslands, einkum með kjölfestuvatni og ásætu á skipskrokkum. Nokkrar framandi tegundir hafa nú fest sig í sessi og eru staðbundið algengar í íslenskum strandsjó. Lengsta vöktun framandi sjávartegundar á Íslandi lýtur að grjótkrabba (Cancer irroratus), en fylgst hefur verið með honum frá því að hann fannst fyrst við Ísland árið 2006. Eldislax úr sjókvíaeldi er ekki af íslenskum uppruna og eru áhyggjur af erfðablöndun og dreifingu hans í villta stofna.
Líffræðileg fjölbreytni
Vísar um líffræðilega fjölbreytni botnfiskasamfélagsins á árunum 2015–2024 byggja á ramma um lykilbreytur líffræðilegrar fjölbreytni og sýna skýrt landfræðilegt mynstur á íslenska landgrunninu. Tegundafjölbreytni og fjölbreytni eiginleika (14. mynd A) eru meiri á landgrunninu. Virknifjölbreytni er meiri á landgrunni Austur-Grænlands, í landgrunnshlíðinni norður af Íslandi og á Íslands-Færeyjahryggnum (14. mynd C). Þetta stafar líklega af því að í staðbundnu samfélögunum koma saman bæði grunn- og djúpsjávarbotnfiskar, auk tegunda með líflandfræðileg tengsl við bæði heimskautssvæði og norðlæg svæði (eða Atlantshafssvæði). Jafnræði tegunda minnkar í átt að landgrunnsbrúninni, sem bendir til þess að fáar tegundir verði sífellt ríkjandi eftir því sem dýpra dregur (14. mynd B). Virknijafnvægi (líka starfrænt jafnvægi) minnkar með dýpi í landgrunnshlíðinni suðvestur af Íslandi, sem bendir til þess að þar myndist botnfiskasamfélög þar sem engin ein tegund eða eiginleiki er ríkjandi (14. mynd D). Öfug þróun í landgrunnshlíðinni fyrir norðan bendir hins vegar til þess að fáar og afmarkaðar tegundir séu ríkjandi í samfélaginu.
14. mynd Mynstur í vísum um líffræðilega fjölbreytni botnfiska, sýnt sem meðalgildi fyrir A) tegundafjölbreytni, B) jafnvægi tegunda, C) starfrænnar auðgi (virknifjölbreytni), D) starfræns jafnræðis (virknijafnvægi) (niðurstöður úr B-USEFUL, Lindegren o.fl. 2025).
Samþætt greining á 748 000 skráningum um 172 flokkunarfræðilegar einingar botnfiska og 1 225 flokkunarfræðilegar einingar botnlægra hryggleysingja, ásamt breytum um dýpi, landslag hafsbotns, botnhita, frumframleiðni, næringarefni og mettun aragóníts, leiddi í ljós skýrt afmörkuð botnlífsvæði (15. mynd).
15. mynd Bráðabirgðaflokkun botnlífsvæða. Vinstri mynd: flokkun í fimm hópa sem gefur vísbendingar um möguleg lífsvæði. Hægri mynd: flokkun í 50 hópa sem sýnir mögulega flokka fyrir flokkunarkerfi botnsvæða. Líkindi í lit endurspegla líkindi í samsetningu botnsamfélaga (niðurstöður úr BioProtect).
Vísar um líffræðilega fjölbreytni og skilgreining og afmörkun lífsvæða geta nýst til að tryggja að útnefning verndarsvæða í hafi, eða neta slíkra svæða, endurspegli víðtækari vistfræðilega ferla og botnsamfélög.
Heimildir og þakkir
Efni svæðisbundinna vistkerfisyfirlita ICES byggir á upplýsingum og þekkingu sem aflað hefur verið í eftirfarandi starfi á vegum ICES: vinnustofu um aðferðarýni fyrir samþætt vistkerfismat (WKBEMIA) 2012; vinnustofu ráðgjafarnefndar og vísindanefndar ICES (ACOM/SCICOM) um vistkerfisyfirlit (WKECOVER) 2013; vinnustofu um gerð draga að ráðgjöf um vistkerfisyfirlit (WKDECOVER) 2013; vinnustofu um hönnun og umfang þriðju kynslóðar vistkerfisyfirlita ICES (WKEO3) 2019; vinnustofu um aðferðir og leiðbeiningar til að tengja saman athafnir mannsins, álagsþætti og ástand vistkerfisins í vistkerfisyfirlitum (WKTRANSPARENT) 2020; vinnustofu um fjórðu kynslóð vistkerfisyfirlita (WKEO4) 2025; rýnihópi um vistkerfisyfirlit (RGEO) 2026; og ráðgjafarhópi um lokafrágang draga að vistkerfisyfirlitum (ADGEO) 2026.
Vinnuhópur um samþætt vistkerfismat á íslenska hafsvæðinu (WGICE) leiddi matið og ritun meginkafla þessa yfirlits.
Kort og myndir í yfirlitinu eru unnin sem hér segir:
- 1. mynd: Unnin af landupplýsingadeild skrifstofu ICES. Gögn:
- Almennt dýptarkort heimshafanna (General Bathymetric Chart of the Oceans, GEBCO) fyrir dýptarlínur.
- Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) fyrir vistsvæði og svæði ICES.
- 2. mynd: Unnin af skrifstofu ICES. Gögn: niðurstöður áhættumats WGICE (ICES, 2026a).
- 3. mynd: Unnin af skrifstofu ICES: stofnstöðuhluti fisheriesXplorer.
- 4. mynd: Unnin af WGICE. Gögn: gagnagrunnur Hafrannsóknastofnunar.
- 5. mynd: Unnin af WGICE. Gögn: gagnagrunnur Hafrannsóknastofnunar.
- 6. mynd: Unnin af WGICE. Gögn: gagnagrunnur Hafrannsóknastofnunar.
- 7. mynd: Heimild: Singh o.fl. 2025.
- 8. mynd: Heimild: Mason o.fl. 2021.
- 9. mynd: Unnin af WGICE. Gögn: gagnagrunnur Hafrannsóknastofnunar.
- 10. mynd: Unnin af WGICE.
- 11. mynd: Unnin af WGICE. Gögn: gagnagrunnur Hafrannsóknastofnunar.
- 12. mynd: Unnin af skrifstofu ICES: stofnstöðuhluti fisheriesXplorer.
- 13. mynd: Unnin af WGICE. Gögn: Náttúrustofa Suðurlands og Náttúrustofa Norðausturlands.
- 14. mynd: Unnin í B-USEFUL-verkefninu, https://b-useful.eu/ (Lindegren o.fl. 2025).
- 15. mynd: Unnin í BioProtect-verkefninu, https://bioprotect-project.eu/. Birt með leyfi í ICES 2026a.
Heimildir og ritaskrá
Aagaard, K., and Carmack, E. C. 1989. The role of sea ice and other fresh water in the Arctic circulation. Journal of Geophysical Research: Oceans, 94(C10): 14485–14498. https://doi.org/10.1029/JC094iC10p14485
Aagaard, K., Swift, J. H., and Carmack, E. C. 1985. Thermohaline circulation in the Arctic Mediterranean Seas. Journal of Geophysical Research: Oceans, 90(C3): 4833–4846. https://doi.org/10.1029/JC090iC03p04833
Ástthorsson, O. S., & Gislason, A. (1995). Long-term changes in zooplankton biomass in Icelandic waters in spring. ICES Journal of Marine Science, 52(3-4), 657-668.
Ástthorsson, O.S., Gíslason, Á., & Jónsson, S. (2007). Climate variability and the Icelandic marine ecosystem. Deep-Sea Research Part II: Topical Studies in Oceanography, 54(23–26), 2456–2477. https://doi.org/10.1016/j.dsr2.2007.07.030
Bai, Z., Wang, N., and Wang, M. 2021. Effects of microplastics on marine copepods. Ecotoxicology and Environmental Safety, 217: 112243. https://doi.org/10.1016/j.ecoenv.2021.112243
Basran, C. J., Bertulli, C. G., Cecchetti, A., Rasmussen, M. H., Whittaker, M., and Robbins, J. 2019. First estimates of entanglement rate of humpback whales Megaptera novaeangliae observed in coastal Icelandic waters. Endangered Species Research, 38: 67–77. https://doi.org/10.3354/esr00936
Blache, M. 2021. Way down we go: using bottom trawling to survey benthic debris in Icelandic waters. M.Sc. thesis, University of Iceland. https://skemman.is/handle/1946/39161
Brawn, C., Hamilton, B. M., Savoca, M. S., Bardarson, B., Vermaire, J. C., and Provencher, J. F. 2023. Suspected anthropogenic microparticle ingestion by Icelandic capelin. Marine Pollution Bulletin, 196: 115552. https://doi.org/10.1016/j.marpolbul.2023.115552
de Bruijn, R. A. 2024. Microplastic presence in blue mussels (Mytilus edulis) from the Westfjords, Iceland. Master's thesis, University of Akureyri, Akureyri, Iceland. https://hdl.handle.net/1946/47938
Burgos, J.M., Buhl-Mortensen, L., Buhl-Mortensen, P., Ólafsdóttir, S.H., Steingrund, P., Ragnarsson, S.Á. and Skagseth, Ø., 2020. Predicting the distribution of indicator taxa of vulnerable marine ecosystems in the Arctic and sub-arctic waters of the Nordic Seas. Frontiers in Marine Science, 7, p.131.
Campana, S. E., Stefánsdóttir, R. B., Jakobsdóttir, K., and Sólmundsson, J. 2020. Shifting fish distributions in warming sub-Arctic oceans. Scientific Reports, 10: 16448. https://doi.org/10.1038/s41598-020-73444-y
Chambers, C., Einarsson, N., and Karlsdóttir, A. 2020. Small-scale fisheries in Iceland: local voices and global complexities. In Small-Scale Fisheries in Europe: Status, Resilience and Governance, pp. 329–349. MARE Publication Series 23.
Chicco, C., Papale, E., Wensveen, P. J., Mouy, X., and Samarra, F. I. 2025. Using acoustic monitoring to reveal nearly year-round presence of humpback whales (Megaptera novaeangliae) in the waters of southern Iceland. Marine Mammal Science, 41(2): e13198.
Chosson, V., Randhawa, H. S., Sigurðsson, G. M., et al. 2023. First record of Risso’s dolphin Grampus griseus (Cuvier, 1812) in Icelandic waters. Ecology and Evolution, 13(9). https://doi.org/10.1002/ece3.10477
de Vries, A. N., Govoni, D., Árnason, S. H., and Carlsson, P. 2020. Microplastic ingestion by fish: body size, condition factor and gut fullness are not related to the amount of plastics consumed. Marine Pollution Bulletin, 151: 110827. https://doi.org/10.1016/j.marpolbul.2019.110827
Dubois, K., Ruiz-Angulo, A., Van Gennip, S., Ellingsen Ottarsdottir, R.M., Trubiano, A. and Karnauskas, K. (in preparation) ‘From cold spells to heat waves: The evolution of marine heat waves around Iceland’.
Friðriksson, Á. 1949. Boreo-tended changes in the marine vertebrate fauna of Iceland during the last 25 years. Rapports et Procès-Verbaux des Réunions du Conseil International pour l'Exploration de la Mer, 125: 30–32.
Gislason, A., Gudmundsson, K., Olafsdottir, S. R., and Petursdottir, H. 2021. Inter-annual and decadal variability of Calanus finmarchicus and C. hyperboreus in Subarctic waters north of Iceland 1990–2020. ICES Journal of Marine Science, 78(10): 3735–3747. https://doi.org/10.1093/icesjms/fsab218
Gislason, A., Petursdottir, H., Astthorsson, O.S., Gudmundsson, K. and Valdimarsson, H., 2009. Interannual variability in abundance and community structure of zooplankton south and north of Iceland in relation to environmental conditions in spring 1990–2007. Journal of Plankton Research, 31(5), pp.541-551. https://doi.org/10.1093/plankt/fbp007
Gislason, A., Petursdottir, H., and Gudmundsson, K. 2014. Long-term changes in abundance of Calanus finmarchicus south and north of Iceland in relation to environmental conditions and regional diversity in spring 1990–2013. ICES Journal of Marine Science, 71(9): 2539–2549. https://doi.org/10.1093/icesjms/fsu098
GoI Government of Iceland 2026. Tourism in Iceland. https://www.government.is/topics/business-and-industry/tourism-in-iceland/ (last accessed 18 March 2026).
Gunnlaugsson, S. B., and Valtysson, H. 2022. Sustainability and wealth creation, but no consensus: recent decades in Iceland’s ITQ-managed fisheries. Marine Policy, 135: 104836.
Hansen, E. S., Sandvik, H., Erikstad, K. E., Yoccoz, N. G., Anker-Nilssen, T., Bader, J., Descamps, S., et al. 2021. Centennial relationships between ocean temperature and Atlantic puffin production reveal shifting decennial trends. Global Change Biology, 27(16): 3753–3764. https://doi.org/10.1111/gcb.15665
Holliday, N. P., Bersch, M., Berx, B., et al. 2020. Ocean circulation causes the largest freshening event for 120 years in eastern subpolar North Atlantic. Nature Communications, 11: 585. https://doi.org/10.1038/s41467-020-14474-y
ICES. 2021. Icelandic Waters ecosystem – Fisheries overview. In Report of the ICES Advisory Committee, 2021. ICES Advice 2021, section 11.2. https://doi.org/10.17895/ices.advice.9167
International Maritime Organization. 2021. Microplastics from anti-fouling paints: an overlooked source of marine plastic litter. MEPC 77/8/1.
Jónsdóttir, I. G. 2017. Predation on northern shrimp (Pandalus borealis) by three gadoid species. Marine Biology Research, 13: 447–455. https://doi.org/10.1080/17451000.2016.1272697
Jónsdóttir, I. G., Magnússon, Á., and Skúladóttir, U. 2013. Influence of increased cod abundance and temperature on recruitment of northern shrimp (Pandalus borealis). Marine Biology, 160(5): 1203–1211. https://doi.org/10.1007/s00227-013-2172-1
Jónasson, J. P., Thorarinsdóttir, G. G., Eiriksson, H., Solmundsson, J., and Marteinsdottir, G. 2007. Collapse of the fishery for Iceland scallop (Chlamys islandica) in Breidafjördur, West Iceland. ICES Journal of Marine Science, 64(2): 298–308. https://doi.org/10.1093/icesjms/fsl028
Jónsson, G., and J. Pálsson. 2013. Íslenskir fiskar (in Icelandic). Mál og menning, Reykjavík, Iceland
Jónsson, S., and Briem, J. 2003. The transport of water and fresh water with the East Icelandic Current. ICES CM 2003/T:05, 1–12.
Kolbeinsson, Y., Gunnarsdóttir, H., and Þórarinsson, Þ. L. 2025. Vöktun bjargfugla 2025. Framvinduskýrsla unnin fyrir Umhverfisverndarstofnun. Náttúrustofa Norðausturlands NNA-2501.
Kristmundsson, Á., Erlingsdóttir, Á., and Freeman, M. A. 2015. Is an apicomplexan parasite responsible for the collapse of the Iceland scallop (Chlamys islandica) stock? PLOS ONE, 10(12): e0144685. https://doi.org/10.1371/journal.pone.0144685
Kühn, S., and van Franeker, J. A. 2012. Plastic ingestion by the northern fulmar (Fulmarus glacialis) in Iceland. Marine Pollution Bulletin, 64(6): 1252–1254. https://doi.org/10.1016/j.marpolbul.2012.02.027
Laute, A., Grove, T. J., Rasmussen, M. H., et al. 2022. Impact of whale-watching vessels on humpback whale calling behavior on an Icelandic foraging ground during the Covid-19 pandemic. Marine Ecology Progress Series, 701: 159–173. https://doi.org/10.3354/meps14202
Lebedef, E. A., and Chambers, C. 2023. Youth and newcomers in Icelandic fisheries: opportunities and obstacles. Maritime Studies, 22(3): 34.
Lindegren, M., et al, 2025. B-USEFUL. Report on temporal trends and spatial patterns of multiple biodiversity indicators. Technical University of Denmark.
Malmberg, S.-A., and Jónsson, S. 1997. Timing of deep convection in the Greenland and Iceland Seas. ICES Journal of Marine Science, 54: 300–309.
Mason, J. G., Woods, P. J., Thorlacius, M., Guðnason, K., Saba, V. S., Sullivan, P. J., and Kleisner, K. M. 2021. Projecting climate-driven shifts in demersal fish thermal habitat in Iceland’s waters. ICES Journal of Marine Science, 78(10): 3793–3804. https://doi.org/10.1093/icesjms/fsab230
North Atlantic Marine Mammal Commission (NAMMCO). 2020. Estimates of Cetacean Abundance in the North Atlantic of Relevance to NAMMCO. NAMMCO Scientific Publications, 11. https://doi.org/10.7557/3.5732
Ólafsdóttir, S. H., Ragnarsson, S. Á., Burgos, J. M., Hjörleifsson, E., Jakobsdóttir, K. B., and Þórðarson, G. 2021. Vernd viðkvæmra botnvistkerfa: samantekt upplýsinga og mat á fimm þáttum er varða viðkvæm botnvistkerfi fyrir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Haf- og vatnarannsóknir HV 2021-50. Hafrannsóknastofnun. https://www.hafogvatn.is/static/research/files/hv2021-50.pdf
Ólafsdóttir, S. H., Burgos, J, and Guðmundsson, G. 2026. Distribution and biodiversity of cold-water corals in Icelandic waters at the boundaries of the N-Atlantic and the Arctic. Marine Biodiversity, 56(3): 46. https://doi.org/10.1007/s12526-026-01648-y
Orkustofnun. 2023. Minerals on seabed. National Energy Authority of Iceland. https://orkustofnun.is/en/natural_resources/minerals/seabed [Accessed 12 August 2026]
OSPAR 2026. Guiding tool for incorporating Climate Change and Ocean Acidification elements in OSPAR assessments. OSPAR-WG-COCOA, 2026.
Ovide, B.G., Cirino, E., Basran, C.J., Geertz, T., and Syberg, K. 2022. Assessment of prevalence and heterogeneity of meso- and microplastic pollution in Icelandic waters. Environments, 9: 150. https://doi.org/10.3390/environments9120150
Ovide, B.G., Barbaccia, E., Lorenz, C., Basran, C.J., Cirino, E., Syberg, K., and Rasmussen, M.H. 2025. Validating citizen science for community-driven microplastic monitoring and marine protection in Northeast Iceland's Hope Spot. Marine Pollution Bulletin, 213: 117638. https://doi.org/10.1016/j.marpolbul.2025.117638
Payne, M. R., Kudahl, M., Engelhard, G. H., Peck, M. A., and Pinnegar, J. K. 2021. Climate risk to European fisheries and coastal communities. Proceedings of the National Academy of Sciences, 118(40): e2018086118. https://doi.org/10.1073/pnas.2018086118
Petersen, A. 2002. Sjófuglar og fiskveiðar: meðafli sjófugla [Seabird bycatch]. Náttúrufræðingurinn.
Pétursdóttir, H., Guðmundsson, K. and Gíslason, Á., 2021. Phytoplankton and zooplankton. In Oskarsson, G.J. (Ed), Status of the environment and ecosystems in Icelandic Waters and scenarios for next decades [in Icelandic]. Haf- og vatnarannsóknir, HV 2021-14. Marine and Freshwater Research Institute, 2021.
Pierce, K.E., Harris, R.J., Larned, L.S., and Pokras, M.A. 2004. Obstruction and starvation associated with plastic ingestion in a Northern Gannet Morus bassanus and a Greater Shearwater Puffinus gravis. Marine Ornithology, 32(2): 187–189.
Pike, D. G., Gunnlaugsson, T., Mikkelsen, B., Halldórsson, S. D., and Víkingsson, G. 2019. Estimates of the abundance of cetaceans in the central North Atlantic based on the NASS Icelandic and Faroese shipboard surveys conducted in 2015. NAMMCO Scientific Publications, 11. https://doi.org/10.7557/3.4941
Pike, D. G., Gunnlaugsson, T., Mikkelsen, B., et al. 2018. Estimates of the relative abundance of long-finned pilot whales (Globicephala melas) in the Northeast Atlantic from 1987 to 2015 indicate no long-term trends. NAMMCO Scientific Publications, 11.
Podbielska, M. and Szpyrka, E., 2023. Microplastics–An emerging contaminants for algae. Critical review and perspectives. Science of The Total Environment, 885, p.163842. DOI10.1016/j.scitotenv.2023.163842
Prata, J.C., Da Costa, J.P., Lopes, I., Duarte, A.C. and Rocha-Santos, T., 2019. Effects of microplastics on microalgae populations: a critical review. Science of the Total Environment, 665, pp.400-405. https://doi.org/10.1016/j.scitotenv.2019.02.132
PwC. 2025. Milljón á tonn. Samantekt um fiskeldi á Íslandi 2022-2024. https://www.pwc.is/is/assets/document/2025/september/Fiskeldi-samantekt-2022-2024.pdf (last accessed 23rd March 2026).
Richardson K and Bendtsen J (2021) Distinct Seasonal Primary Production Patterns in the Sub-Polar Gyre and Surrounding Seas. Front. Mar. Sci. 8:785685. doi: 10.3389/fmars.2021.785685
Sigfusson, T., Arnason, R., and Morrissey, K. 2013. The economic importance of the Icelandic fisheries cluster — understanding the role of fisheries in a small economy. Marine Policy, 39: 154–161. https://doi.org/10.1016/j.marpol.2012.10.015
Sigurjónsson, J., and Víkingsson, G.A. 1997. Seasonal abundance of and estimated food consumption by cetaceans in Icelandic and adjacent waters. Journal of Northwest Atlantic Fishery Science, 22: 271–287.
Sigurðardóttir, P., and Ólafsdóttir, S. H. 2022. Haf- og vatnarannsóknir / Marine and Freshwater Research in Iceland.
Singh, W., Guðnason, K., Montanyès, M., and Lindegren, M. 2025. Climate-driven response of the Iceland–East Greenland–Jan Mayen capelin distribution. Fisheries Oceanography. https://doi.org/10.1111/fog.12702
Snæþórsson, A. Ö. 2025. Plast í meltingarvegi fýla við Ísland árið 2025. NNA-2503. Náttúrustofa Norðausturlands. https://ust.is/library/sida/haf-og-vatn/NNA2503-Plast_i_meltingarvegi_fyla_vid_Island_2025.pdf
Solloway, H. A. I., Micael, J., and Gíslason, S. 2024. Marine litter as a vector for fouling species in Iceland. Ocean and Coastal Research, 72: e24076. https://doi.org/10.1590/2675-2824072.23185
Statistics Iceland. 2025a. Fish catch and value in 2024. News Release, Fisheries, 17 October 2025. https://www.statice.is/publications/news-archive/fisheries/fish-catch-and-value-in-2024/
Statistics Iceland. 2025b. Decrease in export of fisheries products in 2024. News Release, Fisheries, 24 June 2025. https://www.statice.is/publications/news-archive/fisheries/export-of-fisheries-products-2024/
Statistics Iceland. 2025c. Trade in goods 2024, final data. News Release, 14 May 2025. https://statice.is/publications/news-archive/external-trade/trade-in-goods-2024-final-data
Statistics Iceland. 2025d. Register-based employment by economic activity 2024. Statistical Database. https://statice.is/stat-bank
Statistics Iceland. 2025e. Transport through seaports 2024. News Release, Environment, 8 October 2025. https://statice.is/publications/news-archive/environment/transport-through-seaports-2024/
Statistics Iceland. 2026. National Accounts — Value added by industry 2024. Statistical Database. https://statice.is/stat-bank
Sólmundsson, J., Sigurðsson, Ó.A., Jónsdóttir, I, and Jónsson, S. 2025. How different life-history strategies respond to changing environments: a multi-decadal study of groundfish communities. Scientific Reports, 15(1): 20441. https://doi.org/10.1038/s41598-025-02204-7
Tanaka, K., Yamashita, R., and Takada, H. 2018. Transfer of hazardous chemicals from ingested plastics to higher-trophic-level organisms. In: Takada, H., and Karapanagioti, H.K. (eds), Hazardous Chemicals Associated with Plastics in the Marine Environment. The Handbook of Environmental Chemistry, vol. 78, pp. 267–280. Springer, Cham. https://doi.org/10.1007/698_2018_255
Thórdardóttir Th. 1994. Plöntusvif og frumframleiðni í sjónum við Ísland. (Phytoplankton and primary production in Icelandic waters. (In Icelandic)). In Unnsteinn Stefánsson, editor. Íslendingar, hafið og auðlindir þess. Vísindafélag Íslendinga (Soc. Sci. Islandica), Ráðstefnurit IV, 65-88.
Tverijonaite, E., and Sæþórsdóttir, A. 2024. Challenges of overtourism in coastal Iceland. Springer Nature, pp. 193–213.
Víkingsson, G. A., Pike, D. G., Valdimarsson, H., Schleimer, A., Gunnlaugsson, T., Silva, T., Elvarsson, B. Þ., et al. 2015. Distribution, abundance, and feeding ecology of baleen whales in Icelandic waters: have recent environmental changes had an effect? Frontiers in Ecology and Evolution, 3: 6. https://doi.org/10.3389/fevo.2015.00006
von Schuckmann, K., Moreira, L., de Pascual Collar, A., Grégoire, M., Brasseur, P., Garric, G., Karstensen, J., Lionello, P., Marcos, M., Poulain, P.-M., and Staneva, J. (Eds.): 9th edition of the Copernicus Ocean State Report (OSR9), Copernicus Publications, State Planet, 6-osr9, https://doi.org/10.5194/sp-6-osr9, 2025.
von Schuckmann, K., Moreira, L., Grégoire, M., Marcos, M., Staneva, J., Brasseur, P., Garric, G., Lionello, P., Karstensen, J., and Neukermans, G. (Eds.): 8th edition of the Copernicus Ocean State Report (OSR8), Copernicus Publications, State Planet, 4-osr8, https://doi.org/10.5194/sp-4-osr8, 2024.
Whitehead, H., and Hooker, S. K. 2012. Uncertain status of the northern bottlenose whale Hyperoodon ampullatus: population fragmentation, legacy of whaling and current threats. Endangered Species Research, 19(1): 47–61.
Zhai, L., Gudmundsson, K., Miller, P., Peng, W., Guðfinnsson, H., Debes, H., Hátún, H., White, G. N., Hernández Walls, R., Sathyendranath, S., & Platt, T. (2012). Phytoplankton phenology and production around Iceland and Faroes. Continental Shelf Research, 37, 15–25. https://doi.org/10.1016/j.csr.2012.01.013
Viðauki 1: Tegundir og búsvæði í hættu eða á undanhaldi
Tegundir í hættu eða á undanhaldi á vistsvæðinu Íslandsmið samkvæmt OSPAR (OSPAR-svæði I) eru sýndar í töflunum hér að neðan.
Tafla A2.1 Tegundir í hættu eða á undanhaldi á vistsvæðinu Íslandsmið
| Vísindaheiti | Íslenskt heiti |
|---|---|
| SJÓFUGLAR | |
| Rissa tridactyla | Rita |
| Uria lomvia | Stuttnefja |
| FISKAR | |
| Anguilla anguilla | Áll |
| Centrophorus squamosus | Rauðháfur |
| Cetorhinus maximus | Beinhákarl |
| Dipturus batis | Skata |
| Hoplostethus atlanticus | Búrfiskur |
| Lamna nasus | Hámeri |
| Petromyzon marinus | Sæsteinsuga |
| Salmo salar | Lax |
| Squalus acanthias | Háfur (Norðaustur-Atlantshaf) |
| Centroscymnus coelolepis | Gljáháfur |
| SJÁVARSPENDÝR | |
| Balaenoptera musculus | Steypireyður |
| Eubalaena glacialis | Sléttbakur |
Tafla A2.2 Búsvæði í hættu eða á undanhaldi á vistsvæðinu Íslandsmið
| Búsvæði |
|---|
| Kóralgarðar |
| Djúpsjávarsvampabreiður |
| Leirur á fjörusvæðum |
| Kóralrif (Lophelia pertusa) |
| Hrossaskeljabreiður (Modiolus modiolus) |
| Neðansjávarfjöll |
| Marhálmsbreiður (Zostera) |
Hvernig vitna má í þetta
Hafrannsóknastofnun (2026). Vistkerfi sjávar og áhrifaþættir – Íslandsmið. Íslensk þýðing á vistkerfisyfirliti ICES fyrir vistsvæðið Íslandsmið (Icelandic Waters ecoregion – Ecosystem overview). Hafrannsóknastofnun. Sótt af www.hafogvatn.is
Notkun og endurnot
Öllum er frjálst að nota, afrita og dreifa myndum og texta þessa yfirlits og að aðlaga efnið, svo framarlega sem heimildar er getið og tilgreint er ef efninu hefur verið breytt. Óheimilt er að selja eða endurselja efnið.
Yfirlitið er þýðing á vistkerfisyfirliti Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) og hluti myndanna er fenginn úr birtum heimildum sem tilgreindar eru við viðkomandi mynd. Slíkt efni er háð notkunarskilmálum ICES og viðkomandi höfunda og rétt er að kynna sér þá áður en efnið er notað eða því dreift áfram.
Sjá nánar í gagnastefnu Hafrannsóknastofnunar.