Samúðarkveðja frá Hafrannsóknastofnun

Samúðarkveðja frá Hafrannsóknastofnun

Starfsfólk Hafrannsóknastofnunar til sjós og lands sendir aðstandendum og ástvinum þeirra sem létust í hinu hörmulega sjóslysi í nótt sínar innilegustu samúðarkveðjur.

Jafnframt færum við þeim fjölda fólks sem sýndi hetjuskap, snarræði og fagmennsku við björgunaraðgerðir í nótt okkar innilegasta þakklæti.

Fyrir hönd starfsfólks,

Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?