
Dagana 15. til 18. apríl var haldið námskeið í greiningu botnþörunga á Hafrannsóknastofnun. Leiðbeinendur voru þau Karl Gunnarsson og Juliet Brodie sem starfar á Náttúruminjasafninu í London. Þeim til aðstoðar voru Svanhildur Egilsdóttir og Lilja Gunnarsdóttir, starfsmenn Hafrannsóknarstofnunar. Karl og Juliet hafa áður unnið saman, meðal annars farið hringinn í kringum landið og rannsakað tegundir botnþörunga og útbreiðslu.
Námskeiðið var ætlað þeim sem starfa við vöktun eða rannsóknir á fjörum og grunnsævi. Markmiðið er að auka færni þeirra í greiningu botnþörunga í sjó. Sérstök áhersla var lögð á tegundir á lista Vatnatilskipunar (e. Water Framework Directive) en innleiðing verkefnisins, gagnasöfnun og vöktun á botnþörungum mun hefjast núna í sumar (ICEWATER).
Námskeiðið tókst mjög vel, frábærir leiðbeinendur og einstaklega áhugasamir og flottir nemendur sem komu frá Náttúrufræðistofnun, Náttúrustofu Vestfjarða, Náttúrustofu Norðausturlands, Náttúrustofu Suðausturlands, Náttúrustofu Suðurlands, Náttúrustofu Suðvesturlands og Hafrannsóknastofnun.