Staðsetning þorska metin út frá sjávarföllum

Staðsetning þorska metin út frá sjávarföllum

Í skýrslu Hafrannsóknastofnunar sem nýlega kom út koma fram upplýsingar um hvernig hægt er að skoða nákvæmar far fiska við Ísland en á síðustu mánuðum hefur verið unnið að því að uppfæra líkan til að nýta sjávarföll í rafeindamerkjum til að finna líklegustu staðsetningu fiska.
Merkingar hafa verið notaðar til að rannsaka far fiska við Ísland í meira en öld. Merkingar með slöngumerkjum eru algengastar en með þeim fást upplýsingar um merkinga- og endurheimtustað, en engar upplýsingar eru um hvað gerist á milli þessara tveggja tímapunkta.

Rafeindamerki hafa líka verið notuð töluvert hér við land, en þau eru sett í kviðarhol fiska og safna stöðugt gögnum þar til minni merkjanna fyllist eða þar til fiskurinn endurheimtist og mælingin er stöðvuð. Þessi merki mæla hitastig og þrýsting sem er umbreytt í dýpi. Auk þess að vita hvar fiskurinn var merktur og endurheimtur þá gefa rafeindamerki upplýsingar um atferli, þ.e. á hvaða dýpi og við hvaða hitastig hann heldur sig á hverjum tíma frá merkingu þar til hann endurheimtist.

Ef fiskur með rafeindamerki heldur sig nógu lengi við botn má greina sjávarföll í ferlinum (sjá bláan feril á myndinni hér að ofan). Með því að bera saman feril fisksins við sjávarfallabylgjuna sem snýst rangsælis í kringum landið þá er hægt að meta líklegar staðsetningar. Á síðustu mánuðum hefur verið unnið að því að uppfæra líkan til að nýta sjávarföll í rafeindamerkjum til að staðsetningar. Fyrra líkan einskorðast við íslenska lögsögu og nýttist því ekki ef fiskur gekk út úr lögsögunni, t.d. þegar skoðuð eru gögn úr rafeindamerkjum úr þorski sem var merktur og/eða endurheimtur á Dohrnbanka.

Á myndinni hér neðar má sjá dæmi þar sem staðsetning þorsks er metin út frá sjávarföllum. Þessi þorskur er grunnfarsþorskur en það eru þorskar sem halda sig mest á dýpi innan við 200 m. Hann var merktur 9. apríl 2022 á 59 m dýpi á hrygningartíma í Fjörunni við Suðvesturland. Á fæðutíma um haustið er hann líklega staðsettur í Faxaflóa en hann virðist hafa haldið sig á svipuðum slóðum þessa þrjá mánuði. Hins vegar var hann aftur kominn á svæðið þar sem hann var merktur í desember.

Frekari upplýsingar um verkefnið má finna í nýrri skýrslu Hafrannsóknastofnunar en það var styrkt af Verkefnasjóði sjávarútvegsins. Á næstu mánuðum mun verða unnið frekar að því að greina nánar göngur þorska við Ísland en einnig verður hægt að skoða líklegar staðsetningar annara tegunda sem merktar hafa verið með rafeindamerkjum, s.s. steinbíts og skarkola.

 

 

 

 

 








Dýpisferill frá 1. – 7. október sem sýnir sjávarföll í rafeindamerki. Merki númer 1B4618.

Myndirnar sýna líklegasta svæðið þar sem þessi þorskur hélt sig á frá september til desember. Dekkri litur bendir til líklegra svæða.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?