Sérfræðingar frá Hafrannsóknastofnun taka þátt í alþjóðlegum leiðangri G.O. Sars

Ljósm. Havforskningsinstituttet í Noregi. Ljósm. Havforskningsinstituttet í Noregi.

Þessa dagana taka starfsmenn frá Hafrannsóknastofnun þátt í alþjóðlegum leiðangri á norska rannsóknaskipinu G.O. Sars. Auk sérfræðinga stofnunarinnar eru vísindamenn frá Bretlandi og Grænlandi í leiðangrinum. Verið er að skoða hafsbotninn í djúpinu milli Grænlands og Íslands. Notaður er fjarstýrður kafbátur, Ægir 6000, sem búinn er hágæða myndavél.
 
Beint streymi verður frá leiðangrinum föstudaginn 6. ágúst, kl. 11:30 þar sem fylgst verður með köfun. Eins verður hægt að senda vísindamönnunum spurningar meðan á streyminu stendur.
 
Þá er einnig haldið úti bloggi um leiðangurinn og er tengillinn á það hér á eftir:

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?