Rs. Árni Friðriksson í kortlagningarleiðangri

Yfirlitsmynd af hafsvæðinu við Ísland. Yfirlitsmynd af hafsvæðinu við Ísland.

Rs. Árni Friðriksson hélt af stað í kortlagningu hafsbotnsins þann 23. júní og mun leiðangurinn standa til 1. júlí.

Áætlunin í þessum níu daga leiðangri er að kortleggja 17 þúsund ferkílómetra svæði út við mörk efnahagslögsögu Íslands (sjá mynd).

Svæðið afmarkast af mælingum frá árinu 2018 í austur og Reykjaneshrygg í vestur. Hafsbotninn er á um 1.300 – 2.200 metra dýpi. Í einfaldasta máli ræðst lögun hans að miklu leyti af nálægð við rekbeltið þar sem ný skorpa myndast á hryggnum, kólnar og sekkur eftir því sem Evrasíuflekinn rekur í austur.

Þessi hluti af Reykjaneshryggnum var mældur í Charles Darwin leiðangrinum 1994 (grár fláki á mynd) með fjölgeislamæli af tegundinn EM12.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?