Ráðgjöf um veiðar á rækju við Snæfellsnes

Hafrannsóknastofnun leggur til í samræmi við varúðarsjónarmið að rækjuafli á svæðinu við Snæfellsnes frá 1. maí 2023 til 15. mars 2024 verði ekki meiri en 375 tonn.

Stofnvísitala rækju hefur verið töluvert lægri á árunum 2017-2023 en á árunum 2008-2016. Vísitala ungrækju hefur verið lág frá árinu 2014. Lítið var af þorski en magn ýsu hefur aldrei mælst meira en í ár.

Hlekkur á Ráðgjöf

Hlekkur á tækniskýrslu um veiðar og stofnmat


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?