Nýútkomin skýrsla um verndun viðkvæmra botnvistkerfa

Ljósm. Hafrannsóknastofnun Ljósm. Hafrannsóknastofnun

Atvinnuvega‐ og nýsköpunarráðuneytið hefur hafið vinnu við mótun stefnu varðandi verndun viðkvæmra botnvistkerfa innan íslenskrar efnahaglögsögu.

Unnið er að því að móta verklagsreglur varðandi vernd viðkvæmra botnvistkerfa sem byggir á þeim alþjóðlegu viðmiðum sem Ísland hefur tekið þátt í að móta fyrir úthafið. Þetta felur meðal annars í sér skilgreind botnveiðisvæði, skilgreind takmörkuð botnveiðisvæði og verndarsvæði.

Því óskað ráðuneytið eftir því að Hafrannsóknastofnun tæki saman upplýsingar auk þess að leggja mat á fimm þætti er varða viðkvæm botnvistkerfi. Þeim fimm þáttum sem ráðuneytið fór fram á að Hafrannsóknastofnun skoðaði eru gerð í skýrslu sem kom út 8. október 2021.

Hlekkur á skýrslu

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?