Nýútkomin grein í Aquaculture and Fisheries Studies

Mynd. Hafrannsóknastofnun Mynd. Hafrannsóknastofnun

“Stock Assessment of the Green Sea Urchin (Strongylocentrotus droebachiensis) in Southern Breiðafjörður West Iceland” er nýútgefin grein eftir Guðrúnu G. Þórarinsdóttur sérfræðing hjá Hafrannsóknastofnun, sem fjallar um ígulkerarannsóknir sem fram fóru í sunnanverðum Breiðafirði 2015.

Í lýsingu segir: “Í september 2015 fór fram könnun á stofnstærð og útbreiðslu ígulkera (skollakopps) á aðalveiðisvæði í sunnanverðum Breiðafirði. Til rannsóknanna var notaður ígulkeraplógur og neðansjávarmyndavél.

Heildarstærð veiðisvæðis mældist 9.7 km2 en það samanstóð af sjö undirsvæðum þar sem þéttleikinn var mismunandi 1,7 – 6,9 einstkl./m2 og tengdist dýpi og botngerð á svæðunum. Meðalþéttleiki allra svæða til samans var 3,5 einstkl./m2, sem leiddi til 2.700 tonna stofnstærðar þegar notuð var meðalþyngd ígulkera frá hverju svæði sem var mismunandi. Veiðhæfni plógsins var metin með því að bera saman fjölda einstkl./m2 sem taldir voru af botnmyndum við fjölda einstkl./m2 sem veiddust síðan í plóginn á sama stað og sama tíma. Veiðihæfnin var mismunandi eftir svæðum og tengdist dýpi og botngerð. Meðalveiðihæfni plógsins var metin 29%.”

Hlekkur á greinina.

 

 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?