Minni meðafli sjávarspendýra við grásleppuveiðar

Teista er algengur fugl í meðafla á grásleppuveiðum. Teista er algengur fugl í meðafla á grásleppuveiðum.

Minni meðafli sjávarspendýra við grásleppuveiðar

Út er komin skýrsla Hafrannsóknastofnunar um meðafla fugla og sjávarspendýra í grásleppuveiðum árin 2020-2023.

Helstu niðurstöður voru þær að meðafli sjávarspendýrategunda, sérstaklega útsels, var metinn töluvert lægri en á árunum þar á undan. Að sama skapi var meðafli fugla metinn aðeins lægri en áður sem skýrist að mestu leyti að minni sókn. Erfitt er að fullyrða um ástæður minnkunar á meðafla á land- og útsel milli tímabila, en farið var í ýmsar aðgerðir til að minnka meðafla eftir 2020. Helstu aðgerðir snérust að svæðalokunum og auknu eftirliti, bæði með fjarstýrðum loftförum og með eftirlitsmönnum um borð í bátum, og gætu þær aðgerðir hafa minnkað meðaflann.

Landselur algengastur í meðafla á grásleppuveiðum

Líkt og áður voru algengustu sjávarspendýrin sem veiddust landselur, útselur og hnísa, á meðan algengustu fuglarnir voru æðarfugl, teista, langvía og skarfar. Á þessum fjórum árum var lítill munur á meðaflatíðni sjávarspendýra milli veiðisvæða, dýpis og mánaða, en nokkur munur var á meðaflatíðni fugla milli veiðisvæða.

Matið á meðaflanum byggir á gögnum úr alls 220 róðrum veiðieftirlits Fiskistofu. Meðaflatíðni var reiknuð út frá róðrum veiðieftirlits á hverju veiðisvæði og síðan uppreiknuð með sókn allra báta.

Nálgast má skýrsluna í heild hér (athugið að skýrslan sem hér um ræðir er efst - frá 7. febrúar 2024.)


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?