Málþing um áhættumat erfðablöndunar

Málþing um áhættumat erfðablöndunar

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til málþings um áhættumat vegna mögulegrar erfðablöndunar milli eldislaxa og náttúrulegra laxastofna á Íslandi, fimmtudaginn 14. mars kl. 9:00. Málþingið fer fram í fyrirlestrasal á 1. hæð í Sjávarútvegshúsinu að Skúlagötu 4.

Hafrannsóknastofnun gaf áhættumatið fyrst út í júlí 2017. Ráðherra lagði nýlega fram á Alþingi frumvarp um breytingar á ýmsum lögum sem tengjast fiskeldi og þar er lagt til að áhættumatið verði lögfest og jafnframt að það verði tekið til endurskoðunar í sumar. Á málþinginu verður farið yfir áhættumatið og þá vinnu sem liggur að baki því auk þess sem rædd verða næstu skref í þróun þess.

Dagskráin er með eftirfarandi hætti:

  • 09:00: Opnun málþings. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
  • 09:10: Ragnar Jóhannsson, sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun og einn höfunda áhættumatsins
  • 09:25: Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi
  • 09.35: Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands veiðifélaga
  • 09.45-10:30: Pallborðsumræður.

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, alþingismaður og 1. varaformaður atvinnuveganefndar Alþingis
Daníel Jakobsson, bæjarfulltrúi í Ísafjarðarbæ
Jón Kaldal, talsmaður Icelandic Wildlife Fund
Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður og formaður atvinnuveganefndar Alþingis
Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar og einn höfunda áhættumatsins

 

 
Hafrannsóknastofnun hvetur gesti til að nýta sér umhverfisvænar samgöngur og minnir á að fjölmargar strætisvagnaleiðir stoppa í nágrenninu.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?