Jónbjörn Pálsson – Kveðja frá Hafrannsóknastofnun

Hróðugur með trjónufisk á djúpslóð í haustralli 2012. Í þessum leiðangri naut Jónbjörn sín vel enda … Hróðugur með trjónufisk á djúpslóð í haustralli 2012. Í þessum leiðangri naut Jónbjörn sín vel enda margar sjaldgæfar fisktegundir til að spá í.

Í dag verður borinn til grafar Jónbjörn Pálsson fiskifræðingur, fyrrum starfsmaður Hafrannsóknastofnunar. Jónbjörn (f. 1949) lauk BS - prófi í líffræði við Háskóla Íslands árið 1973 og MS - prófum frá University of Southern Mississippi, árið 1979 og University of Guelph, Ontario, 1982.

Jónbjörn hóf störf á Hafrannsóknastofnun árið 1983 þegar hann varð útibússtjóri stofnunarinnar á Húsavík. Hann var þar til ársins 1991 en fluttist þá til starfa hjá stofnuninni í Reykjavík og vann þar til 2019 þegar hann lét af störfum sökum aldurs.

Jónbjörn sinnti ýmsum rannsóknum og eftir hann liggur fjöldi greina um líffræði hafsins. Hans helsta höfundaverk er þó bókin „Íslenskir fiskar“ sem hann gaf út í félagi við Gunnar Jónsson fiskifræðing. Sú bók er okkar helsta heimild um fisktegundir í íslenskri lögsögu.

Vagg og velta með vinnufélögum í marsralli 2018.

Vagg og velta með vinnufélögum í marsralli 2018.

Með síðustu verkum hans fyrir Hafrannsóknastofnun var að greina nýja fiskitegund á íslensku hafsvæði sjá hér. Árið 2017 fann Jónbjörn tegundina brisling sem telst nýr landnemi við Íslandsstrendur, og leiddi greinarskrif um framgang tegundarinnar við landið sjá hér. Auk fræðivinnu lagði hann mikið upp úr ljósmyndun á lífverum sjávar og eftir hann liggja fjölmargar ljósmyndir. 

Jónbjörn hélt góðum tengslum við alþjóðlega fræðasamfélagið og gjöfult samstarf hans við belgísku vísindakonuna Christiane Delongueville, frétt um samstarfið. varð til þess að ný tegund af kuðungi hlaut nafnið hans, Buccinum palssoni Fraussen, Delongueville & Scaillet, 2024 sjá hér.

Hátíð hafsins 11. Júní 2017. Jónbjörn var drifkrafturinn í þeirri sýningu til fjölda ára. Safnaði eintökum til að sýna og hafði ánægju af að miðla fróðleik til áhugasamra.

Hátíð hafsins 11. júní 2017. Jónbjörn var drifkrafturinn í þeirri sýningu til fjölda ára. Hann safnaði eintökum til að sýna og hafði ánægju af að miðla fróðleik til áhugasamra.

 

Jónbjörn ásamt Sigfúsi Jóhannessyni vaktfélaga til margra ára, eitthvað að spekúlera. Mynd tekin í haustralli 2015.

Jónbjörn ásamt Sigfúsi Jóhannessyni vaktfélaga til margra ára, eitthvað að spekúlera. Mynd tekin í haustralli 2015.

Síðast en ekki síst má nefna að Jónbjörn lagði áherslu á góð tengsl við útveginn og almenning. Hann var í góðum tengslum við sjómenn sem voru duglegir að færa honum áhugaverða fiska, slíkum sendingum tók hann fagnandi. Jónbjörn skrifaði pistla um sjaldséða fiska á Íslandsmiðum í tímaritið Ægi um árabil. Jónbjörn, ásamt Gunnari Jónssyni byrjuðu með fiskasýningu á sjómannadag sem óx frá ári til árs og er nú orðin ómissandi framlag Hafrannsóknastofnunar til viðburða í tilefni sjómannadagsins.

Jónbjörns er minnst á Hafrannsóknastofnun sem einstaklega hæverskum og ljúfum samstarfsfélaga sem gott var að vinna með og leita til.

Samstarfsfólk vottar Þóru, eiginkonu Jónbjörns og afkomendum innilegrar samúðar og minnist góðs félaga.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?