Hnúfubakar utan við Fornubúðir

Hnúfubakurinn ISMN1625 sem hefur gert sig heimakominn í Hafnarfjarðarhöfn undanfarna daga. Hvalurinn… Hnúfubakurinn ISMN1625 sem hefur gert sig heimakominn í Hafnarfjarðarhöfn undanfarna daga. Hvalurinn hefur einnig sést í Ísafjarðardjúpi þar sem þessi mynd var tekin.

Undanfarna tíu daga eða svo hefur verið mikið líf í og við Hafnarfjarðarhöfn þar sem nokkrir hnúfubakar hafa gert sig heimakomna. Yfirleitt er um þrjá hvali að ræða, tvo smærri og einn stærri, en á þriðjudag (21. febrúar) sáust þó fleiri hnúfubakar, auk hrefnu og höfrunga utar í höfninni.

Hvalirnir virðast vera í smásíld, sem stundum er að finna í torfum á þessum slóðum og árstíma. Tveir hnúfubakana þekkjast á mynd, en hægt er að nota útlitseinkenni til að greina einstaklinga. Hafrannsóknastofnun á Ísafirði náði myndum af öðrum þeirra í Ísafjarðardjúpi árið 2021 (sjá mynd með frétt) en hann hafði einnig sést í Faxaflóa sama ár. Hinn sást á Húsavík 2021, og náði Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Húsavík myndum af dýrinu þar, en sami hvalur hefur einnig sést í hvalaskoðunarferðum Special Tours í Faxaflóa við Njarðvík.

Hnúfubakar voru áður fyrr frekar sjaldgæfir við landið, og í fyrstu skipulögðu hvalatalningum við landið árið 1987 voru um 2000 dýr við landið. Eftir það fjölgaði hnúfubak hratt, og var stofninn kominn í yfir 14000 dýr árið 2001. Síðan þá hefur stofninn haldist nokkuð stöðugur. Athyglisvert er að samfara þessari aukningu í kringum landið hefur hrefnu fækkað, og hnúfubakur því velt hrefnunni úr sessi sem ráðandi tegund skíðishvala við strendur landsins.

Hafrannsóknastofnun stundar rannsóknir á hnúfubökum við landið, aðallega í formi merkinga með gervihnattamerkjum og auðkenningar útfrá ljósmyndum, og heldur Hafrannsóknastofnun utan um myndabanka til slíkra rannsókna. Hafa þessar rannsóknir sýnt fram á far hnúfubaka frá fæðuslóðum við Ísland til suðrænna hafsvæða í Karíbahafinu og við Grænhöfðaeyjar.

Á meðan við hvetjum fólk til að koma og skoða þessa skemmtilegu nágranna okkar, viljum við einnig minna stjórnendur báta og skipa á að fara varlega í kringum hvalina og halda ákveðinni fjarlægð frá dýrunum.

 

Myndbandið var tekið af Alexandre Paumier-Bianco, sem er nemi hjá Hafrannsóknastofnun þessa önn.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?