Hlegið með hlýra

Ásgeir Gunnarsson sérfræðingur á Hafrannsóknastofnun og einn helsti hlýrafræðingur landsins er glaðb… Ásgeir Gunnarsson sérfræðingur á Hafrannsóknastofnun og einn helsti hlýrafræðingur landsins er glaðbeittur á myndinni enda með sínu uppáhaldsviðfangi.
Mynd: Jón Sólmundsson

Gleðin leynir sér ekki í svip Ásgeirs Gunnarssonar sérfræðings Hafrannsóknastofnunar yfir léttu spjalli við hlýra í árlegri stofnmælingu botnfiska á rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni. Þessi árlega sjóferð er þekkt er sem vor- eða marsrall meðal starfsfólks Hafrannsóknastofnunar og útgerðar.

Staða hlýrastofnsins hefur verið bágborin undanfarin ár sem leiddi til þess að stofnunin hvatti sjómenn til að sleppa veiddum hlýra umfram kvóta. Rannsóknir sýna að lífslíkur veidds hlýra sem er sleppt eru talsverðar. Að sjálfsögðu er öllum hlýra sleppt í stofnmælingasjóferðinni að undanskildum þeim fáu sem hljóta þau örlög að verða kvarnaðir í þágu rannsókna og vísinda.

Á myndunum má sjá Sigurlínu Gunnarsdóttur, Silje Elisabeth Seim og Ásgeir Gunnarsson sleppa hlýra eftir að hann hefur verið lengdarmældur. Einnig hafa verið gerðar lifunartilraunir á hlýra í rallinu og sömuleiðis er reynt að safna hlýra fyrir aðila sem eru að byrja eldi á hlýra.

Sigurlína Gunnarsdóttir rannsóknarmaður hjá Hafrannsóknastofnun
mundar hlýra eftir mælingu og áður en honum var sleppt.
Mynd: Jón Sólmundsson

Silje Elisabeth Seim frá norsku hafrannsóknastofnuninni (n. Havforskningsinstituttet)
og Ásgeir handleika hlýra eins og ungabarn áður en honum er sleppt aftur í frelsi hafsins.
Mynd: Jón Sólmundsson


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?