Haustrall (SMH) 2020 er hafið

RS. Árni Friðriksson leggur úr höfn. Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir. RS. Árni Friðriksson leggur úr höfn. Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir.

Stofnmæling botnfiska að haustlagi er hafin og stendur yfir næstu fjórar vikur. Tvö skip taka þátt í verkefninu; togarinn Múlaberg SI og rannsóknaskipið Árni Friðriksson. Togað verður á rúmlega 370 stöðvum umhverfis landið. Þetta mun vera í 25 skipti sem farið er í stofnmælingu botnfiska að haustlagi.

Verkefnið sem einnig er nefnt haustrall, hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti á hverju ári síðan 1996. Svæðinu er skipt í grunn- og djúpslóð og er togað niður á allt að 1300 m dýpi.

Helsta markmið er að fylgjast með breytingum á stofnstærð, aldri, fæðu, ástandi og útbreiðslu botnfisktegunda við landið. Erfðasýni verða tekin úr grálúðu sem verður einnig merkt. Athuganir verða gerðar á botndýrum og mat lagt á magn ýmiskonar rusls á sjávarbotni.

Sjö til tíu rannsóknamenn eru á hverju skipi auk áhafnar.

Fylgjast má með ferðum skipanna á https://skip.hafro.is/ og þar sjást einnig togstöðvar í haustralli


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?