Haustrall (SMH) 2021 er hafið

Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir

Stofnmæling botnfiska að haustlagi (haustrall) er hafin og stendur yfir næstu fjórar vikur. Þrjú skip taka þátt í verkefninu; togararnir Múlaberg SI og Breki VE og rannsóknaskipið Árni Friðriksson. Togað verður á rúmlega 370 stöðvum umhverfis landið. Þetta er í 25. skipti sem farið er í stofnmælingu botnfiska að haustlagi.

Verkefnið hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti árlega síðan 1996. Svæðinu er skipt í grunn- og djúpslóð og er togað niður á allt að 1300 m dýpi.

Helsta markmið er að fylgjast með breytingum á stofnstærð, aldri, fæðu, ástandi og útbreiðslu botnfisktegunda við landið.

Fimm rannsóknamenn eru á hverju skipi auk áhafnar.

Fylgjast má með ferðum skipanna á https://skip.hafro.is/ og þar sjást einnig togstöðvar í haustralli

 

 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?