Hafrannsóknastofnun hefur starfrækt starfstöð á Ísafirði í 50 ár. Hér má sjá starfsfólk stöðvarinnar, talið frá vinstri: Orla Frances Mallon, Martyn Jones,
Anna Ragnheiður Grétarsdóttir, Hjalti Karlsson, James Kennedy,
Arnþór Bragi Kristjánsson og Arnar Björnsson.
Hafrannsóknastofnun hefur starfrækt starfsstöð á Ísafirði í 50 ár í Vestrahúsinu á Ísafirði. Það var árið 1976 sem starfstöðin var sett á laggirnar í húsinu en þar var fyrir Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins.
Aðeins tveir menn hafa leitt starfið vestra, Guðmundur Skúli Bragason starfaði frá 1976 til 1991, þegar Hjalti Karlsson tók við starfinu sem hann gegnir enn. Hjá Hafrannsóknastofnun á Ísafirði eru nú sjö starfsmenn sem sinna ýmsum viðfangsefnum.
Í Vestrahúsinu eru fjölmargar stofnanir og fyrirtæki, m.a. Háskólasetur Vestfjarða, snjóflóðasetur Veðurstofu Íslands, MAST, Matís, Fiskistofa, Vestfjarðastofa o. fl. Í húsinu starfa á milli 50-60 manns.
Eggert Benedikt Guðmundsson, settur forstjóri var á dögunum á Ísafirði og undirritaði nýjan húsaleigusamning við Vestra ehf. á þessum tímamótum.

Gísli Jón Hjaltason, framkvæmdastjóri Vestra ehf. og Eggert Benedikt Guðmundsson, settur forstjóri Hafrannsóknastofnunar handsala nýjan húsaleigusamning.