Fjórir nýjir rafbílar teknir í notkun hjá Hafrannsóknstofnun

Hafþór Karlsson söluráðgjafi hjá Öskju afhendir Eggerti Benedikt Guðmundssyni rafbílana. Hafþór Karlsson söluráðgjafi hjá Öskju afhendir Eggerti Benedikt Guðmundssyni rafbílana.

Hafrannsóknastofnun tók fyrr í vikunni við fjórum nýjum rafbílum af tegundinni Smart frá Öskju bílaumboði að undangengnu útboði. Kaupin eru liður í rafbílavæðingu stofnunarinnar. Bílarnir eru nýttir til rannsóknaferða fyrir ferskvatns- og strandrannsóknir um land allt. 

Sem stendur á stofnunin alls sex eldsneytisbíla og sjö rafbíla en stefnt að því að rafvæða alla bíla hennar næstu misseri eða ár, eða um leið og rafbílar verða nógu öflugir til að sinna rannsóknaferðum á hálendinu. Rafbílar Hafrannsóknastofnunar eru nú staðsettir á Hvammstanga, Ísafirði, Akureyri, Vestmannaeyjum, Grindavík og í Reykjavík. 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?