Fjölþjóðlegur leiðangur fyrir norsk-íslenska síld hafinn

Ljósm. Hafrannsóknastofnun
https://www.instagram.com/hafrannsoknastofnun/ Ljósm. Hafrannsóknastofnun
https://www.instagram.com/hafrannsoknastofnun/

Á sunnudaginn 10. maí hélt rs. Árni Friðriksson af stað í leiðangurinn „Vistfræði Austurdjúps“.
Eitt af meginmarkmiðum verkefnisins er að meta magn og útbreiðslu norsk-íslenskrar síldar og annarra uppsjávartegunda í Austurdjúpi og á austur- og norðausturmiðum.

Þessu til viðbótar er ástand hafsins og vistkerfisins kannað, m.a. hitastig og magn átustofna. Leiðangurinn er skipulagður af vinnuhóp á vegum Alþjóða hafrannsóknaráðsins (ICES) en auk rannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar, taka rannsóknarskip frá Noregi, Færeyjum, Danmörku og Rússlandi þátt í verkefninu. Áætlað er að leiðangurinn muni taka 20 daga.

Leiðangurinn hefur verið farinn árlega síðan 1995 og gefa niðurstöður hans m.a. eina mikilvægust tímaröð bergmálsmælinga sem notaðar eru við stofnmat og veiðiráðgjöf norsk-íslenska síldarstofnsins innan Alþjóða hafrannsóknaráðsins.

Leiðangurinn hefur verið farinn árlega síðan 1995 og eru niðurstöður nýttar við gerð stofnmats fyrir norsk-íslenska síld. Hægt er að fylgjast með ferðum skipsins á hlekknum https://skip.hafro.is/


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?