Heildarfjöldi stangveiddra laxa árið 2025 var um 33.000 fiskar sem er um 24 % minni veiði en var á árinu 2024 og um 20% undir árlegri meðalveiði frá 1974.
Heildarfjöldi stangveiddra laxa sumarið 2025 var um 33.000 fiskar (1. mynd), sem var um 24% minni veiði en 2024 og um 20% undir meðalveiði áranna 1974-2024. Laxveiðin 2025 var um 9.500 löxum minni en árið 2024, en sambærileg við veiðina 2023. Laxveiði var minni árið 2025 en 2024 í öllum landshlutum (2. mynd).

Mynd 1. Stangveiði í íslenskum ám frá 1974 - 2025. Veiðinni er skipt í landaðan afla (blátt), veitt og sleppt (grænt), veiði úr sleppingum gönguseiða (rautt) og fjöldi slepptra hafbeitarlaxa (ljósblátt). Tölur frá 2025 eru bráðabirgðatölur.
Í tölum um heildarlaxveiði eru taldir allir laxar sem veiðast, jafnvel þeim sem sleppt er aftur (veitt og sleppt). Einnig laxar með uppruna úr sleppingum gönguseiða, en þeir voru alls um 8.900 sumarið 2025, sem er um 1.600 löxum fleiri en veiddust 2024.
Við samanburð á veiðitölum úr stangveiði milli ára eða tímabila, þarf að taka tillit til aukinnar veiði vegna gönguseiðasleppinga og þeirra fiska sem veiðast aftur eftir að hafa verið sleppt í stangveiði (veitt og sleppt). Til að fá samanburð veið til lengri tíma er leiðrétt fyrir þessum þáttaum, þ.e. ekki taldir með þeir laxar sem ættaðir eru úr gönguseiðasleppingum til hafbeitar og áætlaður fjöldi endurveiddra laxa (veitt og sleppt). Þannig er heildarstangveiði villtra laxa árið 2025 um 18.300 laxar sem er lægsta skráða tala til þessa. Árið 2024 var þessi hluti veiðinnar um 35.000 laxar, sem þýðir um 33% minnkun milli ára (3. mynd).
Fjöldi þeirra laxa sem ganga í ár er annarsvegar háður fjölda seiða sem ganga úr ánum til sjávar og hinsvegar hversu margir lifa sjávardvölina af og skila sér til baka í árnar. Almennt hefur dánartala laxa í sjó í Norður Atlantshafi farið hækkandi síðustu ár, en ástæður þess eru ekki þekktar. Bent hefur verið á þætti eins og loftslagsbreytingar, meðaflaveiði, áhrif fiskeldis og breytingar á búsvæðum í fersku vatni.
Athygli vekur að hlutfallslega var minni samdráttur var milli ára í fjölda stangveiddra laxa á Suðurlandi en á Norðurlandi. Ástæða er til að skoða þann þátt nánar, sem og vísbendingar um að veiðihlutfall í stangveiði hafi verið lækkandi á síðustu árum a.m.k. í einhverjum ám.
Verið er að vinna að samantekt veiði og eru veiðiréttarhafar hvattir til að skila veiðitölum til Hafrannsóknastofnunar sem fyrst, en lokatölur um veiði verða gefnar út að samantekt lokinni.

2. mynd. Stangveiði á laxi sumarið 2025 skipt eftir landshlutum.
Á Suðurlandi er gerður greinarmunur á veiði á villtum laxi (blátt)
og laxi úr hafbeitarám (rautt). Tölur frá 2025 eru bráðabirgðatölur.

Mynd 3. Heildarfjöldi stangveiddra laxa í íslenskum ám, að undanskilinni veiði í hafbeitarám og þegar leiðrétt hefur verið fyrir áhrifum veiða og sleppa. Tölur frá 2025 eru bráðabirgðatölur. Brotalínan sýnir árlegan meðalfjölda veiddra laxa á tímabilinu.