Okkar maður, Áki Jarl Láruson stofnerfðafræðingur, tók þátt í vinnufundi erfðafræðinga og fiskifræðinga í vistfræðilegum rannsóknarverkefnum í Þórshöfn nýlega.


Vísindamenn frá Íslandi, Færeyjum, Danmörku, og Noregi hittust í Þórshöfn á dögunum til að ræða leiðir fyrir bætt samstarf milli erfðafræðinga og fiskifræðinga í vistfræðilegum rannsóknaverkefnum. Þessi samkoma var möguleg þökk sé styrktarsjóði Rannsóknaráðs Færeyja, en Áki Jarl Láruson stofnerfðafræðingur hjá Hafrannsóknastofnun sótti um í sjóðnum ásamt fleirum.
Á vinnustofunni voru kynningar frá báðum rannsóknafögum um breytingar á sviði erfðafræði, framfarir í sameindarannsóknum, dæmisögur um góða samvinnu á milli erfða- og fiskifræðinga, áskoranir í fiskifræði og síðast en ekki síst vandamál sem koma upp þegar erfðafræðingar og fiskifræðingar tala í kross.
Af ýmsum þáttum sem ræddir voru á vinnufundinum var eitt atriði sem oft bar á góma en það var vandamál við sýnatöku, það er hvernig sýni eru tekin á sjó og hvernig þau leggja grunninn að erfðafræðiverkefnum síðar. Í ljósi breytinga á aðferðarfræði, frá því að nota fáeina erfðavísa yfir í að nota heil erfðamengi, eru aðferðirnar sem áður voru ásættanlegar nú orðnar ófullnægjandi. Því eiga erfðamengjafræðingar oft erfitt með að afla nothæfra gagna úr sýnum sem áður höfðu reynst vel.
Sýnataka á sjó er krefjandi og ekki má hunsa almennar takmarkanir þegar unnið er á hafi úti. Aukin samskipti milli rannsóknafólks á ólíkum sviðum í ólíkum löndum sem og bættar leiðbeiningar varðandi verkferla eflir grunnskilning allra á þeim skilyrðum sem þurfa að vera til staðar í flóknum verkefnum.
Á vinnustofunni var einnig kynning frá þýska fyrirtækinu LVL um sérhönnuð rannsóknaverkfæri og boðið upp á frekari samstarf um sameiginlega hönnun verkfæra sem geta nýst við erfiðar sýnatökuaðstæður.
Helsta niðurstaðan á vinnustofunni voru að þær að þær stórkostlegu framfarir, sem erfðamengjafræði býður upp á, munu ekki eiga sér stað nema samskipti milli erfðafræðinga (sameindavistfræðinga) og fiskifræðinga verði sett í forgang og rannsóknaverkefni verði hönnuð þannig að þau tryggi gæði gagna og virk samskipti í öllu vinnuferlinu.
Vinnustofa þessi var mikilvægt skref í átt til að viðhalda og styrkja traustleika og áreiðanleika erfðafræðirannsókna í þágu sjálfbærum fiskveiðum á milli landa.