Ástand rækjustofna í Arnarfirði og í Ísafjarðardjúpi

Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir

Með hliðsjón af niðurstöðum könnunar á ástandi innfjarðarrækjustofna sem fram fór dagana 1.-11. október leggur Hafrannsóknastofnun til að leyfðar verði veiðar á 197 tonnum af rækju í Arnarfirði og 568 tonnum í Ísafjarðardjúpi á vertíðinni 2019/2020.

Ástand rækjustofna í Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfanda og Öxarfirði var ekki kannað. Ráðgjöf stofnunarinnar hefur undanfarin ár verið að ráðleggja að engar veiðar séu stundaðar á þessum svæðum vegna slæms ástands stofnanna.

Stofnvísitala rækju í Arnarfirði var nálægt sögulegu lágmarki en yfir skilgreindum varúðarmörkum. Rækjan í Arnarfirði var smærri en undanfarin ár. Mikið var af þorsk- og ýsuseiðum í Arnarfirði og mældist meira af þorski en undanfarin þrjú ár.

Stofnvísitala rækju í Ísafjarðardjúpi var undir meðallagi en yfir skilgreindum varúðarmörkum. Útbreiðsla rækjunnar var að miklu leyti takmörkuð við svæðið innst í Ísafjarðardjúpi. Nýliðunarvísitala rækju var langt undir meðallagi árin 2016–2019. Vísitala þorsks hefur farið lækkandi frá árinu 2012 en magn þorsks var töluvert meira í október 2019 en undanfarin þrjú ár. Vísitala ýsu hefur haldist há frá 2004. Mikið var af ýsuseiðum á svæðinu í október 2019.

Arnarfjörður

Ísafjörður


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?