Hrefna utan við Vestfirði.
Ljósmynd: Sverrir Daníel Halldórsson
Hafrannsóknastofnun og Norður-Atlantshafs sjávarspendýraráðið (NAMMCO) ráðleggur að veiðar á langreyð árið 2026 verði ekki meiri en 150 dýr, þar af 116 dýr á veiðisvæðinu Austur-Grænland/Vestur-Ísland (AG/VÍ) og 34 dýr á svæðinu Austur-Ísland/Færeyjar (AÍ/F), sem er um 28 % lækkun frá fyrri ráðgjöf. Eins er ráðlagt að veiðar á hrefnu árið 2026 verði ekki meiri en 168 dýr á íslenska landgrunnsvæðinu, sem er 23 % lækkun.
Ráðgjöf til eins árs
Ráðgjöfin byggir á úttektum Vísindanefndar NAMMCO og Alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC). Þetta er ráðgjöf til eins árs, og verður uppfærð síðar á árinu fyrir næstu ár, þegar niðurstöður nýjustu talninga hafa verið samþykktar af úttektarhópum og nefndum innan NAMMCO. Þar sem niðurstöður talninganna frá 2024 hafa ekki verið samþykktar af nefndum innan NAMMCO voru þær ekki notaðar í útreikning aflamarks. Vegna þess er ráðgjöfin lækkuð um 20 % í varúðarskyni. Vegna mikillar óvissu í síðustu talningu má ekki búast við miklum breytingum þegar hún verður tekin inn í útreikning aflamarks.
Ráðgjöf um veiðar á langreyðum má finna hér og hrefnu má finna hér.