Melanie Stock, doktorsnemi í sjávarlíffræði hjá Hafrannsóknastofnun, hlaut á dögunum verðlaun fyrir besta nemendaveggspjaldið á 26. ráðstefnunni um líffræði sjávarspendýra, sem haldin er annað hvert ár (26th Biennial Conference on the Biology of Marine Mammals). Veitt voru verðlaun fyrir bestu nemendaveggspjöldin frá hverri heimsálfu.
Ráðstefnan fór fram í San Juan í Puerto Rico 19.–23. október og er stærsta ráðstefna heims á sviði líffræði sjávarspendýra. Hana sóttu um 1500 vísindamenn frá yfir 50 löndum.
Doktorsverkefni Melanie snýr að meðafla sjávarspendýra og sjófugla í fiskveiðum við Ísland. Þekking á umfangi meðafla skiptir miklu máli fyrir verndun þessara tegunda og sjálfbærar veiðar. Leiðbeinendur Melanie eru Guðjón Már Sigurðsson og Dunja Jusufovski hjá Hafrannsóknastofnun og Haseeb Randhawa hjá Háskóla Íslands.
Hafrannsóknastofnun óskar Melanie innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur!