Víðförul grálúða

Þann 6. september fékk Hafrannsóknastofnun þessa fínu mynd sem sýnir merkingar- og veiðistað grálúðu… Þann 6. september fékk Hafrannsóknastofnun þessa fínu mynd sem sýnir merkingar- og veiðistað grálúðunnar. (Myndin og upplýsingarnar varðandi merkinguna eru frá Amanda Barkley).

Þann 19. ágúst sl. barst stofnuninni fyrirspurn frá skipverja á Guðmundi í Nesi ER 13, varðandi fiskmerki sem fannst í grálúðu á Hampiðjutorginu þá um nóttina.

mynd af fiskmerkinu

Ekki reyndist merkið vera frá okkur og var send fyrirspurn á Hafrannsóknastofnunina á Grænlandi um hvort merkið væri frá þeim. Það reyndist ekki vera og því var haft samband við Vemco (Innovasea), sem er framleiðandi merkisins, hvort að þeir gætu aðstoðað við að hafa uppi á eiganda þess.

Þann 26. ágúst kom svar frá fyrirtækinu og búið var að finna út hver eigandi merkisins væri. Nigel Hussey hjá University of Windsor í Kanada (eigandi merkisins) hafði svo samband sama dag og falaðist eftir meiri upplýsingum varðandi fundarstað.

Grálúðan var merkt 18. september 2016 norður af Disko Fan Conservation Area í Kanada (lat: 68.30933, long: -59.7757) en það svæði er lokað fyrir öllum veiðum sem snerta hafsbotninn. Grálúðan var 68 cm við merkingu en ekki fylgdu upplýsingar um stærð þegar hún veiddist.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?