Hafrannsóknastofnun stóð fyrir opnum fræðslufundi um málefni ferskvatnsfiska 21. maí. Um árlegan viðburð er að ræða undir yfirskriftinni Upptaktur að veiðisumri. Fundurinn var haldin í húsakynnum stofnunarinnar í Fornubúðum í Hafnarfirði. Fundurinn var vel sóttur en um 90 manns lögðu leið sína í Hafnarfjörðinn til að fræðast um komandi veiðisumar.
Á fundinum fluttu fjórir sérfræðingar stofnunarinnar erindi. Sveinn Kári Valdimarsson fjallaði um hlutverk malar ám sem búsvæði fyrir laxfiska og mikilvægi þess að raska ekki þessum búsvæðum. Jóhannes Guðbrandsson fjallaði um endurheimt og verndun búsvæða vatnafiska og Hlynur Bárðarson um greiningu álagsþátta fyrir Atlantshafslax, en bæði þessi verkefni eru hluti af vinnu NASCO, sem Ísland er aðili að. Að lokum fjallaði Guðni Guðbergsson um villta laxinn og fiskeldi og þau verkefni og áskoranir sem þar eru. Fundarstjóri var Hrönn Egilsdóttir.
Viðburðurinn mæltist vel fyrir og er mikilvægur liður í að halda við og efla tengsl og samtal milli Hafrannsóknastofnunar, veiðiréttareigenda, veiðimanna og annars áhugafólks ferskvatnsfiska.
Fundurinn var tekin upp og eru erindin aðgengileg hér.