Útskriftarhópur 27. árgangs nemenda Sjávarútvegsskóla GRÓ á ferðalagi um Suðurnesin.
Athöfn til að fagna útskrift 27. árgangs nemenda Sjávarútvegsskóla GRÓ verður haldin miðvikudaginn 20. maí. nk. Viðburðurinn fer fram í húsnæði Hafrannsóknastofnunar, Fornubúðum 5 í Hafnarfirði og hefst kl. 15:00. Samhliða mun hanga uppi í anddyri stofnunarinnar veggspjaldasýning með kynningum á rannsóknarverkefnum nemenda. Útskriftarathöfnin er opin öllum áhugasömum.
Smelltu hér til að taka þátt í útskriftinni á netinu.
Dagskrá:
14:50 – 15:00 Gestir mæta
15:00 – 15:05 Kynnir, Jónas Páll Jónasson, sviðsstjóri botnsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar, býður gesti velkomna
15:05 – 15:15 Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, ávarpar gesti
15:15 – 15:20 Nína Björk Jónsdóttir, forstöðumaður GRÓ Þekkingarmiðstöðvar Þróunarsamvinnu, ávarpar gesti
15:20 – 15:50 Þór Heiðar Ásgeirsson, forstöðumaður Sjávarútvegsskóla GRÓ, stjórnar afhendingu skírteina til nemenda.
15:50 – 15:58 Fulltrúi útskriftarnemenda flytur ávarp
15:58 – 16:00 Kynnir býður gestum í móttöku og að skoða veggspjaldasýningu nemenda
Um 27. árganginn
Í árgangnum eru 23 sérfræðingar frá 15 löndum í Mið-Ameríku, Karíbahafi, Afríku, Asíu og Kyrrahafi. Auk þess tók einn gesta-nemandi þátt í inngangshluta námsins. Stærsta sérsviðið að þessu sinni var Fiskveiðilínan (8 þátttakendur). Þar á eftir kom Stofnstærðarlínan (6), Fiskeldislínan (5) og Matvæla- og gæðastjórnunarlínan (4). Að þeim meðtöldum sem nú útskrifast hafa alls 535 manns lokið sexmánaða þjálfunarnámi Sjávarútvegsskólans frá því hann hóf starfssemi 1998.
Sjá upplýsingasíðu um 27. árgang hér