Útbreiðsla og fjölbreytni djúpsjávarkórala við Ísland
13. maí 2026
Ný vísindagrein sem birtist í tímaritinu Marine Biodiversity fjallar um útbreiðslu og líffræðilega fjölbreytni kaldsjávarkórala í hafinu umhverfis Ísland.
Greinin byggir á umfangsmikilli samantekt gagna sem ná yfir þúsundir skráninga um kaldsjávarkórala innan íslenskrar efnahagslögsögu. Gögnin eru fengin úr fjölbreyttum gagnasöfnum, meðal annars úr leiðöngrum frá lokum 19. aldar, sýnum í safni Náttúrufræðistofnunar, BIOICE-verkefninu, botnfiskrannsóknum Hafrannsóknastofnunar og myndgögnum úr kortlagningu búsvæða á hafsbotni.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að fjölmargar tegundir kórala finnast víða um hafsvæðið, frá grunnsævi niður á mikið dýpi. Flestar tegundir fundust þó á meira en 600 metra dýpi. Fjölbreytni kórala er mest í hlýrri sjó suður og vestur af landinu. Einnig greindust mismunandi samfélög kórala sem endurspegla breytilegar umhverfisaðstæður, meðal annars hitastig og hafstrauma.
Kaldsjávarkóralar gegna lykilhlutverki í vistkerfum hafsins. Þeir mynda flókin búsvæði sem hýsa fjölbreytt lífríki og eru mikilvægir fyrir fæðuöflun og skjól margra tegunda. Slík vistkerfi eru þó viðkvæm fyrir álagi, meðal annars vegna botnvörpuveiða, auðlindanýtingar og loftslagsbreytinga.
Höfundar greinarinnar eru Steinunn Hilma Ólafsdóttir, sjávarlíffræðingur, og Julian Mariano Burgos, sjávarvistfræðingur, hjá Hafrannsóknastofnun, og Guðmundur Guðmundsson, flokkunarfræðingur, hjá Náttúrufræðistofnun.
Steinunn Hilma Ólafsdóttir, Julian Mariano Burgos & Guðmundur Guðmundsson(2026). Distribution and biodiversity of cold-water corals in Icelandic waters at the boundaries of the N-Atlantic and the Arctic, sjá greinina hér. Sjá einnig myndband hér neðar af kórölum á hafsbotni í Grænlandssundi.
Tegundafjölbreytni kaldsjávarkóralla í íslenskum hafsvæðum. Fjölbreytni er metin út frá fjölda skráðra tegundahópa, að teknu tilliti til fjölda sýna. Heimild: Marine Biodiversity (DOI: 10.1007/s12526-026-01648-y)
Á 1000 m dýpi vestur af Íslandi er keilulaga fjall á hafsbotni. Þar deila fjórar tegundir kórala saman einu grjóti. Á sama grjóti eru líka svampar, slöngustjörnur og sæliljur. Snigill og marfló leynast þar líka ef vel er að gáð.