Upptaktur að veiðisumrinu 2026 verður 21. maí nk.

Mynd: Hafrannsóknastofnun Mynd: Hafrannsóknastofnun

Hafrannsóknastofnun boðar til fundar um málefni ferskvatnsfiska fimmtudaginn 21. maí 2026, í aðdraganda komandi veiðisumars.

Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5, í Hafnarfirði. Fundinum verður ekki streymt en hann tekinn upp og deilt síðar hér á þessari fréttasíðu (uppfært: upptökur eru hér) . Dagskráin hefst kl. 9.00 en léttur morgunverður framreiddur kl. 8.20. 

Gestum verður boðið að þiggja morgunverð fyrir fundinn.

Dagskrá:

8.20-9.00:   Morgunverður

9:00-9:05:   Fundur settur

9:05-9:30    Ármöl - sjálfbær auðlind eða lykilbúsvæði laxfiska?

Sveinn Kári Valdimarsson, sérfræðingur á Hafrannsóknastofnun 

9.30-9.55:   Endurheimt búsvæða

Jóhannes Guðbrandsson, sérfræðingur á Hafrannsóknastofnun

9.55-10.20:   Greining álagsþátta fyrir Atlantshafslax

Hlynur Bárðarson, sérfræðingur á Hafrannsóknastofnun

10.20-10.45:  Villtir laxfiskar og fiskeldi

Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri ferskvatns- og eldissviðs Hafrannsóknastofnunar

Fundarstjóri: Hrönn Egilsdóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs Hafrannsóknastofnunar

Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig hér. Skráningu lýkur miðvikudaginn 20. maí, kl. 12.00.

Upptökur af Upptaktinum fyrir veiðisumarið 2026 má finna hér.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?